Samtíðin - 01.11.1957, Qupperneq 17
SAMTIÐIN
13
liann, „það er kalt. Ég held það hafi
hlotið að slá að mér eða ég sé að
kvefast.“
Andartak horfði hún á hann,
stundi við, tók svo' frakka ofan af
herðatré og rétti honum.
„Hérna,“ sagði liún liljómlausri
röddu. „Farðu í þetta og hypjaðu þig
svo héðan, áður en ég kalla á hjálp.“
Án þess að mæla orð frá vörum
fór hann i frakkann, lahbaði niður
þrepin og hvarf út á vellina. Tungl
var fullt og gaf frá sér gullna birtu.
Hún gekk löturhægt niður tröppurn-
ar, leysti hundana og horfði á þá
þjóta út á vellina eins og grannvaxna,
spengilega úlfa. Að þvi húnu gekk
hún aftur upp þrepin og læsti dyrun-
um. Það var enn glaða tunglsljós.
Snemma morguninn eftir færði
dökkleit, þrekvaxin tatarakona úr
vagni þar i grenndinni henni frétt-
irnar.
„Ökunnur maður hefur fundizt
dauður, Rósa,“ sagði hún, „i glóandi
lynginu, sundurtættur af hundunum
þínum, alveg eins og margir segj a, að
þeir hafi einu sinni banað manninum
þínum. — Er það ekki undarlegt?“
„Ef til vill,“ sagði hún svo lágt, að
enginn hefði getað heyrt það nema
hún sjálf, „og þó ekki svo skrítið,
þvi liann var i frakkanum hans.“
Frúin: ,,Þa5, sem fitar mann, eni
þessar sífelldu leifar, sem ekki tekur
að geyma, en óviðkunnanlegt er aö
fleygja.“
Húfugerð. Herraverzlun.
1». EYFELD
Ingólfsstræti 2, Reykjavík. Sími 10199.
Drauvnaráðningar
• IS. Það veit á hugarangur, ef
þig dreymir, að þú sért að éta ís.
• VARÐHALD. Ef þig dreymir,
að þú dúsir í fangaklefa, mun þér
mikill fögnuður í vændum.
• MYKJA. Það veit á illt, ef þig
dreymir, að þú sért að bera mykju
á tún, nema þú hafir það starf með
höndum, þegar svo her undir.
• ÞORSTI. Það er fyrir góðu,
ef þig dreymir, að þú svalir þorsta
þínum með tæru vatni. Sé vatnið
hins vegar gruggugt, er það fyrir
óheppni.
• HJÚKRUN. Ef þig dreymir,
að þú sért að hj úlcra barni eða hlynna
að því, mun þér brátt verða trúað
fyrir ánægjulegu starfi, sem þú lief-
ur lengi óskað þér.
FRÆCiIR ORÐSKVIÐIII
Hneigðu þig fyrir auðnum, og hann
mun brátt heimta, að þú kyssir fót
sinn.
Öttastu ekki ókominn dag.
Hygginn maður hneigir höfuðið;
tréð, sem ber ávexti, beygir sig dýpst.
Rétta aðferðin til að drepa tím-
ann er að vinna hann í hel.
Þögn er vissari en sögn, þegar ó-
vinir vorir heyra til.
Dygðugt líf er varanlegasti minn-
isvarðinn.
Húsgagnasmíöastofan LaUgaveg 34b
selur ávallt góð og ódýr húsgögn. Tekur
einnig gömul húsgögn til viSgerðar. —
Fljót og góð afgreiðsla. Sími 18461.