Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 16
16 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
I
Undir lok ársins sáum við frétta-
myndir frá Mílanó. Hinn ítalski
Massimo Tartaglia hafði grýtt
afsteypu af dómkirkjunni í Míl-
anó í andlit Silvios Berlusconis
forsætisráðherra Ítala. Ljósmynd-
ir af blóðugu andliti Berlusconis
fóru eins og eldur í sinu um heim-
inn. Angistin leyndi sér ekki á svip
glaða forsætisráðherrans, synduga
fjörkálfsins. Svipurinn var líkt og
freðinn, angistin orðlaus. Þetta
minnti á forna höggmynd. Mynd-
höggvarinn hefur haft ríkar ástæð-
ur fyrir því að láta sársauka ráð-
herrans ekki brjótast út í ópi.
Árásarmaðurinn mun síðar
hafa skrifað Berlusconi afsök-
unarbeiðni, þar sem hann sagði
meðal annars að árásin hefði verið
huglaus. Um leið tók hann fram að
hann hataði Berlusconi, manninn
sem myndi leiða Ítalíu til glötunar.
Hann hafði alltaf hatað Berlusconi.
Allt árið á undan hafði ítalski for-
sætisráðherrann verið tíður gest-
ur í heimspressunni, einkum fyrir
fréttir af bílífi.
Silvio Berlusconi er táknmynd
upphafs 21. aldarinnar. Hann
veður í peningum. Hann stend-
ur ekki fyrir neitt. Hann veður í
kvenfólki og gerir illt verra. Hann
er tákn einhvers mesta innihalds-
leysis í sögu mannkynsins. Hann
er sjónvarpsskjár. Hann er ekki
til. En það rennur í honum blóð og
okkur brá þegar við sáum það leka
niður andlit hans eftir að Mass-
imo Tartaglia hafði kastað í hann
dómkirkju. Sársauki Berluscon-
is braust ekki út í ópi, eða linnu-
lausu tali sem lýsti hneykslan og
vonbrigðum með vonda menn í
vondum heimi, sem grípa næstu
dómkirkju eins og ekkert sé sjálf-
sagðara, og fleygja henni í andlit-
ið á glöðum og valdamiklum gosa.
Andlitið var skyndilega stillt á núll.
Við vorum að horfa á vaxmynd. Og
það lak úr henni blóð.
II
Í upphafi árs var gerð búsáhalda-
bylting á Íslandi. Vondri ríkisstjórn
undir forystu stjórnmálaflokks
sem hafði leitt Ísland til glötunar
var komið frá völdum. Engar dóm-
kirkjur voru rifnar upp með rótum
í átökunum í Reykjavík. Enginn
valdhafi fékk dómkirkju í andlit-
ið. Við sáum andlit þeirra aldrei
afmyndast. Þjóðminjasafnið var á
sínum stað daginn eftir. Hallgríms-
kirkja líka. Það sama má segja um
Hamborgarabúllu Tómasar, og
varla er hún þung! En byltingin
dugði til þess að vondir valdhaf-
ar hrökkluðust frá völdum, valdið
hafði spillt þeim með þeim hætti að
þeir þekktu ekki vitjunartíma sinn.
Það þurfti ekki að kasta afsteypu
af dómkirkjunni í Reykjavík í and-
lit þeirra til þess að þeir áttuðu sig
á því að einu furðulegasta skeiði
Íslandssögunnar var lokið.
III
Íslensku stjórnmálamennirnir sem
fóru frá völdum á fyrri hluta árs-
ins 2009 stóðu ekki fyrir neitt. Við
vissum það allan tímann. Hér voru
flokkar við völd sem voru álíka
innihaldslausir og brosið á andliti
Berlusconis. Þeir þurftu ekki að
missa andlitið til þess að við átt-
uðum okkur á því. Hrunið sem átti
sér stað haustið 2008 hafði gerst
löngu fyrr. Búsáhaldabyltingin
var þess vegna líka gerð of seint.
Þeir sem vilja gera hana að stór-
kostlegum sögulegum atburði gera
það af offorsi viljans, þrá eftir því
að hafa lifað eitthvað sögulegt á
tímum þegar búið var að sann-
færa okkur um að sögunni væri
lokið. Á Íslandi gerist allt alltaf of
seint. Þjóð með rænu og tilfinningu
fyrir eigin fegurð hefði gert þessa
byltingu fyrr. Byltingin heppnaðist
að því leyti til að það tókst að losa
okkur við ömurlega valdhafa. Í bili.
Við tók eitthvað í líkingu við ekki
neitt því íslenska vinstrið er fyrir
löngu orðið vopnalaust. En á þeim
bænum er mönnum sannarlega vor-
kunn: það er varla í mannlegu valdi
að fást við afleiðingarnar af langri
valdatíð Sjálfstæðisflokksins á
Íslandi.
Dómkirkjur og andlit
Af hverju þorði íslenska þjóðin ekki að kasta kirkju í andlitið á kvalara sínum fyrr en það var orðið algjörlega óumflýjanlegt? Nú
er myrkt yfir landinu en flestir hjara enn í gaddinum. Eiríkur Guðmundsson veit af hverju.
INNLENDIR VENDIPUNKTAR 2009
Eiríkur Guð-
mundsson er
bókmenntafræð-
ingur, rithöfundur
og einn umsjón-
armanna útvarps-
þáttarins Víðsjár á
Rás eitt.
Innlendir vendipunktar 2009
Fréttablaðið gerir upp árið með
greinum um innlenda vendi-
punkta eftir valda höfunda. Vend-
ipunktarnir snúast um markverðar
fréttir og atburði sem gerðust á
árinu og gætu haft áhrif til fram-
búðar á Íslandi.
SILVIO BERLUSCONI „Hann er tákn einhvers mesta innihaldsleysis í sögu mann-
kynsins. Hann er sjónvarpsskjár. Hann er ekki til. En það rennur í honum blóð og
okkur brá þegar við sáum það leka niður andlit hans eftir að Massimo Tartaglia hafði
kastað í hann dómkirkju.“ FRÉTTABLAÐIÐ / AP
1.000.0
JÁ, MILLJARÐUR!
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ekki gleyma að vera með,
fáðu þér miða fyrir klukkan
fimm í dag á næsta sölustað
eða á lotto.is
Þrefaldur fyrsti vinningur stefnir í 380 milljónir
og Ofurpotturinn stefnir í 620 milljónir.