Fréttablaðið - 02.01.2010, Blaðsíða 44
32 2. janúar 2010 LAUGARDAGUR
Strengdir þú áramótaheit? Ef svo, þá hver? Já, að fara
reglulega í gufubað og vera þar lengi í hvert sinn
Ertu orðin það sem þú ætlaðir að verða þegar þú
yrðir stór? Mig langaði að verða bóndi og rithöfundur,
ég er að skrifa en á eftir að koma mér upp geitabúi.
Hver er mest framandi staðurinn sem þú hefur
komið til? Kíev í Úkraínu var framandi á sínum tíma,
rétt eftir fall múrsins og nýja kerfið ekki komið í gang,
ég lenti í millibili og ómögulegt að kaupa miða þaðan.
Ef þú ættir tímavél, hvert myndirðu fara og af
hverju? Ég myndi fara aftur til endurreisnartímans
til að kanna hvernig þeir komu saman upplýsingar-
kanónunni, athuga hvað það var sem þeir áætluðu að
brenna, taka það í skjóðu og koma með það hingað í
gegnum eldinn.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér vöku á nóttunni?
Mér finnst oft gott að vinna um nætur en jú, stundum
ligg ég andvaka. Þá er ég yfirleitt að reyna að skipu-
leggja komandi dag en svo bjarga draumarnir mér.
Hvaða bækur eru á náttborðinu? Að morgni var ég
alltaf ljón eftir Arnild Lauveng í þýðingu Sigrúnar
Árnadóttur, Mynd af Ragnari í Smára eftir Jón Karl
Helgason og ljóðabókin Rennur upp um nótt eftir Ísak
Harðarson.
Hvaða bók vilt þú sjá sem bíómynd? Sandárbókina
eftir Gyrði Elíasson.
Eftirlætislykt? Af brenndum laufblöðum.
Hvar er fallegast á Íslandi? Inni á öræfum þar sem
sandurinn er svartastur.
Ertu með einhverja kæki? Hverja? Til dæmis að
syngja sömu línu úr lagi aftur og aftur.
Hvað gerist að loknu þessu jarðlífi? Ég held að þá
taki við hressandi hreinsunareldur í öllum litum en
ekkert helvíti.
Hver er leiðin út úr kreppunni? Róttæk virkjun
borgarasamfélagsaflsins og þróunarvinna í átt að
sjálfbærni með skærgrænum og voguðum lausnum.
Hvers væntir þú af nýju ári? Enn meiri ástar og
aðeins meira réttlætis í heiminum.
Væntir meiri ástar og aðeins
meira réttlætis á nýju ári
Rithöfundurinn Oddný Eir Ævarsdóttir sendi nýverið frá sér bókina Heim til míns hjarta sem hefur hlotið lofsamlega dóma.
Fréttablaðið fékk hana í þriðju gráðu yfirheyrslu.
Á EFTIR AÐ KOMA SÉR UPP GEITABÚI Oddnýju dreymdi um að vera rithöfundur og bóndi þegar hún var lítil, annar draumurinn ef tveimur hefur ræst.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir:
Styrkir til náms
og rannsókna
á sviði umhverfis-
og orkumála
Í boði eru styrkir til nemenda í meistara-
eða doktorsnámi og styrkir til rannsókna
á sviði umhverfis- og orkumála.
Heildarupphæð styrkja að þessu sinni er
allt að 50 m. kr.
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu
Landsvirkjunar, www.lv.is.
Fyrirspurnir má senda á netfangið
orkurannsoknasjodur@lv.is.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 2010.
Auglýst er eftir umsóknum um námsstyrki og verkefnastyrki