Samtíðin - 01.11.1957, Blaðsíða 12
8
SAMTÍÐIN
trufli ást ykkar hjónanna, ef þið gæt-
ið þess að taka það nógu ungt og þú
getur kennt manni þínum að elska
það strax og leika sér við það. Með
heztu hamingjuóskum. — Þín Freyja.
★ Eins og rekald
BIRNA skrifar: Freyja min. Ég er
alveg í öngum mínum. Mér finnst ég
vera eins og rekald á lífsins ólgusjó.
Ég er orðin 38 ára, hef tvisvar verið
gift og skilið við háða mennina eftir
barnlaust hjónaband. Síðan lief ég
haft náin kynni af ýmsum karlmönn-
um, en orðið dauðleið á þeim öllum.
Mér finnst þeir allir hafa verið meira
og minna hilaðir, þér að segja. Nú
þrái ég að giftast, en það er eins og
áhuginn fyrir karlmönnum dvíni hjá
mér, eftir að ég hef þekkt þá um
nokkurt skeið. Heldux-ðu, að það stafi
af því, að ég hef ekki eignazt barn?
Hvað ráðleggur þú mér ?
SVAR: Ég held, að barn sé auka-
atriði í þessu máli. Reyndu að gera
ögn minni kröfur til karlmannanna
og meiri kröfur til sjálfrar þin, og
vittu, iivernig fer. — Þín Freyja.
★ Fegrun og snyrting
LILJA, 16 ára, skrifar og spyr um
ýmislegt varðandi fegrun og snyrt-
ingu.
SVÖR:
1. Það er óþarfi fyrir þig að lita
augnhárin. Berðu lieldur vaselin á
þau á kvöldin, og sjáðu, hvort þau
prýkka ekki.
VEL KLÆDD kona kaupir hattana í
Hattaverzluninni „Hjá Báru‘%
Austurstrætj 14, Sími 15222,
2. Ég mæli með kremi frá Helenu
Rubinstein og púðri frá Jean de
Grasse snyrtistofunni i Rvík.
3. Varalitur þinn virðist góður. —
Notaðu skæran, rauðan lit.
4. Allir hrúnir litir klæða þig, en
einnig rauðir og bláir.
5. Ætli Toniheimapermanent verði
ekki hentugast fyrir þig. Kauptu
stinnan bursta og hurstaðu húðina á
morgnana, er þú liefur þvegið þér
eða haðað þig, einkum þar, sem þú
vilt grennast. Eftir nokkuð langan
tíma muntu sjá mikinn árangur. —
Nuddaðu hendurnar upp úr glýserín-
spíritus á kvöldin. Þær hvítna líka á
því að dýfa þeim í heitt og kalt vatn
á víxl. — Kær kveðja. Þín Freyja.
+ Öskaþáttur okkar
BRÉF eru þegar farin að herast, þar
sem lesendur kvennaþáttanna láta
í ljós ánægju sína yfir útsaums-
mynztrunum, sem við byrjuðum að
hirta í seinasta hlaði. Öskir liafa enn
fremur horizt um prjónamynztur, og
birtum við liið fvrsta hér:
Sigurður Reynir Pétursson
hœstaréttarlögmaður.
Austurstræti 14. Símar 22870 og 19478.