Fréttablaðið - 02.02.2010, Side 27
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 2010 7heilsa ● fréttablaðið ●
Ríkisstjórn Bretlands hefur sett
sér það markmið að fækka reyk-
ingamönnum þar í landi um helm-
ing næstu tíu árin. Þeim hefur
fækkað um þriðjung síðastliðinn
áratug og eru nú 21 prósent þjóð-
arinnar. Ríkisstjórnin mun meðal
annars láta fjarlægja auglýsingar
af sígarettupökkum, banna sígar-
ettusjálfsala og koma í veg fyrir að
unglingar byrji að reykja með því
að sporna við ólöglegum innflutn-
ingi á ódýrum sígarettum.
„Við erum komin svo vel á veg
og munum komast enn lengra. Ein-
hvern tíma, í ekkert allt of fjar-
lægri framtíð, munum við horfa til
baka og eiga erfitt með að skilja
hvers vegna fólki datt í hug að
reykja,“ segir heilbrigðisráðherr-
ann Andy Burnham.
-ve
Reykingafólki
fækkar
Markmið bresku ríkisstjórnarinnar er að
fækka reykingamönnum um helming
næstu tíu árin. NORDICPHOTOS/GETTY
Josy Zareen danskennari
kennir burlesque-dans í Happy
Eyes Dance Studio í Faxafeni.
Hún lærði dansinn í London og
segir hann vera skemmtilega
blöndu af djassballett, can can
og steppdansi.
Burlesque-dans hefur bæst við
þá flóru líkamsræktarnámskeiða
sem í boði eru fyrir konur. Happy
Eyes Studio í Faxafeni býður upp
á námskeið í Pole Fitness, súlu-
dansi og nú einnig burlesque-
dansi
Josy Zareen danskennari hefur
kennt burlesque-dans í um átta
mánuði og segir hún námskeiðið
mjög vinsælt. „Ég sá þetta dans-
form fyrst í Bretlandi og heill-
aðist af því. Ég fór svo og lærði
þetta í Pineapple Studio í London,
en þar var haldið sérstakt nám-
skeið sem var aðeins ætlað dans-
kennurum. Þessi dans er mjög
vinsæll í Bretlandi og þar er heilt
samfélag fólks sem hittist reglu-
lega og klæðir sig upp í þessum
stíl og dansar,“ útskýrir Jocy.
Hún segir þá tegund af bur-
lesque sem hún kenni vera klass-
íska og ekki jafn djarfa og nútíma
burlesque í anda Ditu Von Teese.
„Þetta er eins og stökk aftur í tím-
ann. Við blöndum saman can can-
dansi, steppdansi, djassballett og
sækjum innblástur til fjórða og
fimmta áratugarins. Þetta gengur
mikið út á það að bera sig vel og
konurnar læra meðal annars að
ganga í háum hælum, dansa á stól-
um og dansa með fjaðrir.“ Nám-
skeiðið er sérstaklega vinsælt hjá
konum sem
komnar eru
yfir þrítugt
og segist Josy
oft hafa tekið
eftir breyt-
ingum í fari
þeirra sem
sótt hafa nám-
skeiðið. „Ég
hef tekið eftir
því að sumar
þeirra breyt-
ast eftir því sem líður á nám-
skeiðið. Þær verða mun öruggari
með sjálfar sig og eru óhrædd-
ari við að mála sig og sýna vöxt
sinn. Þær hafa líka mjög gaman
af þessu og þeim finnst þetta
skemmtilegra eftir því sem þær
læra meira. Sumar hafa minnst
á það að þeim líði eins og fyrir-
sætum á meðan þær dansa.“ Í lok
námskeiðsins hafa konurnar lært
heila dansrútínu sem þær dansa
í fullum skrúða í síðasta tíman-
um hjá Josy.
Námskeiðið er kennt tvisv-
ar í viku og er hægt að nálgast
frekari upplýsingar á vefsíðunni
www.happyeyes.is. - sm
Burlesque-dans styrkir sjálfsmynd
Dita Von Teese baðar sig meðal annars upp úr stærðarinnar kampavínsglasi á
danssýningu sinni. Dansinn sem Josy kennir er þó ekki eins djarfur og Dita er vön að
dansa.
Josy Zareen
danskennari kennir
Burlesque-dans.
HH Ráðgjöf • Fiskislóð 81 • 101 Reykjavík • Sími: 561 5900 • Fax: 561 5909 • hhr@hhr.is • www.hhr.is
Ráðningarþjónusta
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
Leitar þú að starfsmanni?
HH Ráðgjöf er alhliða ráðningarþjónusta og við státum okkur af því að veita framúrskarandi
þjónustu hvort sem um ræðir ráðningu ófaglærðra, faglærðra eða sérfræðinga.
Ráðgjafar okkar veita fúslega frekari upplýsingar í síma 561 5900 eða sendu okkur tölvupóst: hhr@hhr.is
Vinnusparnaður
Við vinnum úr umsóknum, leitum í gagnagrunni okkar,
tökum forviðtöl og öflum umsagna.
Markviss leit
Sérskrifaður hugbúnaður gerir leit afar markvissa og
tryggir að við finnum hæfasta einstaklinginn.
Þriggja mánaða ábyrgð
Ef starfsmaður hættir störfum innan þriggja mánaða er
ráðning í hans stað án endurgjalds.
Ekkert staðfestingargjald
Við leggjum áherslu á að rækta árangursríkt og ánægjulegt
langtímasamband við viðskiptavini okkar og því greiðir þú
ekkert ef ekki verður af ráðningu.
Fjöldi hæfra umsækjenda
Fjöldi umsækjenda er á skrá í almennum gagnagrunni
okkar sem tryggir að við finnum rétta einstaklinginn
fyrir starfið.
Fjölbreyttar þjónustuleiðir
Í boði eru fjölbreyttar þjónustuleiðir sniðnar að þörfum
og væntingum viðskiptavina okkar. Þú finnur lausnina
hjá okkur.
Reynsla og þekking
Hjá HH Ráðgjöf starfa sérfræðingar á sviði starfsmanna-
mála sem búa m.a. yfir mikilli reynslu af ráðningum og
hagnýtri menntun.
Sanngjarnt verð
Bjóðum mjög hagstætt og samkeppnishæft verð á
þjónustu okkar. Gerðu verðsamanburð!
HH Ráðgjöf hefur vönduð vinnubrögð og fagmennsku að leiðarljósi. Við leggjum metnað okkar í að veita
afburðarþjónustu og finna réttan einstakling fyrir þá aðila sem leita okkar aðstoðar við ráðningu starfsfólks.
Kostir þess að nýta sér þjónustu HH Ráðgjafar eru m.a.: