Fréttablaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 48
28 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR HEIMSFRUMSÝNING! Percy Jackson leggur á sig mikið ferðalag til að bjarga heiminum frá tortýmingu! NÝTT Í BÍÓ! SÍMI 564 0000 16 16 10 10 16 L L 10 L THE WOLFMAN kl. 8 - 10.40 THE WOLFMAN LÚXUS kl. 8 - 10.40 THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30 - 8 - 10.30 THE LIGHTNING THIEF LÚXUS kl. 5.30 EDGE OF DARKNESS kl. 8 - 10.30 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 3D kl. 3.40 - 5.50 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 3.40 - 5.50 AVATAR 3D kl. 4.40 - 8 ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.30 SÍMI 462 3500 16 10 L 12 10 L THE WOLFMAN kl. 8 - 10.30 THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30 - 8 - 10.30 IT´S COMPLICATED kl. 8 - 10.35 MAMMA GÓGÓ kl. 6 AVATAR 3D kl. 6 - 9 NIKULÁS LITLI kl. 6 SÍMI 530 1919 10 12 L L L THE LIGHTNING THIEF kl. 5.30 - 8 - 10.30 IT´S COMPLICATED kl. 5.30 - 8 - 10.30 NINE kl. 5.30 - 8 - 10.30 SKÝJAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM 2D kl. 5.50 íslenskt tal JULIE & JULIA kl. 8 - 10.30 SÍMI 551 9000 .com/smarabio 109.000 GESTIR! AÐDÁENDUR GETA UNNIÐ BÍÓKORT ÚT ÁRIÐ, BOÐSMIÐA Á FORSÝNINGAR O.M.FL. 16 10 16 12 THE WOLFMAN kl. 8 - 10 THE LIGHTNING THIEF kl. 8 - 10.10 EDGE OF DARKNESS kl. 5.50 IT´S COMPLICATED kl. 5.50 Stórkostlegt mynd frá DISNEY fyrir alla fjölskylduna16 7 7 Roger Ebert n.y. observer wall street journal 3 Ó S K A R S T I L N E F N I N G A R Besta Mynd - Besta Leikkona í aðalhutverki - Besta Handrit VALENTINE ‘S DAY kl. 5:30D - 8D - 10:40D VALENTINE ‘S DAY kl. 5:30 - 8 - 10:40 THE WOLFMAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 TOY STORY 2 M/ ísl. Tali kl. 3:30(3D) THE BOOK OF ELI kl. 10:20 AN EDUCATION kl. 5:50 - 8 WHERE THE WILD THINGS ARE kl. 3:40 - 5:50 UP IN THE AIR kl. 8 PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 3:40 SHERLOCK HOLMES kl. 8 - 10:40 BJARNFREÐARSON kl. 3:40 - 5:50 - 10:40 PRINSESSAN OG FROSKURINN M/ ísl. Tali kl. 3:40 VALENTINE ‘S DAY kl. 5:40D - 8:10D - 10:40D TOY STORY 2 M/ ísl. Tali kl. 3:40(3D) - 6(3D) MAYBE I SHOULD HAVE kl. 8:10 THE BOOK OF ELI kl. 10:20D UP IN THE AIR kl. 10:20 PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 4D BJARNFREÐARSON kl. 3:50 - 6 - 8:10 TOY STORY 2 - 3D kl 6 VALENTINE ‘S DAY kl. 8 - 10:20 PLANET 51 M/ ísl. Tali kl. 6 THE BOOK OF ELI kl. 8 SHERLOCK HOLMES kl. 10:20 16 16 16 16 12 12 V I P L L L L L L L L L L L L L L L HEIMSFRUMSÝND Á ÍSLANDI FRÁ SAMA LEIKSTJÓRA OG FÆRÐI OKKUR PRETTY WOMAN FRÁBÆR GAMANSÖMU OG RÓMANTÍSK MYND SUMIR ERU HEPPNIR Í ÁSTUM AÐRIR EKKI! sýnd með íslensku tali - bara lúxus Sími: 553 2075 THE WOLFMAN kl. 5.50, 8 og 10.10 16 THE LIGHTNING THIEF kl. 5.40 10 EDGE OF DARKNESS kl. 5.40, 8 og 10.20 16 IT’S COMPLICATED kl. 8 og 10.20 12 SKÝAÐ MEÐ KJÖTBOLLUM... 3D kl. 3.50 - Ísl. tal L ALVIN OG ÍKORNARNIR 2 kl. 3.50 - Ísl. tal L H.S.S. -MBL Þ.Þ. -FBL HEIMSFRUMSÝNING HEIMSFRUMSÝNING Tvennir tónleikar til heiðurs rokksveitinni Deep Purple verða haldnir á Sódómu Reykjavík 17. og 18. febrúar. Eiríkur Hauksson verður söngvari og með honum á sviðinu verða Ingólfur Sigurðs- son, Vignir Stefánsson, Jóhann Ásmundsson og Sigurgeir Sig- mundsson. Þetta er í þriðja sinn sem Eiríkur, Jóhann og Sigurgeir halda þessa tónleika. Síðast var það árið 2004 og þá var fullt út úr dyrum bæði kvöldin og mikil stemning. Núna hefur verið bætt við lögum sem David Coverdale gerði ódauðleg með Purple, þar á meðal Mistreated og Storm- bringer. Miðaverð á tónleikana er 1.500 krónur og fer miðasala fram á Midi.is. Til heiðurs Deep Purple EIRÍKUR HAUKSSON Eiríkur syngur alla gömlu Deep Purple-slagarana á Sódómu Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Gítarleikaranum Birni Thorodd- sen hefur verið boðið að leika með japanska gítarleikaranum Kazumi Watanabe um páskana. Tónleikarn- ir verða á einum þekktasta djass- klúbbi Tókíó, Shinjuku Pit Inn. Watanabe, sem er einn þekktasti djassleikari Japans, heldur upp á fjörutíu ára starfsafmæli sitt í ár. Af því tilefni býður hann til leiks mörgum af bestu gítarleikurum heims og er því um mikinn heiður að ræða fyrir Björn að vera á meðal þeirra. Björn hefur farið nokkrum sinnum til Japans með hljómsveit- inni Guitar Islancio og hefur ein plata verið gefin þar út í samstarfi við Zonet-útgáfuna. Hann gaf á dög- unum út plötuna Gítarveisla Bjössa Thor sem er hljóðritun frá tónleik- um sem voru haldnir nýlega í Saln- um. Þar komu fram margir fremstu gítarleikarar þjóðarinnar og spil- uðu óskalög sín. Björn spilar í Japan BJÖRN OG WATANABE Björn Thoroddsen og Kazumi Watanabe spila saman í Japan um páskana. Hljóm- sveitirnar Casiokids frá Noregi, Choir of Young Beli- evers frá Danmörku og íslensku sveitirn- ar Bernd- sen & The Young Boys og Sykur koma fram á tónleik- um á Nasa 5. mars. Fleiri flytj- endur verða tilkynntir innan skamms. Bæði Casiokids og Choir of Young Believers spil- uðu á síðustu Iceland Airwaves- hátíð og vöktu þær báðar mikla lukku. Fyrrnefnda sveitin er um þessar mundir að hita upp fyrir Hot Chip á tónleikaferð henn- ar um Evrópu og sú síðarnefnda kemur við hér á landi á leið sinni til tónleikahalds í Bandaríkjun- um. Miðasala á tónleikana hefst á Midi.is og í Skífunni í dag. Casiokids snýr aftur CASIOKIDS Leikritið Gerpla verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld í leikstjórn Baltasars Kormáks. Með hlutverk fóstbræðranna Þorgeirs Hávarðssonar og Þormóðs Kolbrúnarskálds fara þeir Jóhannes Haukur Jóhann- esson og Björn Thors. Undirbúningurinn fyrir leikritið Gerplu, sem er byggt á samnefndri bók Halldórs Laxness, hefur verið langur og strangur. Loksins sér fyrir endann á því í kvöld þegar sýningin í Þjóðleikhúsinu hefst. Að sögn Jóhannesar Hauks hafa síðustu tvær vikur verið sérlega strembnar þar sem æft hefur verið bæði á daginn og kvöldin. „Þetta er orðin svolítil heimavistarstemning í hópnum. Við höfum verið öll ofan í svitanum og táfýlunni af hvert öðru en það er líka sameining í þessu og erum við bara mjög vel stemmd,“ segir Jóhannes. Töluvert er um slagsmál í leikritinu, enda gerist það á víkingatímanum þar sem bardagar með vopnum og bareflum voru hinn eðlilegasti hlutur. Fóst- bræðurnir Þorgeir og Þormóður slást þó ekki. „Hún reynir líkam- lega á þessi sýning og það eru allir bólgnir og marðir en ekkert hættu- lega samt. Það er fyllsta öryggis gætt en þetta reynir á.“ Jóhannes viðurkennir að sýning- in sé sú erfiðasta sem hann hefur tekið þátt í. „Bæði líkamlega og andlega. Þetta er heilmikið verk. Við erum búin að stefna að þessu í meira en ár, frá því að maður byrj- aði að lesa bókina og kynna sér þetta. Svo byrjuðum við að æfa í maí þannig að það er búinn að vera rosalega langur aðdragandi, enda er þetta heilmikil bók og töluvert mál að draga úr henni sögu til að setja upp á svið.“ Hann ber kollega sínum og fóst- bróður Birni Thors vel söguna og finnst gott að starfa með honum. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem þeir leika nokkurs konar fóst- bræður því þeir gerðu það einn- ig í Hárinu árið 2004. „Við sjáum eiginlega mest eftir því að Ken- neth Máni og Guffi, karakterarnir okkar í Fangavaktinni, skyldu ekki ná að hittast. Þeir hefðu nú verið góðir saman,“ segir hann og hlær. „Ég hef þekkt Björn lengi. Hann er stórkostlegur maður að vinna með og svo ofboðslega skapandi og skemmtilegur.“ Á meðal þeirra sem fara með önnur hlutverk í sýningunni eru þau Atli Rafn Sigurðarson, Bryn- hildur Guðjónsdóttir, Ilmur Kristj- ánsdóttir, Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Ólafur Egill Egilsson, sem sá einnig um leikgerðina ásamt Baltasar. freyr@frettabladid.is Fóstbræðurnir stíga á svið FÓSTBRÆÐUR Fóstbræðurnir Jóhannes Haukur Jóhannesson og Björn Thors verða áberandi í sýningunni Gerpla sem verður frumsýnd í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.