Fréttablaðið - 02.02.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Fréttablaðið er með 143% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í ágúst 2009 – október 2009.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
71,4%
29,3%
ÞRIÐJUDAGUR
2. febrúar 2010 — 27. tölublað — 10. árgangur
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Komdu og skoðaðu það nýjasta í hönnun
og tækni heyrnartækja.Ellisif Katrín Björnsdóttir heyrnarfræðingur
verður með fyrirlestur: Hvað ræður vali heyrnartækja?
Fyrirlesturinn verður haldinn kl 11:00 , 14:00 og 17:00
Gestum fyrirlestranna er boðið upp á að skrá sig
í fría heyrnarmælingu
Opið húsverður í dag 2. febrúar hjá Heyrn í Hlíðasmára 11.
* Heyrnarþjónusta* Heyrnarvernd* Heyrnarmælingar* Heyrnartæki* Ráðgjöf
Ellisif K . Björnsdóttirheyrnar fræðingur
with Surround sound
„Markmiðið er að upplýsa for-eldra og aðra aðstandendur barna um hvernig hægt er að huga aðheilsu barnanna hi
báðir yfir kjörþyngd. Eins er lík-legra að foreldrar sem hheil tilkomu sjó
Hugað að heilsu barna
Hrund Scheving Sigurðardóttir lýðheilsufræðingur hefur opnað vef sem hefur að geyma upplýsingar, ráð
og fróðleik fyrir foreldra sem vilja huga að heilsu barna sinna og koma í veg fyrir að þau verði of þung.
Hrund segir mikilvægt fyrir foreldra að hafa lágmarksþekkingu á næringargildi matar. Hún tekur sem dæmi að hamborgari,
franskar, kokkteilsósa og gos innihaldi jafn margar hitaeiningar og tvær brauðsneiðar með hollu áleggi, skyr, ávaxtadrykkur, sóda-
vatn og skál full af grænmeti.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
JÓGANÁMSKEIÐ FYRIR KARLA er nýjung sem
Rope Yoga-setrið í Engjateigi býður upp á. Sérstaklega er tekið
á stirðleika, orkustyrk og úthaldi. www.ropeyogasetrid.is
VEÐRIÐ Í DAG
HEILSA
Húlahopp, burlesque
og badminton-æði
Sérblað um heilsu
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
heilsa
Burlesque í ReykjavíkJosy Zareen kennir burlesque-dans sem er blanda af djassballett, can can og steppdansi.
BLS. 7
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010
Verðmæti
í betra rými
Nýlistasafnið flytur í
nýtt húsnæði við
Skúlagötu.
TÍMAMÓT 18
Förum að tala saman
„Það er dagljóst að nýtt Ísland er í
burðarliðnum, spurningin er bara
hvernig Ísland“, skrifar Jónína
Michaelsdóttir.
Í DAG 14
HRUND SCHEVING SIGURÐARDÓTTIR
Hefur opnað vefinn
Léttari æska
• heilsa • hringar • iðnaður
Í MIÐJU BLAÐSINS
FÓLK „Það þurfti bara eitt skot
við brosið í munnvikinu,“ segir
Páll Reynisson, eigandi Veiði-
safnsins á Stokkseyri. Hann
fór til Suður-Afríku í nóvem-
ber þar sem hann veiddi í fyrsta
sinn krókódíl með skammbyssu,
auk þess sem hann felldi strút
með skammbyssu og nokkrar
tegundir af antilópum. Honum
tókst þó ekki að klófesta hýenu
þrátt fyrir að hafa legið í leyni
í þrjár nætur. Ljósmyndir
frá veiðiferðinni verða sýnd-
ar á hinni árlegu byssusýningu
Veiðisafnsins sem verður haldin
um helgina.
- fb/sjá síðu 30
Páll Reynisson veiðimaður:
Með óvenjulega
bráð í Afríku
PÁLL REYNISSON Eigandi Veiðisafnsins
á Stokkseyri með krókódílinn sem hann
veiddi í Suður-Afríku.
Níu ára með eigið hárgel
Tveir vinir búa til Bronser sem
keppir við hið fræga Silver.
FÓLK 30
EINAR BJÖRN MAGNÚSSON
Með slangurorðabók
á netinu
Óskar eftir íslensku slangri
FÓLK 30
HEILSA „Við teljum að klukkan á
Íslandi sé of fljót og þess gæti
sérstaklega að vetrinum,“ segir
Björg Þorleifsdóttir lífeðlisfræð-
ingur. Hún er í nýstofnuðum
áhugahópi um „rétta klukku“
ásamt fagfólki á geðdeild Land-
spítalans.
„Við Íslendingar erum með
klukkuna stillta eins og við
séum við 0 gráðu lengdarbaug-
inn en við erum í raun milli 13.
og 22. gráðu vestur. […] Þetta
þýðir að ef við förum á fætur
klukkan sjö að morgni þá erum
við í raun að rífa okkur upp
klukkan hálf sex, samkvæmt
réttri klukku.“
-gun/Sjá ALLT
Áhugahópur um rétta klukku:
Vilja seinka
klukkunni
Úrkomulítið Í dag verða austan
eða suðaustan 5-10 m/s en hvass-
ara við SV-ströndina. Skýjað og
dálítil él V-til en annars víða bjart.
Frost víða 0-7 stig en frostlaust við
S-ströndina.
VEÐUR 4
-2
2
-5
-3
-2
Skoraði í
endurkomunni
Grétar Ólafur Hjartarson
er byrjaður að
spila á ný eft-
ir 18 mánaða
fjarveru.
ÍÞRÓTTIR 26
ÆSTIR AÐDÁENDUR Móttaka var haldin fyrir íslenska landsliðið í handbolta í Laugardalshöll í gær í tilefni þess að það náði þriðja
sætinu á Evrópumeistaramótinu í Austurríki sem lauk um helgina. Björgvin Páll Gústavsson markvörður sést hér, umkringdur
aðdáendum, veita áritanir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
REYKJAVÍK
Skútuvog 1
Sími 562 4011
AKUREYRI
Draupnisgata 2
Sími 460 0800
REYÐARFJÖRDÐUR
Nesbraut 9
Sími 470 2020
Ís
sk
áp
ur
180 cm
149.900
RK60358DE-1
UMHVERFISMÁL Svandís Svavarsdótt-
ir umhverfisráðherra synjaði stað-
festingar skipulagsbreytingum
tveggja sveitarfélaga sem gerðu
ráð fyrir virkjunum í neðri hluta
Þjórsár. Landsvirkjun braut lög
með greiðslum fyrir hluta skipu-
lagsvinnunnar.
Svandís segir lög hafa verið
brotin þegar Landsvirkjun greiddi
fyrir hluta skipulagsvinnu. Um
viðkvæmt ferli sé að ræða og það
þurfi að vera hafið yfir allan vafa
með hvaða hætti sé gripið inn í það.
Í þágu almannahagsmuna hafi ekki
verið stætt á öðru en synjun.
Spurð um afstöðu til virkjana í
neðri hluta Þjórsár segir Svandís
að það eigi að fara varlega í nýjar
virkjanir; jarðhita og vatnsafls.
„Þá þarf að rýna mjög vel hvort
sama kynslóð sem kom okkur fyrir
björg í efnahagslegu tilliti og réð-
ist í Kárahnjúkavirkjun og virkj-
anir á Hellisheiði eigi rétt á því að
ráðstafa öllum mögulegum virkj-
anakostum um ókomna framtíð
eins og það sé ekki fleiri kynslóða
að vænta á Íslandi.“
- kóp/Sjá síðu 4
Umhverfisráðherra telur að fara eigi varlega í allar nýjar virkjanir:
Lög brotin í skipulagsvinnu
LÖGREGLA Piltur sem grunaður er
um stuld á trúnaðargögnum úr
tölvu Gunnars Gunnarssonar, lög-
fræðings hjá Milestone, starfaði
áður hjá lögfræðingnum við upp-
setningu öryggiskerfis fyrir tölv-
ur.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins notaði pilturinn, sem er á
átjánda aldursári, öryggiskóða frá
fyrrum starfsmönnum Milestone til
að komast inn í höfuðstöðvar félags-
ins við Suðurlandsbraut í Reykjavík
að næturlagi í leit að gögnum. Þá er
hann sagður hafa reynt að nota kóð-
ana til að komast inn hjá tengdum
fyrirtækjum í húsinu.
Pilturinn mun hafa verið hand-
tekinn og yfirheyrður vegna máls-
ins í síðustu viku. Friðrik Smári
Björgvinsson, yfirlögregluþjónn
hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu, segir mál tengt gagnastuldi úr
tölvum til rannsóknar hjá embætt-
inu, en kveður þá rannsókn vera á
frumstigi. Hann vill hvorki gefa
upp hver sé grunaður um glæpinn,
nér frá hverjum hafi verið stolið,
eða með hvaða hætti.
Pilturinn er talinn hafa undir lok
desember boðið fréttastofu Stöðvar
2 að kaupa gögn úr tölvu lögfræð-
ingsins, en þar á bæ vildu menn
ekki greiða fyrir upplýsingarnar.
Síðustu vikur hafa birst fréttir í
DV sem kunnugir telja nær víst að
eigi uppruna sinn í stolnu gögnun-
um. Þar á meðal eru fréttir af fjár-
hag Eiðs Smára Guðjohnsen fót-
boltamanns, en Gunnar starfaði
líka fyrir hann. Eiður hefur kært
ritstjóra DV og blaðamann blaðsins
fyrir umfjöllunina.
Reynir Traustason, ritstjóri DV,
segir blaðið ekki upplýsa um hvað-
an upplýsingar sem blaðið byggi
fréttir sínar á séu komnar.
Foreldrar piltsins vildu ekki tjá
sig um málið þegar eftir því var
leitað í gær.
- óká / sjá síðu 6
Stal gögnum úr kerfi
sem hann setti upp
Piltur á átjánda ári, sem grunaður er um gagnastuld, vann við tölvukerfi hjá
lögfræðingnum sem hann á að hafa stolið frá. Hann mun hafa notað gamla
öryggiskóða starfsmanna Milestone til að komast um höfuðstöðvar félagsins.