Fréttablaðið - 07.01.2010, Page 32
7. JANÚAR 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● íþróttafatnaður
Svona leit sundfatnaður út í upphafi þriðja
áratugarins.
Elstu heimildir um notkun sund-
fatnaðar eða réttara sagt baðfatn-
aðar má rekja til daga Pompei
þegar konur huldu nekt sína með
klæðum sem líktust helst bikiní,
eins og það leit út á 7. áratug síð-
ustu aldar. Þegar fólk fór í aukn-
um mæli að ferðast og stunda bað-
strendur samhliða því um miðja
18. öld fóru konur í sjóinn klæddar
sérsniðnum kjólum og menn í
fatnaði sem minnti á föðurland.
Allt fram til upphafs 20. aldar
var áhersla lögð á að sýna sem
minnst af holdi. Upp úr 1920
fóru flíkurnar hins vegar að
verða efnisminni og síðan þá
hefur almennt meira frjálsræð-
is gætt í sundfatatísku á Vestur-
löndum. - rve
Tískan gengur í
hringi. Sundbolir
með gamaldags
sniði hafa verið vin-
sælir í seinni tíð.
Sundfatnaður í
aldanna rás
Sundfatnaður er
nú ívið efnisminni
en í upphafi þegar
konur syntu um í
síðkjólum.
N
O
RD
IC
PO
TO
S/
G
ET
TT
● FJÖLBREYTTIR J Eftir
að frægasti körfuboltamað-
ur sögunnar, Michael Jor-
dan, hafði slegið í gegn á sínu
fyrsta tímabili í bandarísku
NBA-deildinni um miðjan ní-
unda áratuginn sá íþróttavöru-
framleiðandinn Nike sér leik
á borði og gerði gríðarlega
ábatasaman auglýsingasamn-
ing við leikmanninn. Liður í
samningum var framleiðsla á
körfuboltaskóm sem bera nafn
og ásjónu Jordans. Skórnir,
Nike Air Jordans, hafa æ síðan
notið vinsælda og hefur ný út-
gáfa af þeim litið dagsins ljós
á hverju ári, jafnvel eftir að Jor-
dan hætti keppni í NBA.
Eins og títt er með vinsæl-
ar íþróttavörur hafa Jordan-
skórnir birst í ýmsum myndum
í gegnum tíðina. Meðal þeirra
eru skór með mynd af Banda-
ríkjaforsetanum Barack Obama
og athyglisverð kvenmannsút-
gáfa með háum hælum. Ekki
fer sögum af vinsældum þess-
ara ákveðnu útfærslna.
● ÚR ÆFINGAFÖTUM Í
PARTÍGALLA Íþróttagall-
ar voru fyrst hugsaðir utan yfir
æfingaföt en síðar meir fór fólk
að nota þá í frístundum. Árið
1964 hóf Adidas að framleiða
íþróttagalla með þremur rönd-
um á hliðunum sem nutu vin-
sælda. Það var hins vegar ekki
fyrr en upp úr 1970 sem farið
var að líta á þá og aðra íþrótta-
galla sem tískufyrirbæri. Á 8.
áratugnum komu síðan svo-
kallaðir krumpugallar fram á
sjónarsviðið en þeir voru búnir
netfóðri og glansandi nælon-
og políesterefni. Gallarnir eru
einkennandi fyrir eitís-tíma-
bilið og þóttu hin bestu partí-
klæði.
8