Samtíðin - 01.11.1957, Page 9
SAMTÍÐIN
5
Augun bláu, augnn bláu
bliðu mér tjá.
Augim dökku, augun dökku
dreymandi þrá.
Svannabros er sveini
sölargeisli kær.
Forlög ráða rúnir þær,
hver rósirnar fær.
Bjössi kvennagull
(Poppa Piccolino)
Við birtum vegna áskorana eftirfarandi
texta:
Sungið af Hauk Morthens á HMV plötur.
Birt með leyfi Fálkans h.f.
Hver ekur eins og ljón með aðra hönd á
stýri?
Bjössi á mjólkurbílnum,
Bjössi á mjólkurbílnum.
Hver stígur benzinið í botn á fyrsta gíri?
Bjössi á mjólkurbilnum, —
hann Bjössi kvennagull.
Við brúsapallinn bíður hans mær,
„Hæ, — Bjössi, keyptirðu þetta í gær?“
Og Bjössi hlær: „Ertu öldungis ær, ...
alveg gleymdi ég því.
— Þér fer svo vel að vera svona æst,
en vertu nú stillt, — ég man þetta næst.
Einn góðan koss, svo getum við sætzt
á ný ...“
Hann Bjössi kann á bíl og svanna tökin,
við brúsapallinn fyrirgefst mörg sökin ...
Hver ekur eins og ljón ...
E. Guðmundsson.
Frúin: „Áöur létuð þér yður nægja
að hafa einn karlmann hjá yður á
kvöldin, en í gærkvöldi höfðuð þér
tvo.“
Stúlkan: „En kvöldin eru nú líka
svo löng núna í skammdeginu.“
Frá Þjóðleikhúsinu
KVIKMYNDALANDIÐ Bandaríki Norð-
ur-Ameríku hefur einnig orðið vagga
merkilegrar leikritagerðar. Hafa kvik-
myndirnar haft veruleg áhrif i þvi efni.
Þjóðleikhúsið sýnir nú þriðja áhrifamikla
leikinn eftir eitt af athygliverðustu yngri
leikritaskáldum Bandaríkjanna, Arthur
Miller. Nefnist leikurinn á íslenzku: Horft
af brúnni. Dr. Jakob Benediktsson hefur
þýtt leikritið á íslenzku, Lárus Pálsson
annast leikstjórn, og hefur hvort tveggja
vel tekizt. Mikla athygli vekur meðferð
Róberts Arnfinnssonar á hlutverki Eddies
Carbones. Myndin er af Róbert í gervi
Carbones. Sýning þessa örlagaleiks má
teljast menningarviðburður.
TÖKUM myndir við öll tækifæri.
Ljósmyndavinnustofa
Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10-297. Pósth. 819.