Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 36
30. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR2
„Íslensku áramótin eru mun
agressívari en þau frönsku, en þó
ekki á slæman hátt. Íslendingar
eru hvatvísari, en Frakkar hefð-
bundnari. Hér finnst mér æðis-
legt að allir skuli fara út á göt-
urnar, safnast saman og skjóta
upp flugeldum. Mér finnst það
mjög fallegt, en samt er eins og
andrúmsloft stríðs vofi yfir,“
segir Amanda og tekur fram að
henni þyki umstangið vera kaót-
ískt og að Frakkar myndu aldrei
gera hlutina þannig. Þar í landi
haldi menn sig heima við og slái
upp veislu.
„Í Frakklandi er fólk alltaf að
reyna að finna eitthvað nýtt og
sniðugt að gera um hver áramót.
Kannski spes ball á næturklúbbi
eða partí á bát. Á Íslandi er þetta
miklu öfgakenndara, en yndislega
einfalt líka,“ segir Amanda sem
hlær þegar blaðamaður spyr hvort
hún hafi farið á brennu. „Nei, ekki
um áramót, bara í mótmælunum
fyrir ári. Mér líkar sú athöfn að
brenna hluti, það veitir hlýju og
ljós og lætur hluti hverfa en um
leið er eitthvað djöfullegt við það.
Í Frakklandi er bannað að brenna
hluti. En þó eru haldnar áramóta-
brennur í úthverfum Parísar-
borgar ár hvert, en þá er það reitt
fólk sem kveikir í bílum,“ segir
Amanda og áréttar að henni þyki
sniðugt að mannkynið noti eld til
að eyðileggja hluti.
niels@frettabladid.is
Andrúmsloft stríðs
Amanda Riffo frá Frakklandi elskar áramótin og allt sem þeim viðkemur. Hún hefur meira að segja tekið
myndir af flugeldum og breytt myndunum þannig að blossarnir og ljósin verða svört á hvítum bakgrunni.
Amanda Riffo frá Frakklandi heillast af eldi og sérstaklega þeim eiginleika hans að
láta hluti hverfa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
AULD LANG SYNE er skoskt lag sem er gjarn-
an sungið um áramót í Englandi og Bandaríkjunum. Á
íslensku þekkist þetta lag sem bræðralagssöngurinn,
sem er þá tengdur við skátastarf frekar en nýársfögnuð.