Fréttablaðið - 02.02.2010, Side 4
4 2. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Ranglega var haft eftir Gunnari
Andersen, forstjóra Fjármálaeftir-
litsins, í gær að áætlaður hagnaður
vegna gjaldeyrissvika hafi numið allt
að fimm milljörðum króna. Beðist er
velvirðingar á því.
LEIÐRÉTTING
DÓMSMÁL Tvö mál sem Byr spari-
sjóður höfðaði á hendur fyrir-
tækjum í eigu Þorsteins Jónsson-
ar og Magnúsar Ármann voru
felld niður í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær þar sem sparisjóður-
inn höfðaði málið fyrir röngum
héraðsdómi. Málin sneru að lán-
veitingum Byrs til eignarhalds-
fyrirtækjanna Materia Invest,
MogS, Runnur, Runnur 2 og Sól-
stafir.
Í lánasamningunum sem spari-
sjóðurinn hafði gert við fyrirtæk-
in kom fram að færu málin fyrir
dóm skyldu þau höfðuð í Héraðs-
dómi Reykjaness. Byr þarf því að
höfða málin að nýju fyrir réttum
dómstól.
Byr þarf að höfða mál að nýju:
Fór fyrir rang-
an dómstól
BYR Lögfræðingar Byrs þurfa að sækja
málið að nýju, nú fyrir réttum dómstóli.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
2°
0°
1°
4°
2°
0°
-1°
-1°
22°
7°
12°
4°
24°
-6°
6°
14°
-5°
Á MORGUN
3-10 m/s, hvassara syðst.
FIMMTUDAGUR
5-10 m/s.
3
2
0
-2
-3
-5
-1
-3
-7
-2
1
8
7
5
6
5
3
8
6
7
2
15
-2
-2
-3
-7-4
-2
0
-4
-6-3
VÍÐA GOTT Veðrið
næstu daga verður
yfi rleitt gott og það
verða í raun-
inni ekki miklar
breytingar fram
að helgi. Í dag og
á morgun verður
úrkomulítið og víða
nokkuð bjart en
á fi mmtudag eru
horfur á smá snjó-
komu eða slyddu
um suðaustan og
austanvert landið.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
STJÓRNSÝSLA Félagsmálaráðuneytið úrskurðaði
ekki í samræmi við lög þegar það synjaði eig-
anda heilsulindar um atvinnuleyfi fyrir sér-
hæfðan nuddara sem hann hafði auglýst eftir
á taílenska heilsulind, samkvæmt úrskurði
umboðsmanns Alþingis.
Forsaga málsins er sú að eigandi nudd-
stofunnar auglýsti eftir starfsmanninum á
heilsulind en gerði meðal annars kröfur um
að starfsmaðurinn skyldi vera útskrifaður úr
virtum taílenskum nuddskóla, kynni skil á
taílenskum spa-hefðum og menningu, að hann
kynni taílensku og gæti haft „snurðulaus
samskipti við eiganda og hugmyndafræðing
heilsulindarinnar“.
Kröfurnar sem gerðar voru áttu við eigin-
konu eiganda nuddstofunnar.
Félagsmálaráðuneytið taldi að eigandinn
hefði í starfsauglýsingunni gert óraunhæf-
ar kröfur til þess sem ráðinn yrði í starfið og
synjaði nuddaranum atvinnuleyfi á grundvelli
þess að fólk á Evrópska efnahagssvæðinu
hefði forgang að vinnu hér á landi. Ráðuneyt-
ið tók þar með undir úrskurð Vinnumála-
stofnunar sem taldi að „umrætt starf krefjist
hvorki slíkrar sérþekkingar né að fullreynt
sé að finna fólk til starfans á Evrópska efna-
hagssvæðinu“.
Umboðsmaður telur með áliti sínu að
úrskurður ráðuneytisins hafi ekki verið reist-
ur á réttum lagagrundvelli og að ráðuneytið
hafi ekki rökstutt mál sitt nógu vel. Úrskurð-
urinn hafi því ekki verið í samræmi við lög.
Hann beinir þeim tilmælum til félagsmála-
ráðuneytisins að það taki málið til nýrrar
meðferðar komi fram ósk þess efnis. - kh
Umboðsmaður Alþingis sendi félagsmálaráðuneytinu tóninn vegna taílensks nuddara:
Ráðuneytið úrskurðaði ekki í samræmi við lög
NUDD Eigandi heilsulindarinnar óskaði eftir sérhæfðum
nuddara sem átti meðal annars að vera útskrifaður úr
virtum taílenskum nuddskóla. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Fyrirlestur Dr. Tal Ben-Shahar hinn
27. mars fer fram í Vodafone-höll-
inni. Forsala á fyrirlesturinn hefst 12.
febrúar á miði.is.
ÁRÉTTING
MENNING Eru líkindi með dómi
sögunnar yfir Gissuri jarli Þor-
valdssyni og áköllum um land-
ráðamenn útrásarinnar? Þessu
veltir Úlfar Bragason, rannsókn-
arprófessor við Stofnun Árna
Magnússonar, fyrir sér í fyrir-
lestri á vegum Sagnfræðingafé-
lagsins í hádeginu í dag.
Hann spyr hvort verið sé
að vísa óbeint til hinnar hefð-
bundnu stórsögu um glæsta
gullöld, sem hafi runnið skeið
sitt á enda vegna svika óþjóð-
hollra manna, og hrópum um
svik Jóhönnu Sigurðardóttur og
annarra ráðherra á Austurvelli
17. júní.
Fyrirlesturinn verður hald-
inn í Þjóðminjasafninu og hefst
klukkan 12.05. - kóp
Sagnfræðingafélagið:
Gissur jarl og
forsætisráðherra
SVEITARFÉLÖG Lífeyrissjóður
starfsmanna sveitarfélaga (LSS)
mun taka yfir rekstur Lífeyr-
issjóðs starfsmanna Kópavogs-
bæjar (LSK) frá og með 1. mars.
LSS mun þá annast allan dagleg-
an rekstur, útreikning og borgun
lífeyris og umsjón með reiknis-
haldi, ásamt móttöku og vörslu
iðgjalda.
LSS hefur gert sambærilega
samninga við sjóði starfsmanna
Reykjavíkur, Húsavíkur, Nes-
kaupstaðar og Akraness.
LSK komst í fréttirnar á síð-
asta ári þegar stjórnin var grun-
uð um lögbrot og var skipaður
umsjónaraðili. Þá kærði Fjár-
málaeftirlitið stjórnina til efna-
hagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra. - kóp
Samningar milli lífeyrissjóða:
Tekur yfir
rekstur sjóðsins
UMHVERFISMÁL Svandís Svavars-
dóttir umhverfisráðherra hefur
fellt úr gildi skipulag tveggja
sveitarfélaga, Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps og Flóahrepps, sem
gera ráð fyrir virkjunum í neðri
hluta Þjórsár. Ástæðan er að þátt-
taka Landsvirkjunar í kostnaði
sveitarfélaga við skipulagsvinnu
hafi stangast á við skipulags- og
byggingarlög.
Svandís segir að í raun hafi
úrskurðurinn verið borðleggj-
andi. Samkvæmt skipulags- og
byggingalögum megi enginn annar
bera kostnað við skipulag en sveit-
arfélag og skipulagssjóður. Þess
vegna hafi greiðslur Landsvirkj-
unar verið ólöglegar og ógilt skipu-
lagið.
Gunnar Örn Marteinsson, odd-
viti Skeiða- og Gnúpverjahrepps,
segir úrskurðinn hafa komið sér
á óvart. Ósanngjarnt sé að Lands-
virkjun komist hjá því að greiða
hluta gjaldanna og þau falli öll á
sveitarfélagið. Hann talar um pól-
itískan leikaraskap.
„Mér finnst enginn tilgangur
vera í þessu í svona pólitískum
leikaraskap, sem mér finnst þetta
nú vera. Ef það er vilji stjórnvalda
að hafna því að fara í virkjanir í
Neðri-Þjórsá á einhverjum svona
forsendum þá sé ég engan tilgang
í því að menn séu að halda áfram
með málið. Ég held að það þurfi
að koma skilaboð frá ríkisstjórn-
inni um það hvaða sýn hún hefur
á þetta.“
Þá segir Gunnar Örn að ramma-
áætlun um nýtingu vatnsafls og
jarðvarma sé væntanleg og hún
hljóti að hafa áhrif á málið.
Gunnar gagnrýnir málsmeðferð
ráðuneytisins. Málið hafi verið
í fjórtán mánuði á borði þess og
sveitarfélagið hafi í tvígang óskað
eftir fundum um það, en verið virt
að vettugi.
Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar, segist hafa orðið
hissa á úrskurðinum. Fyrirtækið
hafi fengið lagalegt álit um aðra
niðurstöðu. Hann segir úrskurð-
inn tefja málið og það verði fyrir
vikið kostnaðarsamara. Hann segir
menn ekki hafa skoðað nákvæm-
lega hvað úrskurðurinn þýði, en
skipulagsferlið verði endurtekið á
einhvern hátt.
Hörður segir úrskurðinn ekki
áfellisdóm yfir Landsvirkjun. „Nei,
nei, alls ekki. Þetta var allt upp-
lýst til ráðuneytisins.“ Hann segir
að á endanum hljóti fyrirtækið að
greiða þennan kostnað, varla geti
menn ætlast til að sveitarfélagið
geri það. kolbeinn@frettabladid.is
Landsvirkjun braut
lög með greiðslum
Umhverfisráðherra hefur fellt úr gildi skipulag sem gerir ráð fyrir virkjunum í
neðri hluta Þjórsár. Tefur skipulagsferlið og er dýrara, segir forstjóri Landsvirkj-
unar. Pólitískur leikaraskapur, segir oddviti sveitarfélags eystra.
URRIÐAFOSS Virkjun í neðri hluta Þjórsár dregur mjög úr vatnsmagni fossins svo
hann hverfur að mestu. Umhverfisráðherra segir að ekki hafi verið hægt að úrskurða
öðruvísi þar sem lög hafi verið brotin. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Mér finnst enginn til-
gangur að vera í þessu í
svona pólitískum leikaraskap.
GUNNAR ÖRN MARTEINSSON
ODDVITI SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHREPPS
GENGIÐ 01.02. 2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
232,4887
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,53 128,13
202,30 203,28
177,12 178,12
23,787 23,927
21,615 21,743
17,416 17,518
1,4115 1,4197
197,38 198,56
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is