Samtíðin - 01.02.1958, Blaðsíða 9
SAMTÍÐIN
5
Á heið-kvöldum, síðan, má sjá út í geim
þessa sovét-listamenn
með flaugar og hunda á fjarstýrðu rokki
og flögrandi' í kringum oss enn.
Viðlag: Já, Rokk og ról,
er hnoss, sem vor heims-
menning ól.
Já, Rokk og ról,
þú listanna lýsandi sól!!!
*
Oskalandið okkar
Texti eftir Böðvar Guðlaugsson. Ingi-
björg Smith syngur á HMV plötu nr. JOR
239. Birt með leyfi Fálkans hf. Eftir-
prentun bönnuð.
Þú kemur með mér, vinur kær.
Lengst 1 suðri, fyrir handan höf og lönd,
rís úr hafi bláu ævintýraströnd,
þar er óskalandið okkar, vinur kær.
Ýfist sær, öldufald klýfur glæstur knör,
okkur tvö yfir sæ ber á brúðkaupsför.
Og við safírbláan vog, þar sem gullið
aldin grær.
loks við göngum tvö á land, vinur kær.
Villta þrá vakið fá suðræn sólarlönd,
með sedrusvið, eplatré, hvíta pálmaströnd.
Þar við nema skulum land, byggja
bambusskýli lágt,
og búa þar við guð og menn í sátt.
Þar verður gott að lifa, þar verður
elskað heitt,
þar verður hverju angri í ljúfa sælu breytt.
Og þegar tímar líða fram, mun margt
töfrum slungið kvöld
tifa um hvítan sandinn barnafjiild.
Segið öðrum fráSAMTÍÐINNI
Vá erurn meÉ d notunum
Hljómplötur og músíkvörur.
Afgreiðum pantanir um land allt.
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgasdóttur,
Vesturveri, Reykjavík. — Sími 11315.
W Ástamát W
Á stfangin kona vill allt annað fyr-
ir mann sinn gera en Inætta að gagn-
rýna hann. Það, sem fyrir henni vak-
ir, er að gera meiri mann úr honum.
— J. B. Priestley.
Ástin má sín meira en velmegun,
fjársjóðir og auðæfi, en hún þarfn-
ast þeirra engu að síður. Ekkert er
hræðilegra fyrir næmgeðja elskanda
en að þurfa sakir fjárskorts að leggj-
ast svo lágt að grípa til aðferða, sem
þeim lakari menn eru vanir að beita.
— Prévost ábóti.
Konan var sköpuð úr rifi úr síðu
mannsins, til þess að hann skyldi á-
vallt verndá hana við brjóst sér og
elska hana af öllu hjarta. — Matt-
hew Henry.
Ástin kemur bæði miklu góðu og
illu til leiðar .... Þunglynt fólk er
einna bezt fallið til ásta. Oft er þann-
ig að orði komizt, að ýstfanginn og
dapur séu samnefni; en ástin ein
megnar að skapa þá hryggð, sem er
laus við óþægindi. — Frú de Lambert.
Enginn þekkir orsakir ástarmnar,
en allir afleiðingar hennar. Hún hef-
ur haft áhrif á gang heimsmálanna,
sigrað stjórnendur þjóðanna, heri og
heilar þjóðir. Ef nefið á Kleópötru
hefði verið styttra, mundi saga ýmsra
landa hafa orðið öll önnur en raun
ber vitni. — Pascal.
Vindurinn þýtur og veggina ber.
Komdu til hennar Hervarar
kveðju frá mér.
Húfugerð. Herraverzlun.
MK EYFELD
Ingólfsstræti 2, Reykjavík. Sími 10199.