Samtíðin - 01.03.1948, Síða 35
SAMTÍÐIN
31
þeíF VITRU
SÖGÐU:
CERVANTES: „Menn hafa minni
mætur á því, sem er ódýrt, en hinu,
sem er dýrt“.
SAMUEL JOHNSON: „Það, sem
er stórkostlegt, getur ekki verið ó-
dýrt, því að það, sem er ódýrt, er
ekki stórkostlegt“.
JOHN LYLY: „Það, sem er arð-
vænlegast, er rekið með minnstum
kostnaði“.
MONTAIGNE: „Okkur þykir
vænst um það, sem við höfum fórn-
að mestu fyrir“.
RICHARD BAXTER: „Það er erf-
itt að gera stærilátum manni til hæf-
is, vegna þess að hann býst við of
nviklu af öðrum“.
DANTE: „Stærilæti, öfund og á-
girnd eru þeir r.eistar, sem kveikt
hafa bál í sálum allra manna“.
OVID: „Stærilæti magnast eink-
um í meðlæti. Það er næsta örðugt
nð þola meðlæti með jafnaðargeði“.
MONTAIGNE: „Ég hef áhuga fyr-
ir öllum hlutum heimsins. Jörðin
kemur mér að gagni, af því að ég
geng á henni; sólin, af þvi að hún
veitir mér birtu, en stjörnurnar hafa
sín áhrif á mig“.
THOMAS FULLER: „Stærilæti og
fátækt virðist ekki eiga samstöðu í
tilverunni, en eru þó býsna oft sam-
fara hvort öðru“.
SAMI HÖFUNDUR: „Oft leynist
stærilæti undir lóslitnum flíkurn".
LA ROCHEFOUCAULD: „Ef við
værum ekki stærilát sjálf, mundum
við ekki harma stærilæti annarra“.
XÝJAR BÆKUB
Friðrik V. Ólafsson: Ivennslubók í sigl-
ingafræði. Fyrir fiskimenn. Með mynd-
um, 215 bls., íb. kr. GO.OO.
Tichon Semúsjkín: Ljós yfir norðurslóð.
Þjóðfélagslýsing Tjúkota. Halldór Stef-
ánsson íslenzkaði, 237 bls., ób. kr. 23.00,
íb. kr. 30.00.
Björn Magnússon: lvandidatatal 1847—
1947. íslenzkir guðfræðingar 1847—1947.
Minningarrit á aldarafmæli Prestaskól-
ans 11. bindi. Með myndum, 335 bls.
I—II ób. kr. 100.00.
Benjamín Kristjánsson: Saga Prestaskól-
ans og Guðfræðideildar Háskólans 1847
—1947. íslenzkir guðfræðingar 1847—
1947. Minningarrit á aldarafmæli Presta-
skólans. 1. bindi. 5Ieð myiidum, 392 bls.
Nýjar hugvekjur eftir íslenzka kennimenn.
5Ieð myndum af höfundum. Prestafélag
íslands sá um útgáfuna, 439 bls. ib.
kr. 50.00.
Þórir Bergsson: llinn gamli Adam. Sögur,
231 bls., ób. kr. 33.00, íb. kr. 45.00.
Endurminningar frú Gyðu Thorlacius.
Frá dvöl hennar á íslandi 1801—1815.
Með myndum. Sigurjón Jónsson islenzk-
aði, 151 bls., ób. kr. 25.00 og 35.00.
Arbækur Espólíns 10.—11. deild. íslands
árbækur i söguformi. Af Jóni Esþólín,
sýslumanni i Skagafjarðarsýslu. I.jós-
prentað, 300 bls., ób. kr. 55.00.
Sama rit 12. deild, 21 (> bls., ób. kr. 55.00.
Anna Larsen-Björner: Leikliús og helgi-
dómur. Ævisöguþættir. Með myndum.
Sigurður Einarsson íslenzkaði, 143 bls.,
ób. kr. 15.00, íb. kr. 22.00.
Guy Adams: Rússneska hljómkviðan. Ásl-
arsaga. Hersteinn Pálsson íslenzkaði,
335 bls., ób. kr. 25.00, ib. kr. 36.00.
Ötvegum allar fáanlegar íslenzkar bæk-
ur. Fjölbreytt úrval erlendra bóka. Send-
um gegn póstkröfu um land allt.
BáJLii WdL
á ocj memuncjar
Laugavegi 19, Reykjavík.
Sími 5055. Pósthólf 392.