Fréttablaðið - 08.02.2010, Blaðsíða 35
MÁNUDAGUR 8. febrúar 2010 15
„Eldkristallinn getur verið mjög
dyntóttur en að sama skapi er
mjög spennandi að vinna með
hann,“ segir Kristbjörg og bend-
ir á falleg kampavínsglös. Þar
eru engin tvö glös eins þótt form-
ið sé það sama. „Ég legg mikið
upp úr glerungnum en minna
upp úr skreyti, en nota stundum
tré og málma með leirnum. Með
eldkristalnum þarf ekki annað
skraut, hann er skraut í sjálfu
sér,“ segir hún svo og brosir.
Hún segir að áður fyrr, þegar
notaður hafi verið viður eða kol,
til þess að knýja brennsluofn-
ana, hafi eldkristallinn átt það
til að myndast við ákveð-
ið hitastig og aðstæð-
ur en þá hafi verið litið
á hann sem mistök. Svo
sé hins vegar ekki leng-
ur. „Nú er eldkristall-
inn eftirsóttari og með
tölvustýrðu brennsluofn-
unum, sem nú eru komn-
ir til sögunnar er með sér-
stakri brennsluaðferð hægt
að búa til eldkristalla.“ Krist-
björg segir að kristallarn-
ir sem myndist í hita ofnsins
séu líkir þeim sem myndist á
glugga í frosti og oft eru nefnd-
ir frostrósir. ,,Eldkristallarnir
vaxa í hitanum og geta orðið
mjög stórir. Það getur verið
erfitt að ráða við þá, en þegar
vel tekst til geta þeir orðið
undurfallegir. Ég ræð
ekki nema að litlu leyti
hvernig kristallarnir vaxa
eða haga sér, en reyni mitt besta,
það er samspil leirsins og hitans
– í raun náttúrunnar.“
Kristbjörg hafði lengi átt sér
þann draum að læra leirlist og
flutti frá Hornafirði til Reykja-
víkur til að nema fagið, sem hún
gerði árin 1990-1994. „Ég byrjaði
smátt en hef einbeitt mér að nytja-
list eins og bollum og skálum sem
ég hef svo þróað áfram og aukið
úrvalið. Glerungurinn hefur eins
og áður segir alltaf heillað mig.
Ég hef lagt meira upp úr honum,
sérstaklega á seinni árum, en öðru
skrauti. Það má segja að hann sé
mitt einkenni.“
Kampavínsglösin
segir hún nýlega
hönnun. „Þau eru til í
mörgum litum og ein-
mitt með eldkristöll-
unum. Þetta er tilvalin
gjöf fyrir par eða hjón
en líka fyrir einstakling.
Það er til dæmis huggu-
legt að fá sér heilsudrykk
á morgnana í handgerðu,
fallega hönnuðu glasi.
Ílátin sem við notum til
þess að bera matinn fram
á eða í skipta nefnilega
miklu máli ef njóta á góðr-
ar máltíðar til fulls.“ Staup-
in fast meðal annars í Mýr-
inni í Kringlunni, Kraumi
og Epal Design í Leifsstöð.
Einnig er hægt að kaupa
þau á verkstæði Krist-
bjargar í Hvassaleiti
119. - uhj
Eldkristall getur
verið dyntóttur
Kristbjörg Guðmundsdóttir er ein fárra leirlistamanna hér á landi
sem nota brennsluaðferð sem gerir glerunginn á leirmununum sem
hún skapar einstakan.
Postulínsstyttur af dýrum þóttu
eitt sinn aðeins hæfa heimilum
gamalla kvenna en eru nú að ná
vinsældum hjá yngra fólki.
Eins og sjá má á hönnun og verk-
um fjölmargra hönnuða undan-
farið þykja dýr í postulínsformi
eiga upp á pallborðið og sjást
þau gjarnan á skálum, diskum og
kertastjökum.
Dýrin minna mest á gömlu,
fallegu postulínsstytturnar sem
margir áttu sem börn. Ekki hafa
allir efni á því að fjárfesta í flott-
um vörum úr hönnunarlínum en
þeim má til dæmis benda á Góða
hirðinn þar sem oft finnast hunda-
og kattapostulínsstyttur. Síðan er
hægt að leika sér með að skreyta
heimilið með styttunum eða leggj-
ast jafnvel í eigið föndur með
límtúpu sér við hönd. - jma
Upp með
postulíns-
stytturnar
Postulínsdýr hafa undanfarin misseri
verið að öðlast sinn sess á ný sem
stofustáss.
Bergstaðastræti 4 - 101 Reykjavík - Sími: 562-0335
Gullsmíðaverkstæði Árna Höskuldssonar
lokar 1. mars næstkomandi
Útsala hefst mánudaginn 8. febrúar
40% afsláttur af öllum vörum
Opnunartími 13:00 til 18:00 virka daga
Gardinur
fataefni
gjafavara
‘
Kristbjörg hefur einbeitt sér að nytjalist, til dæmis með hönnun og gerð bolla og
skála. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON