Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
Miðvikudagur 30. desember 2009 – 29. tölublað – 5. árgangur
E F N I S Y F I R L I T
Áhrifafólk viðskiptalífsins gerir upp árið
síður 14 til 18
Erlendur
fréttaannáll
Bestu og verstu viðskipti ársins
sjá síður 2 og 4
Innlendur fréttaannáll
síða 10
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
MIÐVIKUDAGUR
30. desember 2009 — 307. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Vísindamaður ársins
Höskuldur Þráinsson, prófessor í
íslensku nútímamáli,
hlaut viðurkenningu
verðlaunasjóðs Ásu
Guðmundsdóttur
Wright.
TÍMAMÓT 26
Týndi áratugurinn
„Að beiðni djarfhuga viðskipta-
manna nútímans afnámu
stjórnvöld svo gamaldags reglur,“
skrifar Eiríkur Bergmann.
Í DAG 20
AUÐUR NANNA BALDVINSDÓTTIR
Gisti í báti á Regent‘s
Canal í London
• á ferðinni • áramót
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
FLUGELDAR.IS er vefsíða Landsbjargar þar sem
hægt er að fá upplýsingar um sölustaði flugelda, vöru-
lista og öryggisatriði sem hafa ber í huga í umgengni við
skotelda. www.flugeldar.is
Auður Nanna hefur bæði búið í London og heimsótt hana marg-sinnis. Hún bjóst því ekki við því að kynnast glænýrri hlið á borg-inni. Í sumar sem leið heimsótti hún vin sinn sem býr í bát í Reg-ent´s Canal við Marylebone og gistihjá honum í nokk
– val á lífsstíl – því bátarnir eru mjög dýrir og hverfið sem þeir eru staðsettir í þykir líka mjög fínt.„Bátaeigendur geta siglt um alla bátaskurði borgarinnar ogferðast þannig borgare do A
til baka var bátaeigandi á næsta bát kominn heim úr vinnunni, með franska osta og pylsur sem hann selur, og við eyddum síðdegiuppi á d kk
Sá London í nýju ljósiAuður Nanna Baldvinsdóttir orkufræðingur taldi sig þekkja borgina London nokkuð vel, meðal annars
eftir margra ára búsetu þar. Hún kynntist hins vegar nýrri hlið á borginni nú í sumar.
Auður Nanna Baldvinsdóttir átti einstaka dvöl í London nú í sumar þegar hún gisti í báti.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
DALVEGI
· Tekur 12 Kg · Hljóðlát· Stórt op > auðvelt að hlaða· Sparneytin
12 kg
Þvottavélog þurrkari
GÓÐ NÆRING,
FYRIR HRESSA KRAKKA!
1.731 vika
x 7 + 3 Vá!
12.120 dagar
Ó
· 1
29
64
Seljabraut
Hreindýrakjöt
Úrval af villibráð!
Hátíðarsýning í
kvöld
Friðrik Þór Friðriks-
son hefur tröllatrú
á Mömmu Gógó.
FÓLK 36
EM-hópurinn
valinn
Guðmundur Guðmunds-
son valdi í gær sautján
leikmenn í íslenska lands-
liðið fyrir EM í Austurríki.
ÍÞRÓTTIR 42
FÓLK Kvikmyndin The Romantics
verður frumsýnd á Sundance-
kvikmyndahátíðinni í janúar en
einn framleiðenda hennar er Eva
Maria Daniels.
Með aðalhlutverk í myndinni
fara Katie Holmes, Anna Paquin,
Josh Duhamel auk annarra.
Eva Maria er einnig að undir-
búa tökur á nýrri kvikmynd sem
hún framleiðir, en sú ber titilinn
Goats og fjallar um uppvaxtar-
ár ungs pilts í Bandaríkjunum.
Hopper Penn, sonur leikarans
Sean Penn, fer með aðalhlut-
verkið. Aðrir leikarar eru móðir
Hoppers, Robin Wright, David
Duchovny og Josh Brolin.
- sm / sjá síðu 46
Íslendingur á virta hátíð:
Á Sundance
með nýja mynd
HÆGVIÐRI Í dag verður víðast
hæg vestlæg eða breytileg átt.
Víðast léttskýjað en skýjað með
köflum og stöku él á norðaustan
til.
VEÐUR 4
-4
-3
-6
-8
-5
FÓLK Tveggja barna móðir á
fimmtugsaldri varð í gær 75
milljónum ríkari þegar hún vann
stærsta vinning sem dreginn
hefur verið út í sögu Happdrættis
Háskóla Íslands.
Í tilkynningu frá happdrætt-
inu kemur fram að vinningurinn
hafi komið á trompmiða sem
konan hafi átt í nokkur ár. Hún
hafi tekið tíðindunum um vinn-
inginn með vantrú og tortryggni,
en sannfærst þegar hún fletti upp
síðustu vinningaskrá á Netinu.
Vinningurinn mun koma í
góðar þarfir, þar sem fjárhags-
staða fjölskyldunnar er slæm og
lán þeirra í frystingu, að því er
fram kemur í tilkynningu. - þeb
Kona vann 75 milljónir:
Er með lánin
sín í frystingu
MENN VIÐSKIPTALÍFSINS 2009
Ár rekstrarmanna
runnið upp
Markaðurinn
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
LÖGREGLUMÁL Rökstuddur grunur leikur á því að
í kringum fimmtán kílóum af kókaíni, sem tveir
Íslendingar voru teknir með í Madríd um miðjan
mánuðinn, hafi átt að smygla hingað til lands,
samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.
Íslenskt par um tvítugt er í haldi lögreglu á Spáni
vegna málsins. Parið var handtekið á flugvellinum
Barajas 17. desember, við komuna frá Perú. Þeim
hefur verið útvegaður lögfræðingur, samkvæmt
upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Ráðuneyt-
ið hefur verið í sambandi við unga parið í gegnum
ræðismann Íslands í Madrid. Ekki sé ætlast til þess
að upplýst sé um málið af hálfu ráðuneytisins.
Fullvíst er talið að fólkið sé burðardýr sem áttu
að koma efnunum til Íslands. Þau eru nú í fangelsi
um þrjátíu kílómetra utan við borgina. - jss / sjá síðu 2
Tveir Íslendingar voru teknir með í kringum fimmtán kíló af kókaíni í Madríd:
Kókaínið átti að koma hingað
EVA MARIA DANIELS Katie Holmes fer
með aðalhlutverk í mynd Evu Mariu.
ALÞINGI Umræðum um Icesave-
frumvarpið var ítrekað frestað í
gærkvöldi vegna nýrra upplýsinga
sem fjárlaganefnd bárust í gær-
kvöldi frá bresku lögmannsstofunni
Mischon de Reya.
Stjórnarandstæðingar segja þess-
ar upplýsingar benda til að samn-
inganefnd Íslendinga hafi leynt
Alþingi gögnum um mat lögmanns-
stofunnar á réttarstöðu íslenskra
stjórnvalda í Icesave-málinu. Einn-
ig vakni spurningar um hvort Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
hafi fengið nauðsynlegar upplýsing-
ar um mat lögmanna ríkisins á rétt-
arstöðu Íslands áður en hann átti
fund með David Miliband, utanríkis-
ráðherra Breta, í apríl á þessu ári.
Þessi gögn hafi bresku lögmenn-
irnir unnið á tímabilinu 25. til 31.
mars á þessu ári. Þar komi fram
það mat að góðar líkur væru á að
vinna mál gegn breskum stjórnvöld-
um vegna aðgerða Breta gegn Her-
itable-bankanum, dótturfyrirtæki
Landsbankans í Bretlandi.
„Auðvitað gengur það ekki upp
fyrir okkur að það séu að koma fram
upplýsingar af þessu tagi daginn
áður en atkvæðagreiðsla hafði verið
ákveðin,“ sagði Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
á Alþingi í gærkvöldi
„Menn köstuðu frá sér vopnum
sem þessi breska lögmannastofa
mat að væri mjög sterk og ætti
að beita,“ sagði Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins. Þingfundum var
ítrekað frestað meðan skotið var á
fundum í þinghúsinu í gærkvöldi
til að fara yfir málið. Þegar blaðið
fór í prentun voru þingmenn enn að
bíða þess að fá afhent þau gögn sem
bresku lögmennirnir segjast hafa
unnið og sent umbjóðendum sínum
í íslensku stjórnsýslunni. Ekki var
ljóst hvaða áhrif þetta mál hefði á
framgang Icesave-málsins, en fyrir
lá samkomulag um að lokaatkvæða-
greiðsla yrði haldin í dag.
Sigmundur Davíð sagði á Alþingi
í gærkvöldi að ekki kæmi til greina
að halda lokaatkvæðagreiðslu í dag.
Bresku lögmennirnir boði í bréfi
sínu að frekari upplýsingar séu
væntanlegar og þær séu þess eðlis
að þingmenn muni vilja kynna sér
þær. - pg
Uppnám á Alþingi
vegna nýrra gagna
Fjárlaganefnd bárust upplýsingar frá bresku lögmannsstofunni Mischon de
Reya í gærkvöldi. Stjórnarandstaðan segir þær benda til þess að stjórnvöld hafi
leynt upplýsingum um réttarstöðu Íslendinga og vilja fresta atkvæðagreiðslu.
ALÞINGI SEINT Í GÆRKVÖLDI Ný gögn um Icesave urðu til þess að hlé var gert á umræðum um málið í gærkvöldi. Guðbjartur
Hannesson, Steingrímur J. Sigfússon, Þór Saari, Helgi Hjörvar, Eygló Harðardóttir og Jón Gunnarsson fylgdust með þegar
umræður hófust aftur klukkan tíu í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN