Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 35
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FLUGELDAR.IS er vefsíða Landsbjargar þar sem
hægt er að fá upplýsingar um sölustaði flugelda, vöru-
lista og öryggisatriði sem hafa ber í huga í umgengni við
skotelda. www.flugeldar.is
Auður Nanna hefur bæði búið í
London og heimsótt hana marg-
sinnis. Hún bjóst því ekki við því
að kynnast glænýrri hlið á borg-
inni. Í sumar sem leið heimsótti
hún vin sinn sem býr í bát í Reg-
ent´s Canal við Marylebone og gisti
hjá honum í nokkra daga.
„Vinur minn býr í bát í þessu
hverfi, og nágrannar hans eiga líka
báta og búa og gista í þeim allan
ársins hring. Þetta er skemmtilegt
og óvenjulegt samfélag, jafnvel
fjölskyldufólk sem velur sér þenn-
an lífsstíl,“ segir Auður en báta-
hverfið er ekki neyðarúrræði held-
ur einmitt eins og Auður orðar það
– val á lífsstíl – því bátarnir eru
mjög dýrir og hverfið sem þeir eru
staðsettir í þykir líka mjög fínt.
„Bátaeigendur geta siglt um
alla bátaskurði borgarinnar og
ferðast þannig borgarenda á milli
og Auður prófaði sjálf að ganga
meðfram skurðunum inn í Cam-
den. „Það var magnað, bæði heyr-
ir maður ekki í neinni bílaum-
ferð og nýtur þess að horfa upp á
stór einbýlishúsin sem standa við
bátaskurðina. Þetta var algerlega
ný upplifun á borginni og ég mæli
með því að ferðamenn sem þekkja
London vel prófi að fá sér göngu-
túr sem þennan. Svo þegar ég kom
til baka var bátaeigandi á næsta
bát kominn heim úr vinnunni, með
franska osta og pylsur sem hann
selur, og við eyddum síðdeginum
uppi á dekki með rauðvín, osta og
pylsur.“
Auður segir bátaþorpið litla ein-
kennast af því að allir þekkist og
hægt sé að hlaupa í næstu báta til
að fá lánaðan sykur og egg ef vant-
ar.„Það var mjög gott að gista í
bátnum um sumar en mér fannst
það heldur kalt þegar ég kom í bát-
inn nú um vetur en þetta er samt
mjög sjarmerandi og gaman að
prófa gistingu af þessu tagi.“
juliam@frettabladid.is
Sá London í nýju ljósi
Auður Nanna Baldvinsdóttir orkufræðingur taldi sig þekkja borgina London nokkuð vel, meðal annars
eftir margra ára búsetu þar. Hún kynntist hins vegar nýrri hlið á borginni nú í sumar.
Auður Nanna Baldvinsdóttir
átti einstaka dvöl í London nú í
sumar þegar hún gisti í báti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI
SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát
· Stórt op > auðvelt að hlaða
· Sparneytin
12 kg
Þvottavél
og þurrkari
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki