Fréttablaðið - 10.02.2010, Qupperneq 26
10. FEBRÚAR 2010 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● veljum íslenskt
Björgvin Tómasson orgel-
smiður var útnefndur iðnaðar-
maður ársins 2009, 6. febrúar
síðastliðinn. Hann hefur verið
búsettur á Stokkseyri síðan
2005 og er þar með verkstæð-
ið sitt.
Björgvin hefur smíðað 31 pípuorgel
og hljóma þau í kirkjum víðs vegar
um landið. Frumsmíðin er í Akur-
eyrarkirkju, keypt þangað 1986,
en fyrstu árin smíðaði Björgvin
einungis orgel fyrir landsbyggð-
ina. „Það er eins og fólk á lands-
byggðinni leiti suður þegar eitthvað
vantar og Suðurlandið leiti út fyrir
landsteinana, en það er vonandi að
breytast,“ segir hann.
Aðspurður segir Björgvin að það
sé ekki um auðugan garð að gresja
fyrir orgelsmiði á Íslandi, þrátt
fyrir að vera sá eini á landinu. „Það
er alltof mikið um það að ráðgjaf-
ar bendi söfnuðum hér á landi á að
leita til erlendra aðila, þrátt fyrir
að það sé hagstæðara fyrir þá að
versla hérlendis. Þetta hefur ekki
alltaf verið auðvelt.“
Fæddur og uppalinn á Blika-
stöðum í Mosfellsbæ og menntaður
tónmenntakennari, fluttist Björg-
vin til Þýskalands þar sem hann
tók sveinspróf í orgelsmíði. Hann
fluttist heim til Íslands 1986 og
var fyrstu fjórtán árin með verk-
stæðið sitt í fjósinu að Blikastöðum.
Stokkseyri varð síðan heimili hans
og ber Björgvin bænum vel söguna:
„Það er gott að búa á Stokkseyri.
Á verkstæðinu starfa fjórir menn í
fullri vinnu, sem er ágætis hlutfall
íbúafjölda bæjarins,“ segir hann
hlæjandi. „Eitt orgel til smíða veit-
ir okkur fullt starf í eitt ár.“
Björgvin á fjögur börn sem eru
öll viðriðin tónlist. Sonur hans, Júlí-
us Óttar, hefur verið tíður gestur á
verkstæði föður síns og hefur mik-
inn áhuga á því að feta í fótspor
hans í orgelsmíðum.
Iðnaðarmannasamband Reykja-
víkur veitti verðlaun sín í fjórða
skiptið hinn 6. febrúar síðastliðinn
og var það forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, sem afhenti þau.
„Það var mikill heiður að vera út-
nefndur iðnaðarmaður ársins og
mér þykir mjög vænt það. Vonandi
hjálpar þetta söfnuðum í landinu að
sjá að það er framtíð í þessari iðn
hérna,“ segir Björgvin. -sv
Orgelsmiður kjörinn
iðnaðarmaður ársins
Iðnaðarmaður ársins. Björgin tekur við viðurkenningarskjali frá forseta Íslands, Ólafi
Ragnari Grímssyni. Á milli þeirra stendur Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
Nýjasta smíði Björgvins, pípuorgelið í Blönduósskirkju. MYND/ÚR EINKASAFNI
IGI (The Icelandic Gaming Ind-
ustry) kom á fót fyrstu íslensku
tölvuleikjasamkeppninni í nóvem-
ber 2009. Skráning í keppnina verð-
ur opin fram í lok mars og í apríl
fer fram verðlaunaafhending.
„Það geta allir tekið þátt í henni,“
segir Kristján Friðbertsson, vef-
hönnuður og forritari hjá IGI. „Þú
þarft í raun bara að hafa áhuga á
tölvuleikjum til þess að vera með.“
Keppt er í hönnun og gerð tölvu-
leikja og er nánast tekið við hverju
sem er, allt frá grunnútfærslu á
hugmynd yfir í frumgerð að leik.
IGI hefur haldið námskeið í
leikjagerð síðan í nóvember og hófst
keppnin með slíku námskeiði. Eru
þau ókeypis og opin öllum keppend-
um. Engin reynsla í tölvuleikjagerð
er nauðsynleg, aðeins áhuginn er
það sem til þarf. Fram koma helstu
sérfræðingar landsins á sviði tölvu-
leikjagerðar og verða fyrirlestrarn-
ir af ýmsum toga.
„Áhugi á keppninni hefur verið
gríðarlega mikill,“ segir Kristján.
„Það eru alltaf fleiri og fleiri sem
eru að bætast í hópinn.“
Einu skilyrðin fyrir þátttöku í
keppninni eru að hugmyndin komi á
rafrænu formi, að viðkomandi hafi
skráð sig sem notanda á vef IGI og
bætt sér þar í hópinn IGIA10 og að
skilað sé inn á ensku eða bæði ís-
lensku og ensku. Sérstök áhersla er
á að þetta gangi fyrir þátttakend-
ur hvaðan sem er af landinu, m.a.
verða allir fræðslufundirnir tekn-
ir upp og settir á netið og sérstök
aukaverðlaun tengd Norðurlandi.
„Það sem fólk þarf að muna er
að stundum er lítil góð hugmynd
allt sem til þarf. Hún getur unnið
fullunninn leik ef upprunalega hug-
myndin að honum var ekkert sér-
stök,“ segir Kristján.
Nánari upplýsingar um keppn-
ina má finna á vef IGI: www.igi.is.
- sv
Mikill áhugi fyrir
tölvuleikjasamkeppni
Að sögn Kristjáns verður keppt í hönnun og gerð tölvuleikja. RÉTTABLAÐIÐ/STEFÁKemur út þriðjudaginn
16. febrúar
Sérblað
um brúðkaup
Auglýsendur vinsamlegast hafið samband:
Benedikt
• benediktj@365.is
• sími 512 5411
Bjarni Þór
• bjarni thor@365.is
• sími 512 5471
Hlynur Þór
• hlynurs@365.is
• sími 512 5439
Sigríður Dagný
• sigridurdagny@365.is
• sími 512 5462