Samtíðin - 01.04.1955, Blaðsíða 27

Samtíðin - 01.04.1955, Blaðsíða 27
SAMTÍÐIN 23 9. — Ertu fús til að taka sæti í nefndum eða gegna öðrum viðlika ábyrgðarstörfum ? 10. — Ertu fljótur að bjóðast til að vinna fyrir aðra? 11. — Ertu mikið fyrir að fylgjast með öllu, sem er að gerast á þínu félagsmálasviði? 12. — Mundirðu verða fljótur til að rétta lilut þinn, ef þú fyndir þig sniðgenginn á einhverju sviði? 13. — Ertu þægilegur viðmóts, þar sem karlar og konur eru sam- an komin? 14. — Ertu oft boðinn í sam- kvæmi ? 15. — Áttu marga vini? 16. — Er margt kvenfólk meðal vina þinna? 17. — Tekur þú þér oft fram um að kynnast fólki eða endurnýja kunningsskapinn við fólk, sem þig langar til að kynnast betur? 18. — Gerist þú oft hvatamaður þess, að aðrir hefjist handa um eitthvað, sem þú þykist viss um, að þið munuð hafa ánægju af að fram- kvæma í félagi? 19. — Er þér sú gáfa léð að vera háttvís i framkomu og segja alltaf það, sem við á? 20. — Áttu tilkall til þess, að meiri hluta þess fólks, sem þú umgengzt af háðum kynjum, líki vel við þig? GEFÐU ÞÉR fimm stig fyrir hvert „JÁ“. 70 stig eru mjög góð einkunn, og hvað þú færð yfir 60 stig er ágætt. 50—60 stig eru nægileg, 40—50 stig léleg einkunn. Fáirðu undir 40 stig- um, liefurðu ekki staðizt prófið. ÞAKJÁRN ÞAKPAPPI ÞAKSAUMUR PAPPASAUMUR ÞAKGLUGGAR MÚRHÚÐUNARNET SAUMUR alls konar Hafnarstræti 19. — Sími 3184.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.