Samtíðin - 01.02.1958, Side 17

Samtíðin - 01.02.1958, Side 17
SAMTÍÐIN 13 Já, Ebbi. ÞaÖ fór hitabylgja um hana alla. ÞaÖ var von á Ebha heim úr verzlunarferð á morgún. Daginn áð- ur en hann fór, höfðu þau farið inn í vínstúku og drukkið þar skilnaðar- skálina . . . Mest langaði hana til að loka augunum og lifa allt þetta aftur í endurminningunni, en þá var þess að gæta, að þarna sat Tómas, svo að hún varð að láta það biða, þangað til hann væri farinn. „Hvað ætlar þú að gera i dag, væna mín?“ spurði hann. Hann var nú staðinn upp og ýtti stólnum var- færnislega á sinn stað. Það fór hrollur um hana, þegar stóllinn skóf steingólfið. Var hún við- kvæm, þrátt fyrir allt? Tómas stóð bak við stólinn og horfði á liana, þrekvaxinn, lierðibreiður maður, heldur lægri en í meðallagi, liárið stálgrátt, augun hliðleg bakvið þykk gleraugun. „Ég ætla til augnlæknisins að láta rannsaka í mér augun, eins og þú veizt,“ anzaði hún, eins og ekkert væri. — „Það er vel til, að ég eigi að nota gleraugu við lestur . . . Til allrar hamingju getur maður víst fengið fallegar umgjörðir um þau, svo það sakar lítið. Annars veit ég svei mér ekki“ . .. Hann spurði einskis frekar. Yfir- leitt var hann alveg hættur að spyrja hana nokkuð að ráði um, hvað hún liefði fyrir stafni þessa löngu morgna, meðan liann var sjálfur í verksmiðjunni. Ungfrú Ólsen annað- ist öll lieimilisstörfin, og garðinum hafði Ingiríður engan áhuga fyrir. Svör hennar við spurningum Tóm- asar voru heldur aldrei afdráttarlaus: Einn daginn þóttist hún ætla að drekka te með vinkonu sinni, annan daginn ætlaði hún til ldæðskerans, eða þá hún þóttist ætla að máta hatt eða fara á lokaæfingu i leik- húsi . . . Nei, hapn var steinhættur að spyrja hana eins og í gamla daga. Öðru ' hverju hafði hann séð liana ganga yfir götuna í áköfum samræðum við ungan og laglegan mann, sem hann þekkti ekki. Hann var ekkert að brjóta heilann um það . . . Það var ósköp eðlilegt, að hún þekkti marga, sem hann vissi engin deili á. . . . Hann var svo önnum kafinn við störf sín, að hún varð oft að fara í samkvæmi án hans . . . Hún muldraði eitthvað í kveðju- skyni án þess að líta upp. En þegar hún heyrði útidyrnar skellast á hæla honum, stóð liún upp og gekk út á svalabrúnina. Þegar hún sá hann niðri á veginum, kallaði hún lágt: „Skemmtu þér nú við vinnuna þína!“ Hann nam andartak staðar og leit upp til hennar, og hún veifaði hon- um. Hún gleymdi aldrei að kveðja hann á þennan hátt, en reyndar var sú kveðja engu síður vegna grann- konu hennar . . . en Tómasar . . . Hún var í ljómandi skapi, þegar hún gekk í hægðum sínum eftir göt- unni áleiðis til auglæknisins. Henni fannst hún alveg kornung í einfaldri, en glæsilegri, ljósblárri göngudragt- inni sinni. Henni var það líka full- ljóst, að hún leit miklu fremur út fyrir að vera þrítug en 42 ára. Við hlið Tómasar leit hún alltaf út fyrir að vera skólatelpa . . . einkum þeg- ar hún var svona greidd. Hún féklc

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.