Fréttablaðið - 02.01.2010, Qupperneq 24
24 2. janúar 2010 LAUGARDAGUR
Þekktasta bygging arki-
tektanna Steinþórs Kára Kára-
sonar og Ásmundar Helga
Sturlusonar er Menntaskóli
Borgarfjarðar í Borgarnesi.
Arkitektarnir fengu
Menningarverðlaun DV 2008
fyrir bygginguna og komust
nýverið í 25 manna úrslita-
hóp í samkeppni tímaritsins
Architectural Review en
um 500 framlög bárust í þá
keppni.
Menntaskólinn er klædd-
ur kopar sem hefur sterka
skírskotun til umhverfisins
og spilar með því og á það.
Tengsl byggingarinnar við
umhverfi sitt eru sterk, bæði
í efnisvali og formi. Stórir
gluggar ramma til að mynda
útsýnið inn og draga það inn í
bygginguna.
BYGGING SEM VAKIÐ HEFUR ATHYGLI
sem byggingin er nú. Sömuleiðis
minna veggklæðningar úr koluðu
timbri á mýrina sem var.
Einbýlishúsin eru í úthverf-
um á höfuðborgarsvæðinu, sem
mikil uppbygging varð á í góð-
ærinu undanfarin ár. Ásmund-
ur og Steinþór Kári eru ekki
mjög hrifnir af þeim línum sem
voru lagðar þá – hverfin eru flest
bara aðgengileg í bíl og yfirhöfuð
hefur borgarskipulagið tekið allt-
of mikið mið af einkabílnum að
þeirra mati.
Gangstéttin vanmetin
„Það má líka velta fyrir sér af
hverju hverfi eins og Þingholtin
eru jafn vinsæl og þau eru, þar er
skipulagið einfaldlega hús gang-
stétt götur, göturnar eru svokall-
aðar gegnumakstursgötur þannig
að um þær liggur bílaumferð en
þar þykir fólki gott að vera.“
segir Steinþór Kári sem bendir á
að börn sem alast upp við þannig
götur læri á umhverfið og umferð-
ina, þannig að í sjálfu sér sé ekki
hægt að skilgreina þær hættu-
legri.
„Gangstéttin er líka mjög van-
metið fyrirbæri í borgarskipu-
lagi,“ segir Ásmundur og bendir
blaðamanni á að leiða hugann að
muninum á því að ganga á Lauga-
veginum neðst – þar sem hann
blasir við út um gluggann, eða
ofar, til dæmis við Kjörgarð, þar
sem skil bílastæða og gangstétta
eru miklu óljósari með tilheyr-
andi óöryggi gangandi vegfar-
enda, skýrari skil geri gangstétt-
ina miklu betri fyrir þá sem
gangandi eru og hjálpi þeim að
fóta sig í borginni.
Við erum sem sagt aftur komin
frá húsum og út á götu í samræðu
okkar, þar sem hjarta borgarinn-
ar slær. Blaðamaður vill þó gjarn-
an fá að vita að lokum hvort þeir
eigi óteiknað draumahús. „Við vilj-
um bara fá að byggja borg, halda
áfram að byggja borg,“ er svarið
og með það er kvatt.
MYND/SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
MYND/HÅKAN LUDWIGSONMYND/HÅKAN LUDWIGSON
MYND/SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær
OPIÐ Í DAG
Starfsfólk Nettó óskar
landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs
2 0 01