Samtíðin - 01.02.1958, Side 18

Samtíðin - 01.02.1958, Side 18
14 SAMTÍÐIN svolítinn sting í hjartað, þegar lienni varð liugsað til Tómasar. „Hann er alveg gull af manni til,“ var liún alltaf vön að segja, þegar hún tal- aði um manninn sinn við vinkonur sinar. Það kom aldrei fyrir, að þau rif- ist ... Hún hafði heldur ekki sér- lega slæma samvizku, þó að hún væri að gantast við aðra karlmenn, þegar svo har undir. Sennilega hafði hann enga hug- mynd um það . . . Að minnsta kosti lét hann eins og ekkert væri. Og urn það, sem þeim Ehba hafði farið á milli, vissi hann áreiðanlega alls ekki neitt. Ebbi og hún liöfðu alltaf ver- ið framúrskarandi varkár . . . nema í þetta eina sinn, þegar Tómas hafði verið í London. Þau höfðu borðað miðdegisverð saman, og þau höfðu setið og beðið þess, að ungfrú Ölsen kæmi inn með kaffið. Aðeins eitt andartak höfðu þau gleymt sér og kysstst . . . Og í sama vetfangi stóð ungfrú Ólsen þar í hvítum búningi, stokkrjóð í framan, eins og refsandi engill. Hún flýtti sér að láta kaffi- könnuna á borðið og hvarf fram í eldhúsið. Dyrunum hafði hún lokað harkalega og einbeitnislega á eftir sér. Ebhi hafði brosað hálfvandræða- lega, og sjálf liafði hún orðið fok- vond ... Hún var þó viss um, að ungfrú (Ólsen hafði ekld sagt frá þessu, en samt hafði það verið skrambi óviðkunnanlegt. Hún varð að bíða lengi lijá augn- lækninum, og andrúmsloftið í bið- stofunni fór í taugarnar á henni. Það var eins og það boðaði allt illt. Þarna sat illa klædd móðir með litla drenginn sinn í kjöltunni. Hann var með svarta pjötlu fyrir öðru auganu, og litlu hendurnar hans voru óþvegn- ar. Drengurinn litli var kjökrandi, og móðir lians dillaði honum blíð- lega. Hendur móðurinnar voru rauð- ar og hörundið undarlega hrukkctt. Ingiríði varð ósjálfrátt litið á hend- urnar á sér, sem hvíldu á borðplöt- unni eins og tvö bleik blóm . . . Demantshringirnir blikuðu eins og daggarperlur. Það var liðið kort yfir þann tima, sem ákveðinn hafði verið. Þegar að- stoðarstúlka læknisins kom fram í dyragættina, reis Ingiríður á fætur og sagði hátt: „Ég heiti Anning forstjórafrú. Ég átti að liitta lækninn ldukkan 12.“ „Lækninum hefur seinkað. Viljið þér gera svo vel og bíða, þangað til röðin kemur að yður?“ Að svo mæltu kinkaði stúlkan kolli til móðurinnar með barnið og sagði: „Gerið þið svo vel.“ Niðurlag í næsta hefti. Tveir fullir menn óku í bíl. Annar sagöi: ,,Hér er nú betra aö aka var- lega, því nú erum við aö nálgast bæ- inn.“ „Hvemig veiztu það?“ spurði hinn. „Nú, ég er alltaf að aka yfir fólk.“ Og nokkru seinna: „1 öllum bænum aktu nú varlega, þvi nú erum við komnir inn í borg- ina.“ „Aki ég varlega,“ anzaði félagi hans. „Eg veit ekki betur en það sért þú, sem situr við stýrið,“

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.