Samtíðin - 01.02.1958, Síða 21

Samtíðin - 01.02.1958, Síða 21
SAMTIÐIN 17 er enn í sköpun, eins og þið sjáið. — Guðmundur sagði: „Ég var staddur inni i Heilsu- verndarstöð. Annar læknanna, sem starfa þar að staðaldri, bað mig að tala við sig. Hann var svo alvarleg- ur á svipinn, að mér brá í brún, og satt að segja flaug mér í bug, að ég væri sjálfur í bráðri hættu staddur. Hann sagði mér þá, að nú þyrfti á skjótri aðstoð SlBS að halda, því að mjög alvarlegt berklatilfelli hefði gosið upp hér í bænum í eld- gömlum, óvistlegum timburhjalli. Heimilisfaðirinn reyndist berklaveik- ur. Veikindi bans höfðu komið i Ijós við skoðun á fjölskyldunni, eftir að tilkynning liafði borizt um, að eitt af börnum bans, sem statt var nvrðra, hefði reynzt jákvætt við berklapróf- un skólabarna. Við skoðun á fjöl- skyldunni kom einnig í ljós, að þrjú börn af f j órum hér syðra höfðu einn- ig sýkzt af föður sinum, en hann hafði enga hugmynd um sjúkdóm sinn, taldi sig aðeins vera með vont lcvef. Kona hans hafði strax bugazt við þessar ömurlegu fréttir, en maður- inn hafði harkað af sér. Læknirinn bað mig nú að líta þegar til fjöl- skyldunnar og gera fyrir hana það, sem í okkar valdi stæði. ömurleg aðkoma Þegar ég lcom inn í íbúð f j ölskyld- unnar þennan sama dag, var þar öm- urlegt um að litast. Ibúðin var ekki nema um 30 fermetrar, og þarna höfðu þau átt heima — sjö talsins! Heimilisfaðirinn lá í rúminu, og þó hann hefði borið sig vel inni i Heilsu- verndarstöð, þegar honum var sagt, hvernig komið væri fyrir honum, var hann nú í mjög þungu skapi. Börn- in voru öll inni, enda sum ineð hita, og það hvíldi eins og mara á heim- ilinu. Ég kvaðst vera kominn frá SlBS og sagði, að allt starfsfólk þess þekkti berklana af eigin reynd. I dag væri það ég, sem kæmi fjölskyldunni til aðstoðar, á morgun gæti bún allt eins vel komið i sömu erindum til min. Mér var það undir eins ljóst, að hér var fjárhagsleg vá fyrir dyrum, enda var hinn sjúki heimilisfaðir fá- tækur daglaunamaður. Innan SlBS er til sjóður, sem not- aður er til styrktar, þegar miklir örð- ugleikar steðja að. Hann hefur aðal- tekjur sínar af seldum minningar- spjöldum. Ég kvaðst mundu útvega fjölskyldunni styrk úr þessum sjóði, skrapp niður í skrifstofu okkar, hafði samband við formann sjóðsins og fékk þegar 1500 kr. og loforð um meira, þegar stjórn sjóðsins hefði komið saman. Þessa peninga færði ég fjölskyldunni undir eins. Við það var eins og stórum birti yfir heim- ilinu, og þegar ég fór, veifuðu börn- in mér brosandi út um gluggana. Skjótar aðgerðir Ákveðið var, að maðurinn færi taf- arlaust að Vífilsstöðum og tvö barn- anna með honum. Barnið, sem var fyrir norðan, fór á Kristneshæli, en yngsta barninu var komið fyrir á góðum stað, því að læknarnir töldu íbúð fjölskyldunnar heilsuspillandi fyrir það. Konan og elzta barnið voru

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.