Samtíðin - 01.02.1958, Blaðsíða 11
SAMTÍÐIN
/
Kvennaþættir Samtíðarinnar — Jreyja
ÉG ÓSKA ykkur öllum, kæru les-
endur, gleðilegs nýárs og þakka hlý-
leg bréf og áramótakveðjur, sem mér
hafa horizt. Ég hlakka til samstarfs-
ins við ykkur á þessu ári og sný mér
fyrst að:
Snyrting vetrarins
HÚN er yfirlætislausari en maður
hefur átt að venjast að undanförnu.
Litirnir eru ljósir, án þess þó að vera
fölir. Ef þið teljið nauðsynlegt að
mála ykkur kringum augun, skuluð
þið forðast að smyrja of þykkt á
húðina, því að þá verðnr svipurinn
þungíamalegri. Auðvitað leyfist allt-
af að gera meira að þessu, áður en
farið er út á kvöldin, en sem sagt:
gerið það umfram allt smekldega og
hófsamlega.
Hér eru nokkur dæmi um tizku-
liti andlitssnyrtingarinnar.
Harriet Hubbard Ayer gefur þess-
ar reglur viðvíkjandi litum sínum:
Undirlagið émake) sé sólbrúnt, púð-
ur brúnbleikt, kinnarlitir hleikir,
augnaskuggar grænleitir eða blágrá-
ir, augnalokin blýantsgrá eða svört,
augnhár brún eða svört, varalitur
skærrauður.
Revlon gefur upp þessa liti: Undir-
lag(make) fílaheinslitt eða ljóshrúnt,
púður í sama lit, augnalok blá, græn
eða svört, augnabrúnir dökkbrúnar,
varalitur rauðhlár.
Helena Rubinstein segir: Undir-
lagið (make) sé silkivatnslitt. Púðr-
ið segir hún líka, að eigi að vera
vatnslitt, augnalok í sama lit og aug-
un, augnhár svört, en varaliturinn
skærrauður og lýsandi.
■fc Lifnaðarhættir Lily Pons
FRANSKA óperusöngkonan heims-
fræga, Lily Pons, eyddi sumarleyfi
sínu 1957 á Suður-Frakklandi. Venju-
lega hefur hún eytt leyfunum á Flór-
ída,'en þar er hún heiðursborgari og
nýtur ýmsra sömu réttinda og sjálf-
ur Eisenhower forseti.
Söngkonan hefur brennandi áhuga
á húsagerðarlist og austurlenzkum
listmunum. Hún hefur nýlega reist
sér sérkennilegt hús í eyðimörku vest-
ur í Kaliforníu. Uppdráttinn að hús-
inu gerði hún sjálf, en það likist
einna helzt austurlenzku musteri.
Þakið er eins og lögregluhúfa, húsa-
garðurinn lagður rauðum tígulsteini,
loftin öll skreytt, húsgögn og gólf-
teppi í austurlenzkum litum.
„Ég get ekki lifað nema í þessu
lilýja og leyndardómsfulla, austur-
lenzka umhverfi,sem er andlega slcylt
mér,“ segir söngkonan. „Ég hef oft
ferðazt um austurlönd, lönd hinnar
göfugu menniugar, þar sem timinn
stendur kyrr, vegna þess að mann-
inum finnst hann vera í tengslum
við sjálfa eilífðina.“
Framleiðum lcápur og dragtir úr tízlcuefnum eftir sniðum frá
þekktustu tízkuhúsum heims. — Sendum gegn póstkröfu.
ií Á P A N H.F. Laugavegi 35. — Sími 14278.