Fréttablaðið - 02.02.2010, Qupperneq 34
18 2. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
timamot@frettabladid.is
„Ég get ekki sagt að því fylgi eftirsjá að
breyta um staðsetningu. Nýlistasafninu
hefur alla tíð fylgt sú löngun að vinna
gegn stöðnun, að endurnýja og endur-
skilgreina sig reglulega og flutningi
fylgir alltaf endurmat, svo að tilhlökk-
unin er ríkjandi hjá okkur þessa dag-
ana,“ segir Birta Guðjónsdóttir, formað-
ur stjórnar Nýlistasafnsins. Í lok febrú-
ar mun safnið opna í nýju húsnæði að
Skúlagötu 28, jarðhæð, þar sem kex-
verksmiðjan Frón var áður til húsa.
Birta tekur heilshugar undir að safn-
ið standi á ákveðnum tímamótum um
þessar mundir. Flutningurinn mark-
ar einnig þau kaflaskil að um þessar
mundir lýkur viðamikilli heildarskrán-
ingu á listaverkaeign og skjalasafni
safnsins, sem staðið hefur yfir undan-
farin tvö ár, meðal annars í samstarfi
við Listasafn Íslands og Borgarskjala-
safn og með stuðningi Safnaráðs. Um
er að ræða verk sem safnið hefur feng-
ið að gjöf í þau rúmlega þrjátíu ár síðan
það var sett á fót.
„Þegar skráningarferlið hófst í upp-
hafi árs 2008, á þrjátíu ára afmælisári
safnsins, voru skráð verk í safneigninni
rúmlega 700 talsins. Nú hafa yfir 2.300
verk verið skráð og starfinu er enn
ekki að fullu lokið. Til hliðsjónar mætti
nefna að í eigu Listasafns Reykjavíkur
eru rúmlega 3.000 verk. Þetta eru ansi
mörg verk og hefur áhrif á hvernig við
búum um okkur í nýja rýminu, en næsta
skref er að búa eigninni gott geymslu-
rými og bæta rannsóknarrými til muna.
Með flutningunum eykst fermetrafjöld-
inn sem við höfum yfir að ráða og nýja
húsnæðið er mun betra fyrir núverandi
starfsemi safnsins,“ segir Birta.
Mikið verður um að vera hjá starfs-
fólki Nýlistasafnsins á næstunni. Síðar
í mánuðinum stendur til að gefa út ritið
Nýlistasafnið 1978-2008. „Í því er rakin
sýningasaga safnsins og helstu atburð-
ir í sögu þess teknir saman í tímaröð.
Skyldur og starfsemi safnsins spanna
afar vítt svið og safnið hefur í gegn-
um árin átt í þverfaglegu samstarfi við
fræðasamfélagið, listamenn úr öllum
listgreinum og stofnanir.Því er um
menningarsögulegt rit að ræða sem
ætti að höfða til fleiri en aðeins list-
unnenda.“
Frá árinu 2004 hefur safnið haft að-
setur að Laugavegi 26, en var áður á
Vatnsstíg 3 og 3b. Fyrsta sýningin í nýju
húsnæði verður tileinkuð ýmsum verk-
um úr safni Nýlistasafnsins. „Í sýning-
ardagskrá ársins verður lögð áhersla
á að skoða og miðla sögu og safneign
safnsins. Safnið geymir talsvert meira
menningarlegt verðmæti en áður var
talið og í kjölfarið á þessum samtíma-
fornleifauppgreftri, sem safnið á í eigin
fórum, hefur aukist áhugi á að kanna
þetta betur, bjóða rannsakendum að-
gengi að og miðla sérstöðu safnsins hér
heima og á heimsvísu. Við erum hæst-
ánægð með nýja húsnæðið. Það er að
spennandi að vera í Skuggahverfinu
við sjóinn og blikka Esjuna út um glugg-
ann,“ segir Birta.
kjartan@frettabladid.is
NÝLISTASAFNIÐ: FLYTUR Í NÝTT HÚSNÆÐI VIÐ SKÚLAGÖTU
Tímamót í sögu safnsins
SHAKIRA FÆDDIST Á ÞESSUM
DEGI ÁRIÐ 1977:
„Ég kýs heldur ljótan sann-
leika en fallega lygi. Ég gef
engum hjarta mitt nema
hann segi mér sannleik-
ann.“
Söngkonan og dansarinn
Shakira Isabel Mebarak Rip-
oll fæddist í Barranquilla í
Kólumbíu. Hún hefur sent frá
sér átta hljómplötur og notið
mikilla vinsælda um allan
heim.
Þennan dag árið 1979 lést
Sid Vicious, bassaleikari
bresku pönk-frumkvöðlanna í
hljómsveitinni Sex Pistols, úr
ofneyslu heróíns. Hann var 21
árs þegar hann lést.
Vicious var einlægur að-
dáandi Sex Pistols og einn
besti vinur söngvarans John-
ny Rotten. Honum var boðin
bassaleikarastaða í sveitinni
eftir að forveranum, Glen
Matlock, var sparkað vegna
þess að hann þvoði sér of oft
um fæturna, dálætis hans á
Bítlunum og fleiri ástæðna
sem gerðu samstarfið erfitt.
Vicious, sem hét réttu nafni
John Simon Ritchie, kunni
lítið fyrir sér í bassaleik en
áberandi útlit og ímynd hans
þótti koma sér vel fyrir sveit-
ina.
Vicious eignaðist síðar
bandarísku unnustuna Nancy
Spungen, sem kynnti hann
fyrir heróínneyslu og saman
eyddu þau degi og nótt við
þá iðju eftir að Sex Pistols
hætti störfum í byrjun árs
1978. Í október það ár var
Vicious ákærður fyrir morð-
ið á Spungen. Hinn 2 febrú-
ar var hann látinn laus gegn
tryggingargjaldi og lést þá um
kvöldið af of stórum skammti
heróíns sem talið er að móðir
hans hafi útvegað honum.
ÞETTA GERÐIST: 2. FEBRÚAR 1979
Sid Vicious lætur lífið
FLUTNINGAR Gunnar
Már Pétursson, Tinna
Guðmundsdóttir og
Birta Guðjónsdóttir
sitja í stjórn Nýlista-
safnsins.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
MERKISATBURÐIR
1626 Karl 1. er krýndur Eng-
landskonungur.
1878 Grikkir lýsa yfir stríði á
hendur Tyrkjum.
1935 Lygamælirinn er prófaður
í fyrsta skipti af Leonard
Keeler.
1943 Síðustu hersveitir nas-
ista gefast upp fyrir Sovét-
mönnum í orrustunni um
Stalíngrad.
1982 Sýrlensk stjórnvöld ráðast
á bæinn Hama og drepa
þúsundir.
1988 Halldór Halldórsson verð-
ur fyrstur Íslendinga til að
fá ígrædd hjarta og lungu.
1989 Síðustu hersveitir Sovét-
manna yfirgefa Afganistan
og binda þannig enda á
níu ára styrjöld milli land-
anna.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, afi
og langafi,
Einar Ingvarsson
Mávahrauni 25,
lést að Hrafnistu í Hafnarfirði sunnudaginn 31. janúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sólveig Stígsdóttir Sæland
Helga Guðjónsdóttir
lést á Droplaugarstöðum 28. jan. sl. Útförin verður
auglýst síðar.
Hanna Kristín Brynjólfsdóttir
Úlfar Brynjólfsson Rósa Aðalsteinsdóttir
Guðrún Bjarnadóttir Geir Þórólfsson
Ragnheiður Brynjólfsdóttir Jón Þorkell Rögnvaldsson
Fréttablaðið býður nú upp
á birtingu æviminninga á
tímamótasíðum blaðsins.
Hafið samband í síma
512 5490-512 5495 eða sendið
fyrirspurnir á netfangið
timamot@frettabladid.is
Æviminning
Gísli Eirík
ur Helgaso
n
Laugateigi 7
2, Reykjavík
Gísli Eirík
ur Helgaso
n fæddist
í
Reykjavík
1. janúar 1
931. Hann
lést á Hraf
nistu í Ha
fnarfirði 1
2.
janúar síð
astliðinn.
Foreldrar
hans
voru Guðr
ún Jónsdót
tir frá Þing
eyri
í Dýrafirði
f. 1917, d.
1988, og H
elgi
Gíslason fr
á Ísafirði,
f. 1915, d.
1970.
Gísli Eirík
ur bjó fyrs
tu æviár sí
n í
Reykjavík
en fluttist
eftir það v
estur
til Ísafjarð
ar með for
eldrum sín
um
og systkin
um.
Systkini G
ísla Eiríks
eru Jón
Hannes, f.
1933, Sigrí
ður Ása, f.
1936 og G
uðmundur
, f.
1941.
Eiginkona
Gísla Eirí
ks er Marg
rét Magnú
sdóttir hjú
kr-
unarfræði
ngur, f. 4.
apríl 1937
. Þau geng
u í hjóna-
band árið
1960. Börn
Gísla Eirí
ks og Mar
grétar eru:
1) Magnús
kennari, f
. 1.5. 1972
, kvæntur
Guðbjörgu
Björnsdótt
ur kennara
, f. 30.11. 1
971. Börn
þeirra eru
Margrét, f.
17.2. 1997
og Björn J
óhann, f. 2
0.1. 1999.
2) Helgi tæ
knifræðin
gur, f. 18.6
. 1975, í sa
mbúð með
Jórunni Dr
öfn Ólafsdó
ttur leiksk
ólakennar
a, f. 15.2.
1975. Þeir
ra dóttir e
r Þórunn Á
sta, f. 24.12
. 2001. 3)
Guðrún læ
knir, f. 14.
11. 1979, í
sambúð m
eð Þór
Halldórssy
ni stjórnm
álafræðing
i, f. 6.6. 19
80.
Gísli Eirík
ur lauk sk
yldunámi
á Ísafirði e
n hélt suð
ur
til Reykjav
íkur 17 ára
gamall til
að nema h
úsasmíði.
Húsasmíð
ar urðu æv
istarf hans
. Framan a
f starfsæv-
inni vann
hann á Tré
smíðaverk
stæðinu Fu
ru en eftir
að
hafa fengi
ð meistara
réttindi í i
ðn sinni st
ofnaði han
n
sitt eigið f
yrirtæki, G
ísli, Eiríku
r, Helgi, se
m hann át
ti
og rak þar
til fyrir fá
einum áru
m.
Stangveið
i var aðalá
hugamál G
ísla Eiríks
alla tíð
og sinnti h
ann meða
l annars tr
únaðarstö
rfum fyrir
Stangveið
ifélag Reyk
javíkur.
Útför Gísla
Eiríks fer
fram í dag
kl. 13.00 í
Fossvogskir
kju.
G
1
gason
æddist í
. Hann
firði 12.
drar hans á Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í
að ve tur m sínum
dur, f.
úkr-
u:
u
ð
ur
ð
Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar
1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar
síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá
Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason
frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu
æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til
Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum.
Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður
Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941.
Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna-
band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru:
1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru
Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999.
2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með
Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2.
1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3)
Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór
Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980.
Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður
til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði.
Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv-
inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að
hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann
sitt e gið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti
og rak þar til fyrir fáeinum árum.
Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð
og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir
Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju.
Elskulegur sonur okkar, bróðir og
mágur,
Björgvin Ómarsson
Dalbrekku 2, Kópavogi,
sem lést mánudaginn 25. janúar sl., verður jarðsung-
inn frá Fella- og Hólakirkju miðvikudaginn 3. febrúar
kl. 13.00.
Jóhanna K. Friðgeirsdóttir Ómar Jónsson
Dagný Ómarsdóttir Guðmundur Loftsson
Kristrún Ómarsdóttir Jón Gestur Hauksson
Bróðir okkar og vinur,
Tryggvi Gunnarsson
Klausturhólum 1, Kirkjubæjarklaustri,
lést á hjúkrunarheimilinu Klausturhólum föstudaginn
29. janúar.
Systkini hins látna og aðrir vandamenn.
Yndislegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Ingólfur Sigurjón
Halldórsson,
kennari,
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund að kvöldi 7. janúar s.l.
Jarðarförin hefur farið fram. Innilegar þakkir til allra
fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug. Sérstakar
þakkir færum við öllum á deild V-4, Grund, fyrir elsku-
leg viðkynni og umönnun.
Anna Dóra Ágústsdóttir
Jóna Ingólfsdóttir Jakob I Steensig
Ólöf María Ingólfsdóttir Gylfi Garðarsson
barnabörn og barnabarnabarn