Samtíðin - 01.02.1958, Page 20

Samtíðin - 01.02.1958, Page 20
16 SAMTÍÐIN ■uSniundur cJLöue : BARÁTTUSAGA ÚR SKAMMDEGINU SAMBAND íslenzkra berklasjúkl- inga gerir fleira en reisa heilt hverfi af verksmiðju- og íbúðarhúsum að Reykjalundi og reka þar vinnuheim- ili, sem vekur sívaxandi athygli víða um lönd. Sambandið er einnig sífellt á varðbergi, viðbúið að liðsinna og miðla kjarki og bjartsýni, ef berkl- arnir herja á heimilin. Yið Guðmundur Löve, félagsmála- fulltrúi SlBS, hittumst um jólin í skrifstofu hans í Austurstræti, og hann sagði: „Eftir að við sáum Reykjalund rísa, fórum við að hugsa meira um þá, sem eklci þurftu á vist þar að halda, einkum i sambandi við at- vinnuútvegun, húsnæðismál, skulda- kröfur, skatta o. s. frv., sem lá þeim þyngst á hjarta. Það, sem mörgum gömlum berklasjúklingi fannst ó- leysanlegt, reyndist okkur oft auð- leysanlegt — jafnvel með einu sím- tali. Það er oft þægilegra að leysa vandamál annarra en sjálfs sín. Þó koma fyrir mál, sem reynast örðug viðfangs. En fólkinu er ómetanlegur styrkur að því að vita SlBS eins og skjólgarð hak við sig. A: Nú er það. skæruhernaðurinn Fyrir 1946 var hvert rúm skipað í herklahælunum. Oft náðist þar frá- hær árangur. En með tilkomu nýju lyfjanna gerhreyttist ástandið. Áður voru upp undir 210 sjúklingar á Víf- ilsstöðum. Nú eru þar aðeins milli 80 og 90, og þó fara þangað þeir, Guðmundur Löve sem áður hefðu verið látnir liggja heima vegna þrengsla á liælinu. Is- lenzkir berldalæknar hafa alltaf fylgzt mjög vel með nýjum aðgerð- um og lyfjum, sem fram hafa kom- ið erlendis, og berklalyfin hafa oft fengizt hingað fyrr en til nokkurs hinna Norðurlandanna. Helgi yfir- læknir Ingvarsson sagði á sextugs- afmæli sínu, að aðalorrustan við berklaveikina hér á landi væri að vísu unnin, en eftir væri skæruhernaður- inn, sem krefðist sífelldrar baráttu og það ef til vill lengi enn.“ 'A' Sagan af bágstöddu f jölskyldunni Og svo var Guðmundur kominn að sögunni úr skammdeginu, sem reyndar er nú hálfgerð jólasaga, vegna þess Iive gott útlit er fyrir, að hún ætli að fara vel. En sagan

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.