Fréttablaðið - 30.12.2009, Blaðsíða 45
MARKAÐURINN 17MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 2009
V I Ð Á R A M Ó T
E
rfitt ár er nú brátt að
baki. Eftir hrun það sem
varð á síðari hluta árs
2008 hefur uppbygging
gengið hægar en vonir
stóðu til. Tímanum hefur þó ekki
verið varið til einskis heldur hefur
margt áunnist.
NAUÐSYNLEGAR AÐGERÐIR
Endurreisn bankanna er nú lokið
og tveir þeirra verða brátt í meiri-
hlutaeigu erlendra aðila. Búið er
að afgreiða fjárlög ársins 2010 á
Alþingi eftir eina erfiðustu fjár-
lagagerð í manna minnum. Í
þessum fjárlögum er meiri nið-
urskurður og meiri skattahækk-
anir en við höfum séð í langan
tíma. Þó að þetta séu ekki vinsæl-
ar aðgerðir, ef til vill megi færa
rök fyrir því að skeri eigi annað
niður en gert er í þessum fjár-
lögum og ef til vill hefði mátt út-
færa skattabreytingar með öðrum
hætti, þá eru aðhaldsaðgerðirn-
ar nauðsynlegar til að koma í veg
fyrir áframhaldandi skuldasöfn-
un ríkissjóðs. Þegar þetta er skrif-
að á enn eftir að afgreiða Icesa-
ve-málið frá Alþingi, en vonandi
gerist það á næstu dögum.
Allt eru þetta mál sem þurfti að
afgreiða sem afleiðingar hruns-
ins. En hvað tekur nú við? Hvað
ber framtíðin í skauti sér? Marg-
ir eru svartsýnir á framtíðina, en
við megum ekki gleyma því að í
erfiðleikunum leynast tækifæri.
Framtíðin er ekki endilega það
sem að okkur er rétt, heldur allt
eins það sem við ákveðum að gera
úr henni.
STERK EFTIR UPPSTOKKUN
Jú, það er rétt að fjölmörg fyrir-
tæki eiga í fjárhagsvanda. Það er
einnig rétt að fjölmargar fjölskyld-
ur eiga við skuldavanda að etja. Í
umræðunni er oft eins og öll fyrir-
tæki eigi í fjárhagsvanda og allar
fjölskyldur eigi í skuldavanda.
Þetta er rangt. Það er áætlað að
um helmingur fyrirtækja eigi
við fjárhagsvanda að etja og um
fimmtungur heimila sé í skulda-
vanda. Bankarnir ásamt ríkis-
sjóði bjóða nú upp á fjölmörg úr-
ræði til handa þeim hópi sem þarf
á aðstoð að halda og er sjálfsagt
fyrir þá að nýta sér þessi úrræði.
Þá hefur verið bent á að þessi úr-
ræði nýtist ekki öllum. Satt er það.
Sum fyrirtæki eru í slíkum vanda
að ekki eru til úrræði önnur en að
slíta rekstri. Sumir einstaklingar
fóru fram úr sér á góðæristímum
og hefðu lent í alvarlegum skulda-
vanda óháð því hvort kreppa hefði
skollið á eða ekki. Endurskipu-
lagning fjárhags fyrirtækja og
heimila mun taka tíma og vera
sársaukafull fyrir marga. En
að endurskipulagningu lokinni
stöndum við eftir með sterkari
efnahag til framtíðar.
MIKILVÆGT AÐ LJÚKA ICESAVE
En hvar viljum við vera eftir ára-
tug? Hvaða valkostir eru á borð-
inu? Okkur stærstu ákvarðanir til
framtíðar lúta að stöðu Íslands í
alþjóðasamfélaginu. Eins og er
vilja fáar erlendar fjármálastofn-
anir eiga við okkur viðskipti og
við höfum sett ströng höft á flæði
gjaldeyris út úr landinu. Takist
okkur að klára Icesave-málið er
einungis tímaspursmál hvenær
okkur tekst að taka upp eðlileg
samskipti við erlendar fjármála-
stofnanir. Ég tel hins vegar litl-
ar líkur á því að okkur takist að
afnema gjaldeyrishöftin. Eitt af
skilyrðum um Evrópska efna-
hagssvæðið er frjálst flæði fjár-
magns. Með gjaldeyrishöft upp-
fyllum við ekki skilyrði EES-
aðildar og höfum ekki gert nú í
ríflega ár.
STEFNUM FRAM Á VIÐ
Ef við stefnum á aðild að Evrópu-
sambandinu og upptöku evrunnar
er ólíklegt að aðildarríki Evrópu-
sambandsins muni láta gjaldeyr-
ishöftin á sig fá þar sem um tíma-
bundna ráðstöfun yrði að ræða. Ef
aftur á móti hik er í aðildarvið-
ræðum og ef Icesave-málið dregst
enn á langinn verður að telja ólík-
legt að áframhaldandi aðild að
EES sé í boði. Líklegast er því að
valkostirnir séu aðild að Evrópu-
sambandinu og upptaka evrunn-
ar eða Ísland utan EES. Hið fyrra
er skref fram á við, en hið síðara
er skref aftur á bak. Ég vil stefna
fram á við.
Katrín Ólafsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík:
Hvar viljum við vera árið 2020?
Frábært verð á bréfabindum!
SÉRPRENTAÐAR MÖPPUR MÚSAMOTTUR
DAGBÆKUR
TÖLVUBRETTI
KÓRMÖPPUR
BELL PENNAR
TÍMARITABOX
TILBOÐ!
Tímaritabox í ýmsum litum.
Bláar og gráar möppur í stærðinni
A5 á sérstöku tilboðsverði.
Sérprentuð mappa segir allt sem segja þarf.
Með glærum vösum 10-20-30-40-60-80
Svartir og rauðir.
50 stk í pakka
PENAC PENNAR
Þrælgóðir kúlupennar.
Rautt - Svart - Blátt
Litríkir USB minnislyklar. Fáanlegir í
2GB, 4GB, 6GB, 8GB og 16GB
Draga úr líkum á vöðvabólgu í öxlum
Minna álag á mjóbak
Dagbækur af ýmsum stærðum og gerðum.
Merktar og letrað á þær eftir óskum hvers og eins.
Undirskriftarmottur/músarmottur - Ýmsar stærðir
H á t ú n i 1 0 c • S : 5 6 2 - 8 5 0 0 • F a x : 5 5 2 - 8 8 1 9 • w w w . m u l a l u n d u r . i s
USB MINNISLYKLAR
ÁHERSLUPENNAR
Litríkir áherslupennar á
frábæru tilboði.