Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 4
4 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
ALÞINGI Alþingi kýs í dag nefnd níu þingmanna
til að gera tillögur um viðbrögð Alþingis við
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Þessari
nefnd er meðal annars ætlað að taka afstöðu til
þess hvort tilefni sé til að höfða mál gegn ráð-
herrum fyrir Landsdómi fyrir brot á lögum um
ráðherraábyrgð í aðdraganda bankahrunsins.
Þingmannanefndin mun fá skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis til meðferðar í janúarlok.
Hún hefur síðan tíma til septemberloka 2010 til
að gera tillögur um viðbrögð Alþingis.
Ríkisstjórnarflokkarnir hafa ekki meirihluta
í þingmannanefndinni eins og í öðrum nefndum
Alþingis því stjórnarandstaðan mun þar skipa
fimm af nefndarmönnunum níu. Framsóknar-
flokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samfylking og VG
munu hver eiga tvo fulltrúa en níundi nefnd-
armaðurinn kemur úr þingflokki Hreyfingar-
innar. Síðdegis í gær höfðu allir þingflokkar
nema sjálfstæðismenn tilnefnt sína fulltrúa.
Nöfn væntanlegra nefndarmanna eru birt hér
til hliðar.
Með lögunum, sem Alþingi setti í gær, var
ákveðið að kosning þingmannanefndarinnar
skuli rjúfa fyrningu hugsanlegra brota á lögum
um ráðherraábyrgð á sama hátt og ef þing-
ið hefði kosið sérstaka rannsóknarnefnd til að
fjalla um embættisbrot ráðherra. Brot á lögum
um ráðherraábyrgð fyrnast almennt á þremur
árum. Lögunum frá í gær er ætlað að lengja
þann frest um allt að eitt ári.
Þingmenn Hreyfingarinnar sátu hjá en þing-
menn úr öðrum flokkum stóðu að afgreiðslu
málsins í gær. Breytingartillögur Þórs Saari,
fyrir hönd Hreyfingarinnar, um að nefnd
fimm valinkunnra einstaklinga utan þings yrði
falið að fjalla um mál sem snerta þingmenn,
ráðherra og fjölskyldur þeirra, vöktu hörð
viðbrögð.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Samfylkingu,
Þuríður Backman, VG, og Siv Friðleifsdóttir,
Framsóknarflokki, lögðust á eitt um að mót-
mæla málflutningi Þórs. Siv sagði tillögur hans
sýndarmennsku. Óþolandi væri að sitja undir
því hvernig Þór Saari talaði niður til þing-
manna og „sýndi Alþingi puttann“.
peturg@frettabladid.is
Níu þingmenn eiga að vinna
úr rannsóknarskýrslunni
Alþingi kýs í dag níu manna þingnefnd sem gera á tillögur um viðbrögð vegna skýrslu rannsóknarnefndar
þingsins. Nefndin mun hafa tíma fram í september til að gera tillögur um viðbrögð.
Frá Framsóknarflokknum:
Eygló Harðardóttir og Sigurður
Ingi Jóhannsson.
Frá Hreyfingunni:
Birgitta Jónsdóttir.
Frá Samfylkingunni:
Magnús Orri Schram og Oddný
G. Harðardóttir.
Frá Sjálfstæðisflokknum:
Ófrágengið.
Frá Vinstri hreyfingunni
– grænu framboði:
Atli Gíslason og Lilja Rafney
Magnúsdóttir.
Allir ofangreindir þingmenn
voru fyrst kosnir á Alþingi síð-
astliðið vor, nema Atli Gíslason
sem tók sæti á Alþingi árið
2007.
ÞAU MUNU SKIPA NEFND ALÞINGIS
RANNSÓKNARNEFND Alþingi mun í dag kjósa níu þingmenn í nefnd til að gera tillögur um til hvaða aðgerða
Alþingi eigi að grípa í framhaldi af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Ef gripið er til samlíkingar við al-
menn sakamál má segja að málið sé,
með skýrslugjöf rannsóknarnefndar Alþingis,
komið á ákærustig að lokinni rannsókn.
ALLSHERJARNEFND ALÞINGIS Í
FRAMHALDSNEFNDARÁLITI.
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
9°
0°
1°
3°
9°
8°
1°
1°
22°
6°
20°
3°
21°
-12°
11°
13°
-6°
Á MORGUN
Hæg norðaustlæg eða
breytileg átt.
NÝÁRSDAGUR
Stíf NA-átt A-til, annars
hæg breytileg.
-4
-2
-5
-6
-8
-2
-6
-12
0
-3
-1
5
4
1
5
2
2
4
4
8
5
4
-2
-2
-3
-6
-4 -3
-8
-4
-4
-2
FLOTT VEÐUR
NÆSTU DAGA Það
er varla hægt að
biðja um betri veð-
urspá fyrir gamlárs-
kvöld en horfur
eru á hægviðri
og bjartviðri um
nánast allt land.
Austanlands verður
þó líklega skýjað
með köfl um. Hitinn
breytist lítið og
verður frost víðast
á bilinu 2-8 stig.
Elísabet
Margeirsdóttir
Veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Íslenska ríkið hefur verið
dæmt til að greiða pilti 70 þúsund
krónur í miskabætur vegna þess
að lögreglan í Borgarnesi lét hann
fara í þvagprufu á lögreglustöð
þrátt fyrir að hann hefði þegar
mælst allsgáður í öndunarprófi.
Pilturinn var sautján ára þegar
hann var stöðvaður á bensínstöð í
Borgarnesi eftir hádegi í janúar
síðastliðnum. Lögreglumenn full-
yrtu að þeim hefði borist utanað-
komandi ábending um að pilturinn
hefði verið ölvaður kvöldið áður og
einnig falboðið fíkniefni.
Pilturinn veitti öndunarsýni á
staðnum og mældist ekki undir
áhrifum. Engu að síður óskuðu lög-
reglumennirnir eftir því að piltur-
inn kæmi með þeim á lögreglustöð-
ina og gæfi þvagsýni. Hann gekkst
við því, að eigin sögn vegna þess
að hann þorði ekki að neita af ótta
við að vera þá beittur valdi. Á lög-
reglustöðinni beið pilturinn síðan í
tvo tíma eftir að geta gefið sýnið.
Í niðurstöðu dómsins segir að sú
ákvörðun lögreglumannanna að
flytja piltinn á lögreglustöð hafi
verið í engu samræmi við tilefnið,
og að pilturinn hafi því á ólögmæt-
an hátt verið sviptur frelsi sínu.
Einnig er gerð athugasemd við
það að ekki hafi verið haft sam-
band við forráðamenn piltsins,
enda var hann ólögráða. Lögreglu-
mennirnir sögðu það vera venju í
umdæminu að kalla ekki til for-
eldra þegar ungir ökumenn væru
grunaðir um brot undir stýri. - sh
Pilti dæmdar 70 þúsund krónur í bætur frá íslenska ríkinu:
Lögregla svipti barn frelsinu
BORGARNES Lögreglumenn grunuðu
piltinn um ölvun nóttina áður, og að
hann hafi boðið fólki fíkniefni.
FRÉTTABLAÐIÐ / PJETUR
ALÞINGI Ráðgert er að fresta störf-
um Alþingis til 26. janúar að lokn-
um þingfundi í dag. Í dag ráðast
úrslit Icesave-málsins á Alþingi.
Auk þess er stefnt að því að
kjósa í dag níu þingmenn til að
starfa í nefnd, sem á að gera til-
lögur um viðbrögð þingsins við
skýrslu Rannsóknarnefndar
Alþingis um orsakir bankahruns-
ins. Skýrsla Rannsóknarnefnd-
arinnar verður lögð fram og birt
opinberlega fyrir lok janúar. - pg
Störf Alþingis:
Þingi frestað
til 26. janúar
FINNLAND, AP Forsætisráðherra
Finnlands kveðst ekki sækjast
eftir endurkjöri sem formaður
Miðflokksins á næsta ári. Hann
ber við heilsufarsástæðum.
Tilkynning Matti Vanhanen um
þetta rétt fyrir jól kom í kjölfar
minnkandi fylgis flokks hans og
aukinna krafna um afsögn hans.
Þrýstingur á afsögn Vanhanens
hefur aukist eftir umfjöllun um
hneyksli tengt pólitískri fjársöfn-
un og umfjöllun slúðurblaða um
ástalíf hans.
Í flokksblaðinu Suomenmaa
kvaðst Vanhanen þurfa tíma til
að ná sér eftir aðgerð á fæti sem
áætlað er að hann fari í síðla
á næsta ári. Hann hefur verið
forsætisráðherra síðan 2003. - óká
Matti Vanhanen í Finnlandi:
Sækist ekki eft-
ir endurkjöri
MATTI VANHANEN Á blaðamannafundi í
gær kvaðst Matti Vanhanen reiðubúinn
til að láta af embætti. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVISS, AP Svissneska tryggingafé-
lagið Zurich Financial Services
Group hefur upplýst um kaup á
endurtryggingu upp á 225 millj-
ónir Bandaríkjadala af Lakeside
Re II Ltd. vegna hættu á jarð-
skjálftum í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Upphæðin nemur 28,4
milljörðum króna.
Lakeside er endurtryggingafé-
lag með aðsetur á Cayman-eyjum,
en svissneska tryggingafélagið
segir samninginn nú koma í stað
fyrri samnings frá árinu 2006.
Endurtryggingafélög selja trygg-
ingafélögum tryggingar vegna
stóráfalla. Með því dreifa síðar-
nefndu félögin áhættu sinni. - óká
Kaupa endurtryggingu:
Tryggja fyrir
28,4 milljarða
GENGIÐ 29.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
233,8552
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
125,20 125,80
200,40 201,38
180,46 181,46
24,244 24,386
21,677 21,805
17,441 17,543
1,3645 1,3725
196,25 197,41
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR