Fréttablaðið - 24.12.2009, Page 50

Fréttablaðið - 24.12.2009, Page 50
26 24. desember 2009 FIMMTUDAGUR Kvikmyndir ★★★★ Bjarnfreðarson Leikstjóri: Ragnar Bragason Aðalhlutverk: Jón Gnarr, Pétur Jóhann Vigfússon, Jörundur Ragn- arsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Margrét Helga Jóhannsdóttir. Eftir þrjár vel lukkaðar þáttarað- ir er smiðshöggið rekið á vakta- bálkinn með kvikmynd í fullri lengd, Bjarnfreðarsyni. Hér er það sem allir þræðir eiga að koma saman, þar sem örlög lán- leysingjanna þriggja verða ráðin. Þetta er þó fyrst og fremst mynd um Georg, og hvernig það atvik- aðist að hann varð samvisku- fangi móður sinnar, Bjarnfreðar. Sagan hefst þegar Georg er sleppt úr steininum. Bjarnfreður móðir hans hefur snúið við honum bak- inu og hann á í engin önnur hús að venda en hjá Daníel, sem hefur líka skotið skjólshúsi yfir Ólaf Ragnar, sem gerir það gott sem sendill þar til hann verður fyrir óvæntum missi. Út á við reynir Daníel enn að lifa í samræmi við væntingar annarra en er að safna í sig kjarki til að taka örlögin í eigin hendur. Það er gaman að sjá þremenningana í nýjum aðstæð- um. Æskusakleysi Ólafs Ragn- ars blómstrar í umgengni við tví- burastrákana hans Daníels, og eftir mikla þrautagöngu virðist gullna hliðið að veröld hnakkanna loksins ætla að ljúkast upp fyrir honum. Georg gengur aftur á móti illa að fóta sig utan veggja fangels- isins og leggst í heilmikla nafla- skoðun. Hann virðist kominn af röð harðstjóra, afa sem beitir dóttur sína andlegu ofbeldi, sem brýst út í uppreisn gegn feðra- veldinu þar sem Georg er gerð- ur að tilraunadýri, sem enn reyn- ir að þóknast móður sinni í einu og öllu. Bjarnfreðarson er meinfyndin mynd en melódramatískari verk en vaktaþættirnir voru: í þeim var vissulega ávallt undirliggj- andi dimmur tónn en hér er sleg- ið á fleiri strengi og kafað dýpra. Sálarskoðun Georgs er til dæmis afskaplega sannfærandi og leiðir til umbreytinga, sem Jón Gnarr leysir afar vel af hendi og ljáir persónunni þá auknu vídd sem hana hefur vantað fram að þessu. Þetta er saga sem ekki er hægt að ljúka án þess að Georg verði heill. Hann er í rauninni sá eini af þremenningunum sem gengur í gegnum slíka umbreytingu; ytri aðstæður hinna tveggja breytast vissulega, en þeir yfirstíga ekki þær innri hindranir sem Georg gerir til að ná sálarþroska. Ég er meira hugsi yfir persónu Bjarnfreðar Geirsdóttur. Í frá- bærum meðförum Margrétar Helgu hefur hún birst sem ískald- ur harðstjóri sem hefur komist til metorða hjá femínistum. Sjálfum fannst mér það gefa til kynna að Bjarnfreður sýndi á sér aðra hlið út á við (eins og harðstjórar gera) og kæmist til áhrifa í krafti þess. Þessi tvöfeldni gerði Bjarnfreði alltaf dálítið forvitnilegan kar- akter í mínum huga. Tvíræðninni sleppir hins vegar í Bjarnfreð- arsyni; í endurlitsköflum birtist Bjarnfreður einfaldlega sem kona vanheil á geði, ónýt eftir andlega misnotkun föður síns, og fyrir það líður Georg. Engu að síður er hún í fararbroddi kvenfrelsishreyf- ingarinnar á áttunda áratugnum. Þetta er tónninn sem er sleginn; kvenfrelsishreyfingin saman- stóð af geggjuðum, bitrum konum sem komu saman til að bera á sér sköpin í viðurvist barna. Það var normið í þessum hópi. Persóna Georgs Bjarnfreðarsonar er vel lukkuð ádeila á pólitískan rétt- trúnað en í honum birtast slíkar öfgar að hann er dæmdur til að vera hornreka í mannlegu sam- félagi. Þessa ókosti hefur hann frá móður sinni, en sá munur er á hlutskipti þeirra að hennar öfga- hegðun ryður henni til rúms hjá tilteknum hópi, það er að segja femínistum. Þarna snýst ádeilan á pólitískan rétttrúnað í höndun- um á höfundum myndarinnar og verður að klisju. Þetta er í rauninni sá ljóður sem kemur í veg fyrir að Bjarnfreð- arson verði ein allsherjar flug- eldasýning frá upphafi til enda; það er aldrei dauður punktur og sumar uppákomurnar eru með því alfyndnasta sem bálkurinn hefur boðið upp á. Útlit myndar- innar er afskaplega vel úr garði gert. Tónlist Péturs Ben er falleg en á köflum væmin fyrir minn smekk, en það er bæði smekksat- riði og sparðatíningur. Heilt á litið er Bjarnfreðarson afar fullnægj- andi málalok á bestu sjónvarps- þáttum sem gerðir hafa verið hér á landi. Bergsteinn Sigurðsson+ Niðurstaða: Fullnægjandi lyktir á frábærum bálki. Myndin af mömmu BJARNFREÐARSON Samskipti mæðginanna Georgs og Bjarnfreðar eru undir smá- sjánni og ljósi brugðið á fortíð leiðinlegasta manns Íslands. allt hitt dótið. Sigríður Klingenberg Ve m Sm óla. jólaspá... 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Svörtuloft Arnaldur Indriðason Mannasiðir Egill “Gillz” Einarsson Heitar laugar á Íslandi Jón G. Snæland Karlsvagninn Kristín Marja Baldursdóttir Snorri - Ævisaga 1179-1241 Óskar Guðmundsson Meiri hamingja Tal Ben-Shahar Vigdís Páll Valsson Harmur Englanna Jón Kalman Stefánsson Horfðu á mig Yrsa Sigurðardóttir Enn er morgunn Böðvar Guðmundsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 16.12.09 – 22.12.09 Unglinga- hljómsveitin Heiðurs- gestur FJÖLDASÖNGUR: MINNI KVENNA: MINNI KARLA: RÆÐUMAÐUR VEISLUSTJÓRI: Á KRINGLUKRÁNNI 1. JANÚAR 2009 FORRÉTTUR: AÐALRÉTTUR: EFTIRRÉTTUR: ‘68 Diddi Fiðla Ingólfur Margeirsson bítlafræðingur Súsanna Svavarsdóttir skáldkona Ólafur Gunnarsson rithöfundur Halldór Gunnarsson í Þokkabót Forsala miða á Kringlukránni Borðapantanir í síma 893 2323 eða á sophus@kringlukrain.is Miðaverð f. mat og dansleik aðeins 9900 kr. Miðaverð á dansleik frá kl. 23:30 3000 kr. NÝÁRSFAGNAÐUR KYNSLÓÐARINNAR Sítrusmarineruð lúða og koníakstónuð humarsúpa Andabringa með chili-kirsuberjasósu og lambafillet með rjómasoðnum kóngasveppum ásamt kartöfluturni Frönsk súkkul.kaka m. bláberjagljáa Kl. 19:00 – Fresita Engilbert Jensen FORDRYKKUR:

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.