Samtíðin - 01.11.1957, Síða 10
6
SAMTÍÐIN
ILM
aumaópumm^ar
Samtífaí
armnar
SAMTÍÐIN veitir þrenn verðlaun fyrir
rétt svör við þrem eftirfarandi spurninga-
flokkum, 1. verðlaun 100 kr., 2. verðl. tvo
eldri árganga af Samtíðinni og 3. verðl.
einn eldri árgang. Skilyrði fyrir verðlaun-
um eru þau, að rétt svör við öllum spurn-
ingunum hafi borizt okkur fyrir 20. nóv.
Sendi fleiri en einn réttar ráðningar, verð-
ur dregið um, hver hlýtur 1., 2. og 3. verð-
laun.
I. Stafaleikur
Hér á aðeins að skipta um einn
staf frá orði til orðs. Við gefum ykk-
ur efsta orðið og merkingu orðanna,
sem þið eigið að setja í stað punkt-
anna, þannig að i neðsta orðinu liafi
verið skipt um alla stafi efsta orðsins.
arfi Merkingar:
____ minningarathöfn
---- striði (so.)
____ baun
____ veita eftirför.
II. Stafagáta
X
X X
X X X
X X X X
X X X X X
X X X X X
X X X X X X
X X X X X X
Setjið bókstafi í stað X'anna»
þannig að út komi: 1. lína bók-
stafsheiti, 2. 1. hróp, 3. 1. gæfa, 4. 1.
kvenmannsnafn, 5 1. hafna, 6. 1. upp-
vaðslan, 7. 1. andlega sinnaður, 8.
1. sitja tveir á hestbaki. — Sé lesið
niður eftir, mjmda fremstu stafir lín-
anna: hátíðarnótt.
III. Já eða nei
1. Er skáldsagan Upp við fossa eftir
Guðmund Friðjónsson?
2. Fann dr. Jonas E. Salk upp bólu-
efni gegn berklum?
3. Átti Jóhann Sebastian Bach 20
börn ?
4. Eru Þjóðverjar orðaðir við laulc-
súpuát ?
5. Var Grettir fimmtugui’, þegar
hann var veginn?
Ráðningar verða hirtar í næsta
hefti.
Hún: ,,Vi<5 höfðum það svo yndis-
legt alla nóttina, og daginn eftir
hringdi hann og bað mig fyrirgefn-
ingar.“
„Drekkur Högni?“
,,Eg býst við því. Um dagvnn sagði
hann að minnsta kosti, þegar við
komum suður að Kleifarvatni, að það
væru nokkrir sjússar í vatninu því
arna.“
Raflagnir. — Viðgerðir.
Vönduð vinna. — Fljót afgreiðsla.
Raf tæki avinmistof a
Þorláks Jónssonar h.f.
Grettisgötu 6. — Sími 14184.