Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 26
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR2
V I Ð S K I P T I Á R S I N S
N
íu viðskipti komust á blað sem
viðskipti ársins, að mati dóm-
nefndar Markaðarins. Dóm-
nefndin viðurkenndi að valið
væri erfitt. Sumir sögðu mörg
viðskipti hafa verið góð, aðrir að engin
gætu fallið í þann flokk.
1. SÆTI
Skráning hlutabréfa Össurar í kaup-
höllina í Kaupmannahöfn í Danmörku í
byrjun september fékk flest stig dóm-
nefndar þetta árið. „Með því tókst fyr-
irtækinu að nýta sér styrk kjölfestufjár-
festis til að tryggja framtíðarfjármögnun
fyrirtækisins,“ sagði einn dómnefndar-
manna í rökstuðningi sínum fyrir valinu.
Aðrir bentu á frábært uppgjör Össurar
við erfiðar aðstæður auk þess að gengi
hlutabréfa fyrirtækisins hafi hækkað
mikið upp á síðkastið.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir
skráninguna afleiðingu af hruninu hér í
fyrra. „Þegar gjaldeyrishöftin voru sett
á í nóvember gátu erlendir hluthafar
okkar ekki hugsað sér að vera með verð-
mæti föst hér á landi. Þótt hluthafarnir
erlendu væru mjög ánægðir með félagið
sjálft urðu þeir afar óhressir með stað-
setningu þess. Við ákváðum því að skrá
félagið á þeim stað sem erlendir hluthaf-
ar treysta best,“ segir Jón og bætir við að
Danmörk hafi verið rökrétt skref. Stærsti
hluthafahópurinn sé þaðan, svo sem líf-
eyrissjóðurinn ADP. Þá sé þar í landi
skráður góður hópur af fyrirtækjum á
heilbrigðissviði.
Skráning fyrirtækisins ytra fékk tals-
verða umfjöllun í dönskum fjölmiðlum.
Jón segir þrátt fyrir þetta erfitt að vera
Íslendingur ytra. „Það er í raun ekki
jákvætt fyrir fyrirtækið að ég skuli vera
Íslendingur,“ segir hann en bætir við að
þetta sé skammtímaástand sem muni líða
hjá. „Við munum vinna okkur traust, en
það tekur tíma.“
Talsverð eftirspurn varð eftir hluta-
bréfunum og þurrkuðu lífeyrissjóðir og
aðrir fagfjárfestar þau hlutabréf sem í
boði voru. Þetta skilaði sér í lítilli hreyf-
ingu með bréfin þar eð fjárfestar voru
tregir til að selja nema fyrir hærra verð
en markaðurinn bauð upp á.
Ný hlutabréf Össurar voru gefin út ytra
í nóvember í því skyni að auka flotið en
við það komst hreyfing á veltuna. Aukn-
ingin jafngilti því að hlutafé fyrirtæk-
isins var aukið um tæp sjö prósent. Jón
segir verðmyndun hlutabréfanna mun
betri í dag en áður.
Fjögur fyrirtæki greina Össur nú ytra.
Þar á meðal er sænski bankinn SEB
Enskilda, sem sá um skráningu fyrir-
tækisins í Kaupmannahöfn.
Í nýlegu og verulega uppfærðu verð-
mati Enskilda á stoðtækjafyrirtækinu
segir að uppgjör Össurar á þriðja árs-
fjórðungi hafi verið talsvert yfir vænt-
ingum þrátt fyrir vandræðagang í Banda-
ríkjunum. Félagið eigi mikið inni enda
vonir bundnar við rafeindastýrðar vörur
Össurar með gervigreind auk þess sem
vænta megi betri sölu í öðrum vöruflokk-
um í nánustu framtíð. Á meðal varanna
sem áætlað er að komi á markað á nýju
ári er nýjasta kynslóð rafdrifinna Power-
hnjáa.
Valdimar Halldórsson, sérfræðingur
hjá IFS Greiningu, sagði í samtali við
Fréttablaðið á dögunum, mikla eftirspurn
eftir bréfunum ekki koma sér á óvart enda
rekstur Össurar sterkur og sjóðstreymið
frábært. Skiljanlega vilji því þeir fjár-
festar sem keyptu bréf fyrirtækisins á
genginu fimm danskar krónur á hlut ekki
selja þau í bili. Hæst fóru þau ytra í 6,15
danskar krónur á hlut, eða sem nemur
150 íslenskum krónum. Verðmat Enskilda
hljóðar hins vegar upp á 8,2 krónur á hlut,
eða 200 íslenskar krónur.
Skráning Össurar
í Kaupmannahöfn
viðskipti ársins
JÓN MEÐ VÖRURNAR Talsverður áhugi varð á stoðtækjafyrirtækinu Össuri á Norðurlöndunum um það leyti
sem hlutabréf þess voru skráð á markað í Kaupmannahöfn. MARKAÐURINN/GVA
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum VALITOR
um hvaða lausnir henta þér best.
Við kappkostum að veita viðskiptavinum
okkar framúrskarandi og skjóta þjónustu.
VISA og Mastercard færsluhirðing!
FYRIRTÆKJALAUSNIR VALITOR • Laugavegi 77 • 101 Reykjavík • fyrirt@valitor.is • www.valitor.is
Áratugur á markaði
Um miðjan október var áratugur síðan
hlutabréf Össurar voru skráð á markað
hér, sem þá nefndist Verðbréfaþing
Íslands.
Össur Kristinsson stofnaði stoðtækja-
fyrirtækið árið 1971, ári eftir að hann
sneri heim úr námi í stoðtækjafræðum í
Stokkhólmi í Svíþjóð, sem þá var Mekka
þeirra fræða á heimsvísu.
Nokkru eftir stofnun fyrirtækisins hóf
Össur að þróa silíkonhulsu sem klædd
var upp á stúf þeirra sem misst höfðu
útlim og gervifótur festur við. Eftir að
hafa veðsett hús fjölskyldu sinnar og
foreldra tryggði hann sér loks einkaleyfi
fyrir hulsuna árið 1986. Þá tóku hjól-
in að snúast af krafti og átti fyrirtækið í
erfiðleikum með að anna eftirspurn.
Þremur árum síðar steig Össur úr for-
stjórastólnum og er nú nokkuð um liðið
frá því að hann hafði afskipti af fyrir-
tækinu.
Jón Sigurðsson hafði setið við stýrið
í þrjú ár þegar stoðtækjafyrirtækið
var skráð á markað. Starfsmenn þá
voru í kringum fimmtíu. Þeir eru nú á
annað þúsund og áætlar forstjórinn að
fyrirtækið sé nú 22-sinnum stærra en
þegar hlutabréf þess voru fyrst tekin til
viðskipta fyrir áratug.
Stór hluti starfsemi fyrirtækisins í
dag er í Bandaríkjunum og flytur Jón
Sigurðsson þangað fljótlega. Óráðið er
hversu dvölin ytra verður löng en hann
reiknar með að hún verði endurskoðuð á
um hálfsárs fresti.
Mörg viðskipti komust á blað yfir þau bestu á árinu. Ein
stóðu þó upp úr. Valið var sérstaklega erfitt og skiptist dóm-
nefnd Markaðarins í tvö horn. Nokkrir dómnefndarmanna
sögðu mörg lítil viðskipti hafa staðið upp úr, aðrir voru á nei-
kvæðari nótum og sögðu engin eiga það skilið að teljast góð.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skoðaði valið.