Samtíðin - 01.11.1957, Qupperneq 35
SAMTÍÐIN
31
ÞEIR VITRL
rrrrrrrrrrrrrrrrrrrrr: SÖGÐI):
ÞORARINN BJÖRNSSON: „Hvern-
ig sem heimurinn veltist, þó að þið
árið 2000 verðið farin að bregða ykk-
ur til annarra hnatta í sumarleyfinu,
eða hvaða undur önnur, sem kunna
að gerast í mannheimi, verður aldrei
af ykkur létt vandanum að lifa. Þær
stefnur og þau ríki, sem kunna að
láta sér detta í hug að taka af mönn-
um þann vanda, gera manninn minni
og eru fyrr eða síðar dauðadæmd, af
því að þau vinna gegn eðli lífsins.
Vandinn er og verður um fram allt
einstaklingsins.“
BEWAR: „Hamingja okkar mið-
ast við hæfni okkar til að gleyma
sjálfum okkur og stuðla að farsæld
annarra.“
C. F. KETTERLING: „Haltu áfram
göngunni, og þú munt hrasa um eitt-
hvað, þegar þú átt þess sízt von. En
ég hef aldrei heyrt, að sá, sem alltaf
sat í sama farinu, hafi hrasað um
neitt.“
BALZAC: „Um allan heim hafa
menn konu í ráðum, ef þeir ætla að
mynda sér skoðanir á karlmanni.“
D. JERROLD: „Það er svo auðvelt
að vera elskulegur, að mig furðar á,
að nokkur maður skuli vera öðru-
vísi.“
BURTON: „Ef til er kvalastaður á
þessari jörð, er hann í hjarta þung-
lynds manns.“
SAMUEL BUTLER: „Frá sjónar-
miði heimsins er engin yfirsjón jafn
syndsamleg og sú að hafa alltaf á
réttu að standa.“
INIÝJAR BÆKUR
Kristinn Ármannsson: Kennslubók í
dönsku. Fjórða útgáfa. Handa skólum
og útvarpi. 333 bls., íb. kr. 50.00.
Jón Gíslason: Þýzkunámsbók. Önnur út-
gáfa. 343 bls., íb. kr. 60.00.
Somerset Maugham: Catalina. Skáldsaga.
Andrés Björnsson þýddi. 261 bls., íb.
kr. 90.00.
Alexander Dumas: Kamelíufrúin. Skáld-
saga. Björgúlfur Ólafsson þýddi. 227
bls., ób. kr. 85.00, íb. 120.00.
Frank G. Slaughter: Læknir á flótta.
Skáldsaga. Andrés Kristjánsson þýddi.
215 bls., ib. kr. 115.00.
Charles Garvice: Cymbelína hin fagra.
Skáldsaga. Guðmundur Guðmundsson
þýddi. 370 bls., ib. kr. 100.00.
Mika YValtari: Ævintýramaðurinn. Skáld-
saga, er gerist á fyrri hluta sextándu
aldar. Björn O. Björnsson þýddi. 346
bls , íb. kr. 98.00.
Margit Söderholm: Laun dyggðarinnar.
Skáldsaga, sem gerist á Helsingjalandi
á árunum kringum 1830. Skúli Jensson
þýddi. 246 bls., íb. kr. 98.00.
Jón Rafnsson: Vor í verum. Af vettvangi
stéttabaráttunnar á Islandi. 270 bls., ób.
kr. 85.00, ib. 110.00.
Indriði Þorsteinsson: Þeir, sem guðirnir
elska. Sögur. 124 bls., ób. kr. 80.00, ib.
105.00.
Sigurður Heiðdal: Örlög á Litla-Hrauni.
Frásagnir af nokkrum íslenzkum af-
brotamönnum. 163 bls., ób. kr. 65.00, íb.
90.00.
Zóphonías Pétursson: Bridgebókin.
Kennslubók. 349 bls., íb. kr. 98.00.
Grétar Fells: Heiðin há. Orvalsljóð. 104
bls., ób. kr. 100.00.
Jón Sveinsson: Þættir úr endurminning-
um. 100 bls., ób. kr. 50.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaup-
ið bækurn-ar þar, sem úrvalið er mest. —
Sendum gegn póstkröfu um land allt. —
BÓKAVERZLUN
ISAFOLDARPRENTSMIÐJU H.F.
Austurstræti 8, Reykjavík. Sími 14527.