Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 64
40 30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, kom
nokkuð á óvart með því að velja hinn 19 ára FH-ing, Ólaf Guð-
mundsson, í 17 manna EM-hópinn sem tilkynntur var í gær.
Ólafur hefur ekki enn leikið landsleik en enginn efast um að
þar er á ferð upprennandi stórskytta sem á klárlega eftir
að gera það gott með landsliðinu í framtíðinni.
„Ég fékk að vita af þessu í morgun [í gær] þegar Guð-
mundur hringdi í mig. Það var afar ánægjulegt símtal.
Ég bjóst ekkert endilega við því að vera valinn en ég
var samt í síðasta hópi og hef verið að standa mig
vel þannig að ég vonaði það besta,“ sagði Ólafur
við Fréttablaðið í gær.
„Ég er að sjálfsögðu hrikalega ánægður. Þetta
eru stórar og flottar fréttir fyrir mig. Það er náttúru-
lega ekkert alveg öruggt að ég fari út en ég mun mæta
á æfingar, selja mig dýrt og gera mitt allra besta. Það er
svo undir þjálfaranum komið hvort hann tekur mig með
eða ekki.“
Hinn ungi Ólafur er í afar góðum félagsskap en alls eru
13 silfurverðlaunahafar frá ÓL í Peking af 17 leikmönnum í hópn-
um. Þeir fjórir sem voru ekki á Ólympíuleikunum eru Ólafur,
Aron Pálmarsson, Vignir Svavarsson og Þórir Ólafsson.
„Það er mikill heiður fyrir mig að vera valinn í þennan sterka
hóp. Flott fyrir 19 ára strák sem á enn eftir að spila landsleik.
Þetta er þess utan líklega einhver sterkasti landsliðshópur
sem Ísland hefur átt lengi,“ sagði Ólafur sem finnst ekkert
erfitt að æfa með öllum stjörnunum. „Ég fékk pínu
sjokk þegar ég mætti fyrst enda allt strákar sem
maður hefur verið að horfa á í sjónvarpinu lengi
og litið upp til. Það rann af mér fljótt. Á endanum
er þetta samt bara handbolti sem snýst um að
henda boltanum í markið og skora meira en
andstæðingurinn,“ sagði Ólafur.
Skyttan unga segir ánægjulegt að leikmenn hér
á Íslandi gleymist ekki hjá þjálfaranum. „Óskar Bjarni
aðstoðarþjálfari fylgist auðvitað vel með og lætur Guð-
mund vita af því hvernig við séum að spila. Það er jákvætt
að menn hér heima eigi sama möguleika og aðrir.“
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON ÚR FH: EINI NÝLIÐINN Í EM-HÓPI GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR LANDSLIÐSÞJÁLFARA
Mikill heiður að vera valinn í þennan sterka hóp
Enska úrvalsdeildin
Aston Villa - Liverpool 0-1
0-1 Fernando Torres (93.).
Bolton - Hull City 2-2
1-0 Ivan Klasnic (20), 2-0 Kevin Davies (61.), 2-1
Stephen Hunt (71.), 2-2 Stephen Hunt (78.).
Grétar Rafn Steinsson lék allan leikinn með Bolt.
Belgíska úrvalsdeildin
Cercle Brügge - Standard Liege 2-0
Arnar Þór Viðarsson lék allan leikinn með C. Br.
Þýska úrvalsdeildin
Göppingen - Flensburg 30-27
Alexander Petersson skoraði 1 mark fyrir Flensb.
Düsseldorf - Gummersbach 28-32
Sturla Ásgeirsson skoraði ekki fyrir Düsseldorf en
Róbert Gunnarsson gerði 4 fyrir Gummersbach.
Sænska úrvalsdeildin
Solna - Örebro 77-78
Helgi Már Magnússon var með 11 stig fyrir Solna.
08 Stockholm - Sundsvall 74-90
Jakob Sigurðarson var með 23 stig fyrir Sundsvall.
ÚRSLIT
> Bað stuðningsmenn afsökunar
Gylfi Þór Sigurðsson bað stuðningsmenn Reading
afsökunar á lélegri frammistöðu leikmanna gegn
Plymouth í fyrrakvöld. Þá mættust liðin í ensku
B-deildinni og vann Plymouth 4-1 sigur. „Ég vil
biðja alla þá stuðningsmenn sem komu á leikinn
afsökunar. Ég veit ekki hvað við vorum að gera inni á
vellinum – við áttum ekki skilið að fá neitt
út úr leiknum. Við vorum búnir að spila
ágætlega í síðustu leikjum en það er engu
líkara en að við mættum ekki til leiks í
þetta skiptið.“
FÓTBOLTI Fernando Torres reynd-
ist enn og aftur sínum mönnum
í Liverpool þyngdar sinnar virði
í gulli er hann tryggði liðinu 1-0
sigur á Aston Villa á útivelli með
marki í uppbótartíma. Tveir leikir
fóru fram í ensku úrvalsdeildinni í
gærkvöldi en í hinum gerðu Bolton
og Hull 2-2 jafntefli.
Eins og ítrekað hefur verið fjall-
að um hefur tímabilið verið langt
undir væntingum stuðningsmanna
Liverpool en Torres sá til þess að
liðið lauk árinu á jákvæðum nótum.
Með sigrinum náði Liverpool afar
mikilvægum stigum í baráttu
þess um fjórða sæti deildarinnar
– því síðasta sem veitir þátttöku-
rétt í Meistaradeild Evrópu. Liðið
er nú með 33 stig, fjórum á eftir
Tottenham sem situr nú í fjórða
sæti. Aston Villa er í því sjötta með
35 stig.
Steven Gerrard komst nálægt því
að skora fyrr í leiknum fyrir Liver-
pool, sem og Stewart Downing hjá
Aston Villa en Pepe Reina sá við
honum. John Carew fékk einnig
ágætt skallafæri fyrir heimamenn
en hitti ekki markið.
Leikurinn var að öðru leyti
nokkuð tíðindalítill þar til Torres
skoraði markið þýðingarmikla í
uppbótartíma.
„Um þetta snýst fótboltinn,“ sagði
Gerrard eftir leikinn. „Maður verð-
ur að halda áfram allt til enda og
mér fannst við spila nokkuð vel í
kvöld. Allir vita að þegar Fern-
ando er upp á sitt besta stenst
honum enginn snúning. Við viljum
að hann haldi áfram á þessari braut
og komi okkur í hóp efstu fjögurra
liða deildarinnar.“
Grétar Rafn Steinsson lék allan
leikinn með Bolton í gær og var
nálægt því að tryggja sínum mönn-
um sigur í uppbótartíma en skot
hans fór af varnarmanni og hár-
fínt framhjá marki Hull.
Aðeins fáeinum andartökum
síðar var hann svo aftur í eldlín-
unni hinum megin á vellinum og
kom í veg fyrir að varamaðurinn
Jan Vennegoor of Hesselink stæli
sigrinum fyrir Hull sem lenti 2-
0 undir í leiknum. Stephen Hunt
skoraði tvívegis með skömmu
millibili seint í leiknum og tryggði
þannig Hull jafntefli. - esá
Fernando Torres var hetja Liverpool sem vann góðan 1-0 útisigur á Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Torres endaði árið vel fyrir Liverpool
MARKAHETJAN
Fernando Torres skoraði sitt 50. mark
fyrir Liverpool í gær og tókst honum það
á skemmri tíma en allir aðrir sem hafa
náð þeim áfanga í sögu félagsins.
NORDIC PHOTOS/GETTY