Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 30

Fréttablaðið - 30.12.2009, Side 30
MARKAÐURINN 30. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR6 M E N N V I Ð S K I P T A L Í F S I N S 2 0 0 9 Þ etta hefur verið ár ís- lenskra framleiðslu- fyrirtækja eftir mörg erfið undanfarin ár. Svo tók einn dómnefnd- armanna til orða í rökstuðningi sínum fyrir vali á manni ársins í íslensku viðskiptalífi. Þegar talið var upp úr köss- unum að þessu sinni reyndust menn viðskiptalífsins tveir: þeir Hilmar V. Pétursson, forstjóri netfyrirtækisins CCP, sem á og rekur fjölþátttökuleikinn EVE Online, og Jón Sigurðsson, for- stjóri stoðtækjafyrirtækisins Öss- urar, sem hlýtur titilinn í annað sinn á jafn mörgum árum. Árið var báðum fyrirtækjum gott. CCP hagnaðist um 6,2 millj- ónir dala á fyrstu sex mánuð- um ársins og rauf við það millj- arðakróna múr sprotafyrirtækja. Fyrirtækið er með nokkra fjölþátt- tökuleiki í smíðum, þar á meðal byltingarkennda skotleikinn Dust 514. Þá sló CCP enn eitt metið þegar áskrifendur urðu rúmlega 320 þúsund fyrr í þessum mán- uði og urðu þá þremur þúsundum fleiri en íslenska þjóðin. Þegar hefur verið fjallað um Össur og verður það ekki gert hér. VILJA AÐILD AÐ ESB Þeir Jón og Hilmar, sem hlutu jafn mörg stig, voru ekki að hitt- ast í fyrsta sinn þegar þeir settust niður með blaðamanni Markaðar- ins. „Við höfum oft spjallað saman um rekstur fyrirtækja hér og framtíðarhorfur,“ segir Jón og rifjar upp þegar þeir, ásamt for- ráðamönnum Marels og samheita- lyfjafyrirtækisins Actavis, fund- uðu með ráðherrum, þingmönnum og ýmsum öðrum í stjórnsýslunni á fyrstu fjórum mánuðum ársins um leiðir út úr kreppunni með langtímasjónarmið að leiðarljósi. „Við vildum koma sjónarmiðum okkar áleiðis. Það er þetta klass- íska, aðild að Evrópusambandinu (ESB) og upptaka evru,“ bætir Hilmar við. Önnur mál á dag- skrá voru eðli bankastarfsemi hér í framtíðinni, afnám gjaldeyris- hafta og samskipti við útlönd. Þeir segja ráðamenn hafa tekið vel í aðild Íslands að ESB á fyrri hluta árs. Eftir því sem leið á árið hafi viðhorfið snúist við. „Við reyndum að koma þess- ari umræðu upp úr þeim hjólför- um sem hún var í. Undirtektirnar voru ótrúlega jákvæðar og í engu hlutfalli við það sem seinna varð,“ segir Jón. „Nú er engu líkara en við séum að fleka fjallkonuna.“ Þeir eru sammála um að rekstr- arhorfur alþjóðlegra fyrirtækja sem staðsett eru hér á landi séu mjög slæmar ef ekki verði mörkuð stefna til framtíðar. Hilmar segir í raun aldrei hafa verið mögulegt að ræða um rekstrarhorfur fyrirtækja í því sveiflukennda ástandi sem hér hafi verið um áratuga skeið. „Ég hef oft líkt uppbyggingu í atvinnu- starfsemi hér við það að búa í ár- farvegi. Hann er frjósamur og góður. Þar er fullt af sprotum og mikil gróska. En svo fer að rigna. Þá kemur flóð og það ryður öllum sprotunum í burtu. Þegar grynn- kar aftur í ánni er aftur talað um hvað farvegurinn er góður. Svona gerist þetta á um tíu ára fresti. Það er sama hvort krónan er fasttengd, undir höftum eða handstýrð. Það hafa verið reynd ýmis kerfi með krónur en ekkert virðist virka,“ segir hann og leggur áherslu á nauðsyn þess að finna varanlega lausn á gjaldmiðlamálum Íslend- inga. Hann bendir sömuleiðis á að myntsvæði heimsins hafi stækk- að síðustu ár og orðið einfaldari. Það haldist í hendur við alþjóða- væðinguna og aukinn hraða í sam- skiptum og viðskiptum. PÉTURSKRÓNAN Á BÍLDUDAL Hilmar bendir á að krónan hafi virkað vel í einangruðu samfélagi þar sem viðskipti við útlönd voru lítil sem engin. Þeir Jón taka Péturskrónur sem dæmi. Sú króna var mynt sem at- hafna- og kaupmaðurinn Pétur Thorsteinsson á Bíldudal notaði í viðskiptum sínum við heimamenn í kringum síðustu aldamót. Þær hafi gegnt hlutverki sínu í samfé- laginu sem þá var mjög einangr- að. „Þetta hrundi auðvitað allt hjá honum þegar fólk gat farið yfir á Patreksfjörð,“ segir Jón og bendir á að sama máli gegni um íslensku krónuna. Hún sé óvirkur gjald- miðill í alþjóðlegum viðskiptum. „Krónan hefur nýst okkur jafn vel og svarthvíta sjónvarpið á sínum tíma. Það var gott en nú er bara komið litasjónvarp. Við getum haldið áfram og talað um hvað árfarvegurinn er frjór og góður og vonað að það fari ekki að rigna. Eða við gerum það sama og aðrar þjóðir í kringum okkur hafa komist að og taka þátt í alþjóðlegu samstarfi.“ EINKENNILEG ANDSTAÐA Þeir Jón og Hilmar furða sig á þeirri andstöðu sem orðin er gegn aðild Íslands að ESB. Fram- tíðarleið sem þeir telja farsæla til frambúðar. „Það er partur af samfélaginu sem virðist hafa stóra hagsmuni af því að beita sér gegn ESB og beitir öllum klækj- um til að mála það sem vond út- lendingasamtök sem vilji koma höndum yfir allt sem hér er. Það stenst enga skoðun,“ segir Hilm- ar og bendir á að þótt andstaðan kunni að þjóna sérhagsmunum þá gangi viðhorfið ekki upp. Íslensk fyrirtæki verði að tryggja sér fjármögnun sem að mestu leyti sé erlend. Það komi sér afar illa þegar gengi krónunnar sveiflist til og frá sem lauf í vindi. Einu rökin fyrir krónunni telur hann vera þau hversu öfl- ugt stjórntæki hún hafi reynst í gegnum tíðina. „Hún hefur verið tæki fyrir stjórnvöld til að stýra kaupmætti almennings án þess að hann upplifi það. En þetta er ekki svona lengur,“ segir hann og bendir á að almenningur sé að gera sér grein fyrir þessu. Skýr- asta dæmið sé verð á appelsínu- safa sem í erlendri mynt hefur lítið sem ekkert breyst milli ára. Öðru máli gegni um verð á app- elsínusafa hér, sem sveiflist út um allar trissur. HÆTTIR AÐ HUGSA Í KRÓNUM Eftirtektarvert er að menn við- skiptalífsins að mati dómnefndar Markaðarins hugsa ekki í krón- um. „Við hættum að nota krón- ur árið 2002 og hugsum alfar- ið í erlendri mynt,“ bendir Jón á en fyrirtækið gerir upp í Banda- ríkjadölum. Sömu sögu er að segja af CCP, sem lagði krónuna niður sem starfsrækslumynt árið 2006 og hefur greitt starfsfólki laun í evrum frá því snemma á þessu ári. Starfsfólk Össurar fær laun sín enn greidd í krónum. Þeir segja vandasamt að skipta út gjaldmiðli einhliða hjá fyrir- tækjum hér enda sé krónan raun- veruleiki starfsfólksins sem starfi hjá fyrirtækjunum hér. „Við getum ekki ákveðið þetta fyrir starfsfólk okkar. Þótt færa megi rök fyrir því að skiptin séu skammtímaávinningur fyrir starfsfólkið þá er langtímaáhætta fólgin í því. Í raun vorum við að selja starfsfólkinu gengisáhættu. En við vildum bjóða upp á þetta og héldum námskeið fyrir fólkið. Þótt evran liti vel út þá varð starfsfólk- ið að breyta lífi sínu í samræmi við það,“ segir Hilmar. HEIMATILBÚINN VANDI Menn viðskiptalífsins í ár segja einkennilegt ástand ríkja hér á landi. Mjög hafi verið þrengt að fyrirtækjum eftir hrun banka- geirans fyrir rúmu ári og virð- ist sem fólk líti á það helsi sem á það hafi verið lagt sem sjálf- sagðan hlut. „Nokkrum vikum eftir að gjaldeyrishöft voru sett á í fyrra snerist öll umræðan um það hvernig hægt væri að herða þau. Vandamálið var þá að höftin láku en ekki að þau höfðu verið sett á. Það er undarlegt hvað við getum aðlagast hratt þessu von- lausa kerfi,“ segir Jón og bætir við að hefði Össur ekki fengið und- anþágu frá gjaldeyrishöftunum og skilaskyldu á gjaldeyri hefði fyrir- tækið flutt höfuðstöðvarnar til út- landa. „Erlendir fjárfestar sættu sig ekki við að hér sé skilaskylda. Við hefðum flutt í umhverfi þar sem fjárfestar þekkja reglurnar, svo sem til Bandaríkjanna eða landa ESB.“ Þá gagnrýna þeir harðlega þær tafir sem orðið hafa á endurreisn efnahagslífsins. Þeir skrifa það á reynsluleysi og því sem næst barnaskap stjórnmálamanna. „Þessi litla þjóð sem stendur frammi fyrir þessum mikla vanda má ekki við svona löguðu. Umræð- an má ekki fara í tittlingaskít og hártoganir,“ segir Jón. Hilmar tekur við keflinu. „Kerfið hefur verið lamað í ár. Það hefði verið auðvelt að díla við hrunið. Grunn- hagkerfi landsins beið ekki tjón og enginn dó. En síðan komu meðul- in; gjaldeyrishöft og málþóf um Icesave. Þetta er okkar vandamál og það er algjörlega sjálfskapað.“ Ár rekstrarmannanna runnið upp Sparaðu á nýju ári! Endurunnin dufthylki eru allt að 50% ódýrari heldur en dufthylkin frá framleiðanda. 15% auka kynningarafsláttur í janúar. Hafðu samband við okkur í síma 580-0000 og athugaðu hvort við eigum endurunnið dufthylki í prentarann þinn. 580-0000 NÝTT SÍMANÚMER HJÁ A4 SKRIFSTOFU OG SKÓLA Af hverju að sækja þegar þú getur fengið sent? Smáratorgi + Kópavogi Sími 580 0000 + www.a4.is Tegund hylkis HP 12A 17.990 kr. 7.690 kr. 6.537 kr. 49A 17.990 kr. 9.790 kr. 8.322 kr. 15A 14.990 kr. 8.290 kr. 7.047 kr. Q6000A 18.990 kr. 9.900 kr. 8.415 kr. Q6001A 20.990 kr. 10.990 kr. 9.342 kr. Q6002A 20.990 kr. 10.990 kr. 9.342 kr. Q6003A 20.990 kr. 10.990 kr. 9.342 kr. Verðdæmi 15% AFSLÁTTUR Verð frá 6.537 kr. Hilmar V. Pétursson, forstjóri netleikjafyrirtækisins CCP, og Jón Sigurðsson, forstjóri stoðtækjaframleiðandans Össurar, eru menn ársins í viðskiptalífinu árið 2009 í kosningu Markaðarins. Þeir þykja hafa stýrt fyrirtækjunum vel og náð að halda stefnu þrátt fyrir hamfarir í íslensku efnahagslífi. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson ræddi við þá um rekstrarumhverfið og horfurnar. MENN VIÐSKIPTALÍFSINS Í ÁR Þeir Hilmar V. Pétursson og Jón Sigurðsson segja tafir á endurreisn efnahagslífsins sjálfskapaðan vanda. Stjórnmálamenn verði að læra að snúa bökum saman. Markaðurinn/Anton

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.