Samtíðin - 01.02.1958, Síða 35

Samtíðin - 01.02.1958, Síða 35
SAMTÍÐIN 31 «■ ÞEIR VITR8J söcðu: SNORRI HJARTARSON: „tJtlegð frá sinni eigin tungu er skáldi óþol- andi. Auk þess er ég alveg sannfærð- ur um, að það er ekki hægt að ná fín- ustu blæbrigðum tungunnar nema hafa drukkið hana í sig með móður- mjólkinni. Það er því útilokað að verða Ijóðskáld á erlenda tungu.“ CELIA LUCE: „Smávægilegir örð- ugleikar eru eins og steinvala. Berðu hana upp að augum þér, og hún byrgir þér útsýnið. Haltu henni frá þér í hæfilegri fjarlægð, og þú munt geta rannsakað og skilgreint hana. Varpaðu henni fyrir fætur þér, og mun þá koma í ljós, hvað hún er: aðeins örlítil hindrun í viðbót á leið- inni inn í eilífðina.“ JAMES CAGNEY: „Verk er fólgið í því að vinna. Ef þú ætlar þér að skrimta af, verðurðu að þræla“. JEAN COCTEAU: „Háttvísi er í því fólgin að vita, hve langt er óhætt að fara yfir öll sæmileg takmörk“. HARRIET BEECHER STOWE: „Þegar þú ert kominn í hann veru- lega krappan, öll sund virðast lokuð og þér finnst þú vera að guggna, skaltu aldrei gefast upp, því að þá er einmitt að því komið, að allt fer að ganga þér í vil“. PASCAL: „Því gáfaðri sem menn eru, þeim mun meiri frumleik sjá þeir hjá öðrum. Venjulegu fólki sýn- ist allir eins.“ A. USSHER: „Síðasta vélabragð djöfulsins er að þykjast vera dauður.“ IMYJAR BÆKUR Sveinn Björnsson: Endurminningar. Sjálfsævisaga fyrsta forseta íslands. Sig- urSur Nordal sá um útgáfuna. 320 bls., ib. kr. 240.00. Jón R. Hjálmarsson: Atburðir og ártöl. 50 bls., ób. kr. 15.00. Guðni Jónsson: íslenzkir sagnaþættir og þjóðsögur XI. hefti. 176 bls., ób. kr. 40.00. Guðmundur G. Hagalín: í kili skal kjör- viður. Saga Marínusár Eskilds Jessens fyrrverándi vélstjóraskólastjóra, skráið eftir sögu hans sjálfs. 343 bls., íb. kr. 165.00. Ólafía Jóhannsdóttir: Rit I—II. Frá myrkri til ljóss, Endurminningar. Aum- astur allra. Inngangur eftir Bjarna Benediktsson. 210 + 132 bls., ib. kr. 190.00. Peter Hallberg: Vefarinn mikli I. hindi. Um æskuskáldskap Halldórs Kiljans Laxness. Björn Th. Björnsson þýddi. 195 bls., ib. kr. 144.00 og 190.00. Eyjólfur Guðmundsson: Merkir Mýrdæl- ingar (Skaftfellinga rit). Með æviágripi höfundar eftir Jón A. Jónsson. 320 bls., ib. kr. 195.00. Arnór Sigurjónsson: Einars saga Ásmunds- inundssonar. Fyrra bindi. Bóndinn í Nesi. 352 bls., íb. kr. 210.00. Björn Magnússon: Guðfræðingatal 1847— 1957. Æviágrip allra, sem lokið hafa embættisprófi í guðfræði. 384 bls., íb. kr. 225.00. Ævisaga Sigurðar Ingjaldssonar frá Bala- skarði I—II. Rituð af honum sjálfum. 2. útg. Freysteinn Gunnarsson ritaði for- mála og sá um útgáfuna. 352 bls., íb. kr. 235.00. Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið bækurnar og ritföngin þar, sem úrvalið e'r mest. — Sendum gegn póstkröfu um land allt. BÓKAVERZLUN ÍSAFOLDARFRENTSMIÐJU H.F. Austurstræti 8, Reykjavík. Sími 1-45-27.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.