Fréttablaðið - 02.02.2010, Blaðsíða 24
2. FEBRÚAR 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● heilsa
Hver man ekki eftir gömlu,
góðu húllahopp-hringjun-
um? Nú eru komnir stærri og
sterkari hringir sem þjálfarar í
Grand Spa nota í stöðvaþjálf-
un til þess að minnka maga-
ummálið.
„Við fengum einn húlla hopp-hring
í haust sem við notum í stöðvaþjálf-
un og hann hefur notið mikilla vin-
sælda,“ segir Bryndís Ottósdótt-
ir, þjálfari hjá Grand Spa. „Þessi
hringur er þó ekkert líkur hinum
gömlu góðu sem flestir muna eftir.
Líkamsræktarhringirnir eru flest-
ir þyngri og eins er innra byrðið
aðeins hrufótt þó að það sé mjúkt.
Sá hringur sem við erum með er
1,7 kíló en það má fá bæði léttari
og þyngri hringi.“
En hvernig gengur fólki að
húlla? „Það er nú allur gangur á
því,“ segir Bryndís og brosir. „Al-
mennt gengur fólki vel að húlla
og karlmönnum ekkert síður vel
en konunum. Raunar er auðveld-
ara að húlla þessum hring vegna
þyngdarinnar en hinum gömlu, en
fólk þarf að sveifla sér svolítið í
mjöðmunum. Margir eru stífir í
líkamanum og fólk er misfljótt að
komast upp á lagið með að húlla
en flestum tekst það að lokum.
Æfingin skapar meistarann.“
Bryndís segir það verða að
leik að húlla þegar maður
hefur náð tækninni en það
sé samt ekki eins auðvelt
og það líti út fyrir að
vera, einkum ef hring-
urinn er 1,7 kíló. „Æf-
ingin reynir á mittis- og
magavöðva en þetta styrkir um
leið vöðvahópa í neðri hluta lík-
amans. Fólk bæði hitnar og svitn-
ar. Þá verður að byrja rólega með
þessa hringi því annars getur fólk
fengið marbletti. Mér finnst þetta
fyrst og fremst skemmtilegt og að
það geri gott fyrir magavöðvana
er bara plús. Æfingin vekur alltaf
kátínu og gleði og er áskorun.“ - uhj
Að húlla er áskorun
Bryndís Óttarsdóttir sveiflar húllahringnum um sig miðja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hægt er að fá allar nánari upplýsingar
um húllahopp-hringina á hullahringir.is.
Ljósið á Langholtsvegi 43 fer nú
aftur af stað með styrkjandi nám-
skeið fyrir börn og ungmenni sem
eiga foreldri, systkini, ömmu, afa
eða annan aðstandanda sem hefur
greinst með krabbamein. Nám-
skeiðið stuðlar að jákvæðri upp-
byggingu og er mikið unnið með
lífsgleðina í gegnum skemmtileg
verkefni. Aðstandandi fylgir barn-
inu í fyrsta tímann og þann síðasta
sem endar með pitsuveislu.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
hafa margra ára starfsreynslu í að
vinna með börnum. Þeir eru: Ósk
Sigurðardóttir iðjuþjálfi, sem er
með sérmenntun í ævintýrameð-
ferð, og Elísabet Lorange listmeð-
ferðarfræðingur. Þær leggja ýmis
samskiptaverkefni fyrir krakkana
til að efla traustið og reyna að gera
allt að ævintýri.
Námskeiðið verður á fimmtu-
dögum klukkan 16.30 til 18 í tíu
vikur og hefst þegar næg þátt-
taka er fyrir hendi. Námskeiðið er
ókeypis og er skráning í síma 561-
3770 eða á ljosid@ljosid.org. - gun
Ævintýraleg upplifun
Elísabet og Ósk leggja ýmis samskiptaverkefni fyrir börnin til að efla traust og auka
jákvæðni.
„David er stórt nafn í þessum
geira og því mikill heiður að fá
hann hingað,“ segir Lilja Oddsdótt-
ir, skólastjóri Heilsumeistaraskól-
ans, um komu bandaríska prests-
ins og kjarnolíufræðingsins Dav-
ids Stewart til landsins um miðjan
marsmánuð.
Stewart fer fyrir samtökum
kjarnolíufræðinga í Bandaríkj-
unum og er virtur fyrir störf sín
á því sviði. Hann kemur hingað í
boði Heilsumeistaraskólans í þeim
tilgangi að flytja opinn fyrirlest-
ur um notkun kjarnolía. „Umfjöll-
unarefnið er áhrifin sem olíurnar
hafa á samspil líkama og hugar,“
útskýrir Lilja og bætir við að Stew-
art muni einnig halda lokað nám-
skeið um kjarnaolíur og notkun
þeirra í Heilsumeistaraskólanum.
Lilja segir að með komunni sé
Stewart að uppfylla langþráðan
draum. „Hann er eðlis- og jarð-
eðlisfræðingur að mennt og
hefur því um langt skeið lang-
að að heimsækja Ísland út frá því
sjónarmiði.“
Stewart flytur fyrirlestur sinn
undir yfirskriftinni Quantum
Physics, Essential Oils & the Mind-
Body Connection á Grand Hóteli
15. mars klukkan 20. Fyrirlestur-
inn er öllum opinn, en nánari upp-
lýsingar um hann og aðgangseyr-
inn verða birtar síðar á vefsíðunni
www.heilsumeistara-
skolinn.is. -
rve
Predikar um áhrif
kjarnolía á líkamann
Lilja segir Stewart hafa gefið út ýmsar
vinsælar bækur um kjarnolíur, meðal
annars bókina The Healing Oils of the
Bible.
● BLÓMKÁL MILLI MÁLA Blómkál er gott að nota í súpur og ofn-
rétti og sem bita milli mála. Blómkál getur geymst lengi við réttar að-
stæður eða við 0-2 gráðu hita. Það má ekki geyma nálægt öðru græn-
meti og ekki við sterkt ljós. Borða má alla hluta blómkálsins og
nota það ósoðið, soðið eða bakað í mat. Þegar blóm-
kál er soðið á að láta vatnið sjóða í 10 til 12 mín-
útur áður en kálið er sett út í en suðutíminn fer
svo eftir smekk. Ef frysta á blómkál skal snögg-
sjóða það fyrir frystingu. Þá geymist það lengi
og er hentugt að grípa til en blómkálið þarf
ekki að þíða fyrir matreiðslu heldur má
skella því beint út í sjóðandi vatn. Fróð-
leik um geymslu og meðferð græn-
metis má finna á vef íslenskra
garðyrkjubænda, www.islenskt.is.