Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 30
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR6
M E N N V I Ð S K I P T A L Í F S I N S 2 0 0 9
Þ
etta hefur verið ár ís-
lenskra framleiðslu-
fyrirtækja eftir mörg
erfið undanfarin ár.
Svo tók einn dómnefnd-
armanna til orða í rökstuðningi
sínum fyrir vali á manni ársins í
íslensku viðskiptalífi.
Þegar talið var upp úr köss-
unum að þessu sinni reyndust
menn viðskiptalífsins tveir: þeir
Hilmar V. Pétursson, forstjóri
netfyrirtækisins CCP, sem á og
rekur fjölþátttökuleikinn EVE
Online, og Jón Sigurðsson, for-
stjóri stoðtækjafyrirtækisins Öss-
urar, sem hlýtur titilinn í annað
sinn á jafn mörgum árum.
Árið var báðum fyrirtækjum
gott. CCP hagnaðist um 6,2 millj-
ónir dala á fyrstu sex mánuð-
um ársins og rauf við það millj-
arðakróna múr sprotafyrirtækja.
Fyrirtækið er með nokkra fjölþátt-
tökuleiki í smíðum, þar á meðal
byltingarkennda skotleikinn Dust
514. Þá sló CCP enn eitt metið
þegar áskrifendur urðu rúmlega
320 þúsund fyrr í þessum mán-
uði og urðu þá þremur þúsundum
fleiri en íslenska þjóðin. Þegar
hefur verið fjallað um Össur og
verður það ekki gert hér.
VILJA AÐILD AÐ ESB
Þeir Jón og Hilmar, sem hlutu
jafn mörg stig, voru ekki að hitt-
ast í fyrsta sinn þegar þeir settust
niður með blaðamanni Markaðar-
ins. „Við höfum oft spjallað saman
um rekstur fyrirtækja hér og
framtíðarhorfur,“ segir Jón og
rifjar upp þegar þeir, ásamt for-
ráðamönnum Marels og samheita-
lyfjafyrirtækisins Actavis, fund-
uðu með ráðherrum, þingmönnum
og ýmsum öðrum í stjórnsýslunni
á fyrstu fjórum mánuðum ársins
um leiðir út úr kreppunni með
langtímasjónarmið að leiðarljósi.
„Við vildum koma sjónarmiðum
okkar áleiðis. Það er þetta klass-
íska, aðild að Evrópusambandinu
(ESB) og upptaka evru,“ bætir
Hilmar við. Önnur mál á dag-
skrá voru eðli bankastarfsemi hér
í framtíðinni, afnám gjaldeyris-
hafta og samskipti við útlönd.
Þeir segja ráðamenn hafa tekið
vel í aðild Íslands að ESB á fyrri
hluta árs. Eftir því sem leið á árið
hafi viðhorfið snúist við.
„Við reyndum að koma þess-
ari umræðu upp úr þeim hjólför-
um sem hún var í. Undirtektirnar
voru ótrúlega jákvæðar og í engu
hlutfalli við það sem seinna varð,“
segir Jón. „Nú er engu líkara en
við séum að fleka fjallkonuna.“
Þeir eru sammála um að rekstr-
arhorfur alþjóðlegra fyrirtækja
sem staðsett eru hér á landi séu
mjög slæmar ef ekki verði mörkuð
stefna til framtíðar.
Hilmar segir í raun aldrei
hafa verið mögulegt að ræða um
rekstrarhorfur fyrirtækja í því
sveiflukennda ástandi sem hér
hafi verið um áratuga skeið. „Ég
hef oft líkt uppbyggingu í atvinnu-
starfsemi hér við það að búa í ár-
farvegi. Hann er frjósamur og
góður. Þar er fullt af sprotum og
mikil gróska. En svo fer að rigna.
Þá kemur flóð og það ryður öllum
sprotunum í burtu. Þegar grynn-
kar aftur í ánni er aftur talað um
hvað farvegurinn er góður. Svona
gerist þetta á um tíu ára fresti. Það
er sama hvort krónan er fasttengd,
undir höftum eða handstýrð. Það
hafa verið reynd ýmis kerfi með
krónur en ekkert virðist virka,“
segir hann og leggur áherslu á
nauðsyn þess að finna varanlega
lausn á gjaldmiðlamálum Íslend-
inga. Hann bendir sömuleiðis á að
myntsvæði heimsins hafi stækk-
að síðustu ár og orðið einfaldari.
Það haldist í hendur við alþjóða-
væðinguna og aukinn hraða í sam-
skiptum og viðskiptum.
PÉTURSKRÓNAN Á BÍLDUDAL
Hilmar bendir á að krónan hafi
virkað vel í einangruðu samfélagi
þar sem viðskipti við útlönd voru
lítil sem engin.
Þeir Jón taka Péturskrónur sem
dæmi. Sú króna var mynt sem at-
hafna- og kaupmaðurinn Pétur
Thorsteinsson á Bíldudal notaði í
viðskiptum sínum við heimamenn
í kringum síðustu aldamót. Þær
hafi gegnt hlutverki sínu í samfé-
laginu sem þá var mjög einangr-
að. „Þetta hrundi auðvitað allt hjá
honum þegar fólk gat farið yfir á
Patreksfjörð,“ segir Jón og bendir
á að sama máli gegni um íslensku
krónuna. Hún sé óvirkur gjald-
miðill í alþjóðlegum viðskiptum.
„Krónan hefur nýst okkur jafn
vel og svarthvíta sjónvarpið á
sínum tíma. Það var gott en nú
er bara komið litasjónvarp. Við
getum haldið áfram og talað um
hvað árfarvegurinn er frjór og
góður og vonað að það fari ekki að
rigna. Eða við gerum það sama og
aðrar þjóðir í kringum okkur hafa
komist að og taka þátt í alþjóðlegu
samstarfi.“
EINKENNILEG ANDSTAÐA
Þeir Jón og Hilmar furða sig
á þeirri andstöðu sem orðin er
gegn aðild Íslands að ESB. Fram-
tíðarleið sem þeir telja farsæla
til frambúðar. „Það er partur
af samfélaginu sem virðist hafa
stóra hagsmuni af því að beita sér
gegn ESB og beitir öllum klækj-
um til að mála það sem vond út-
lendingasamtök sem vilji koma
höndum yfir allt sem hér er. Það
stenst enga skoðun,“ segir Hilm-
ar og bendir á að þótt andstaðan
kunni að þjóna sérhagsmunum þá
gangi viðhorfið ekki upp. Íslensk
fyrirtæki verði að tryggja sér
fjármögnun sem að mestu leyti
sé erlend. Það komi sér afar illa
þegar gengi krónunnar sveiflist
til og frá sem lauf í vindi.
Einu rökin fyrir krónunni
telur hann vera þau hversu öfl-
ugt stjórntæki hún hafi reynst í
gegnum tíðina. „Hún hefur verið
tæki fyrir stjórnvöld til að stýra
kaupmætti almennings án þess
að hann upplifi það. En þetta er
ekki svona lengur,“ segir hann og
bendir á að almenningur sé að
gera sér grein fyrir þessu. Skýr-
asta dæmið sé verð á appelsínu-
safa sem í erlendri mynt hefur
lítið sem ekkert breyst milli ára.
Öðru máli gegni um verð á app-
elsínusafa hér, sem sveiflist út
um allar trissur.
HÆTTIR AÐ HUGSA Í KRÓNUM
Eftirtektarvert er að menn við-
skiptalífsins að mati dómnefndar
Markaðarins hugsa ekki í krón-
um. „Við hættum að nota krón-
ur árið 2002 og hugsum alfar-
ið í erlendri mynt,“ bendir Jón á
en fyrirtækið gerir upp í Banda-
ríkjadölum. Sömu sögu er að segja
af CCP, sem lagði krónuna niður
sem starfsrækslumynt árið 2006
og hefur greitt starfsfólki laun í
evrum frá því snemma á þessu
ári. Starfsfólk Össurar fær laun
sín enn greidd í krónum.
Þeir segja vandasamt að skipta
út gjaldmiðli einhliða hjá fyrir-
tækjum hér enda sé krónan raun-
veruleiki starfsfólksins sem starfi
hjá fyrirtækjunum hér.
„Við getum ekki ákveðið þetta
fyrir starfsfólk okkar. Þótt færa
megi rök fyrir því að skiptin
séu skammtímaávinningur fyrir
starfsfólkið þá er langtímaáhætta
fólgin í því. Í raun vorum við að
selja starfsfólkinu gengisáhættu.
En við vildum bjóða upp á þetta og
héldum námskeið fyrir fólkið. Þótt
evran liti vel út þá varð starfsfólk-
ið að breyta lífi sínu í samræmi
við það,“ segir Hilmar.
HEIMATILBÚINN VANDI
Menn viðskiptalífsins í ár segja
einkennilegt ástand ríkja hér á
landi. Mjög hafi verið þrengt að
fyrirtækjum eftir hrun banka-
geirans fyrir rúmu ári og virð-
ist sem fólk líti á það helsi sem
á það hafi verið lagt sem sjálf-
sagðan hlut. „Nokkrum vikum
eftir að gjaldeyrishöft voru sett
á í fyrra snerist öll umræðan um
það hvernig hægt væri að herða
þau. Vandamálið var þá að höftin
láku en ekki að þau höfðu verið
sett á. Það er undarlegt hvað við
getum aðlagast hratt þessu von-
lausa kerfi,“ segir Jón og bætir
við að hefði Össur ekki fengið und-
anþágu frá gjaldeyrishöftunum og
skilaskyldu á gjaldeyri hefði fyrir-
tækið flutt höfuðstöðvarnar til út-
landa. „Erlendir fjárfestar sættu
sig ekki við að hér sé skilaskylda.
Við hefðum flutt í umhverfi þar
sem fjárfestar þekkja reglurnar,
svo sem til Bandaríkjanna eða
landa ESB.“
Þá gagnrýna þeir harðlega þær
tafir sem orðið hafa á endurreisn
efnahagslífsins. Þeir skrifa það
á reynsluleysi og því sem næst
barnaskap stjórnmálamanna.
„Þessi litla þjóð sem stendur
frammi fyrir þessum mikla vanda
má ekki við svona löguðu. Umræð-
an má ekki fara í tittlingaskít og
hártoganir,“ segir Jón. Hilmar
tekur við keflinu. „Kerfið hefur
verið lamað í ár. Það hefði verið
auðvelt að díla við hrunið. Grunn-
hagkerfi landsins beið ekki tjón og
enginn dó. En síðan komu meðul-
in; gjaldeyrishöft og málþóf um
Icesave. Þetta er okkar vandamál
og það er algjörlega sjálfskapað.“
Ár rekstrarmannanna runnið upp
Sparaðu á nýju ári!
Endurunnin dufthylki eru allt að 50% ódýrari
heldur en dufthylkin frá framleiðanda.
15% auka kynningarafsláttur í janúar.
Hafðu samband við okkur í síma 580-0000
og athugaðu hvort við eigum endurunnið
dufthylki í prentarann þinn.
580-0000
NÝTT SÍMANÚMER HJÁ A4 SKRIFSTOFU OG SKÓLA
Af hverju að sækja þegar þú getur fengið sent?
Smáratorgi + Kópavogi
Sími 580 0000 + www.a4.is
Tegund hylkis HP
12A 17.990 kr. 7.690 kr. 6.537 kr.
49A 17.990 kr. 9.790 kr. 8.322 kr.
15A 14.990 kr. 8.290 kr. 7.047 kr.
Q6000A 18.990 kr. 9.900 kr. 8.415 kr.
Q6001A 20.990 kr. 10.990 kr. 9.342 kr.
Q6002A 20.990 kr. 10.990 kr. 9.342 kr.
Q6003A 20.990 kr. 10.990 kr. 9.342 kr.
Verðdæmi 15%
AFSLÁTTUR
Verð frá
6.537 kr.
Hilmar V. Pétursson, forstjóri netleikjafyrirtækisins CCP, og Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjaframleiðandans Össurar, eru
menn ársins í viðskiptalífinu árið 2009 í kosningu Markaðarins. Þeir þykja hafa stýrt fyrirtækjunum vel og náð að halda stefnu
þrátt fyrir hamfarir í íslensku efnahagslífi. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson ræddi við þá um rekstrarumhverfið og horfurnar.
MENN VIÐSKIPTALÍFSINS Í ÁR Þeir Hilmar V. Pétursson og Jón Sigurðsson segja tafir
á endurreisn efnahagslífsins sjálfskapaðan vanda. Stjórnmálamenn verði að læra að snúa
bökum saman. Markaðurinn/Anton