Fréttablaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 27
safnanótt FÖSTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2010 Áður en safnanótt verður sett í kvöld fara fram Kærleikar undir stjórn Bergljótar Arnalds. Kærleikarnir hefjast klukkan 18 á Austurvelli. „Markmið Kærleikanna er að efla samkennd og veita hvatningu og hlýju á þessum tímum,“ útskýrir Bergljót. „Við þurfum á hvert öðru að halda en það vill oft gleymast í umræðunni.“ Hátíðin hefst á því að stytta Jóns Sigurðssonar verður krýnd blóm- sveigi en við það nýtur Bergljót að- stoðar hjálparsveitanna. Þá flytur Páll Óskar Hjálmtýsson Sönginn um lífið og fleiri gestir koma fram. „Hilmar Örn Hilmarsson alls- herjargoði og séra Helga Soffía Konráðsdóttir koma fram og svo fáum við Sigfús Sigurðsson, hand- boltakappa til að flytja okkur hvatn- ingu auk Óskars Bjarna Óskarsson- ar aðstoðarlandsliðsþjálfara. Gísli Ólafsson frá alþjóðabjörgunar- sveitunum deilir með okkur reynsl- unni frá Haítí og eftir mínútu þögn þar sem við sendum jákvæða strauma út í samfélagið, leggjum við af stað í kyndlagöngu kringum Tjörnina. Lúðrasveitin Svanur mun leika létt dixíland-lög undir göng- unni og það væri gaman ef fólk kæmi með rauðar húfur eða trefla en litur Kærleikanna er rauður.“ Meðan á göngunni stendur munu félagar úr Sönglist, undir stjórn Ólafar Sverrisdóttur, taka á móti fólki með óvæntum uppákomum og meðal annars verður kærleiks- hjörtum dreift til fólks. „Annars vegar verður dreift hjörtum sem Akureyrarbær gefur okkur og hins vegar hjörtum sem krakkar hafa útbúið og skrifað á skilaboð eins og; Kærleikur er hvert bros sem þú gefur! Þeir sem mæta snemma á Austurvöll geta svo fylgst með þegar hjörtu verða skorin út úr ís sem Akureyrarbær gefur okkur líka.“ Kærleikunum lýkur svo við styttu Einars Jónssonar en þar munu nokkrir kórar koma saman og taka lagið undir stjórn Björns Thorarensen. Bergljót stóð einnig fyrir Kærleikum á síðasta ári og þá sóttu hátíðina 3.000 manns. - rat Kærleikur, hlýja og samkennd Kærleikarnir hefjast við Austurvöll í kvöld klukkan 18 undir stjórn Bergljótar Arnalds. Lúðrasveitin Svanur spilar undir kyndlagöngu kringum Tjörnina. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ● DAGSKRÁIN Í FARSÍM- ANN Gestir safnanætur geta hlaðið dagskránni í gsm-sím- ann sinn með hugbúnaðarfor- ritinu Reykjavík Mobile Guide. Hrafn Sigvalda- son, hjá Ymir Mobile, veit allt um það. „Hægt er að skoða alla viðburði á safnanótt og staðsetn- ingu þeirra á korti af höf- uðborg- arsvæð- inu, ef GPS er í sím- anum. Einnig er hægt að senda inn „live“ skilaboð, sem kall- ast safnarnæturpúlsinn og birt- ast jafnóðum í forritinu, svipað og til dæmis á twitter.“ Að sögn Hrafns er hægt að sækja hug- búnaðinn á www.getmoibileg- uide.is. „Hann er einfaldur í notk- un og hentar í velflestar gerð- ir farsíma.“ ● SPENNANDI LEIKUR Á SAFNANÓTT Skemmti- legur leikur verður í gangi á safna nótt sem snýst um að safna stimplum á öllum söfn- um sem heimsótt eru og svara léttum spurningum. Þeir sem safna fjórum eða fleiri stimplum og svara þremur spurningum í það minnsta geta skilað þátt- tökumiða til Höfuðborgarstofu, Aðalstræti 2, fyrir 26. febrúar. Fyrstu vinningur er flug fyrir tvo á safna nóttina í Berlín í ágúst í sumar og fá vinningshafar einn- ig safnanæturpassa. MP banki gefur vinningshaf- anum einnig 100.000 krónur í gjaldeyri. Í vinning er einnig málsverður fyrir tvo á veitingastaðnum Dilli og gjöf frá safn- verslun Land- námssýn- ingarinnar í Aðalstræti. Veglegri dagskrá í ár Nágrannasveitarfélög Reykjavík- ur taka þátt í safnanótt í fyrsta sinn. SÍÐA 4 Þjóðmenningarhúsið – The Culture House National Centre for Cultural Heritage Hverfi sgötu 15 · 101 Reykjavík Sími 545 1400 · www.thjodmenning.is Sýningar · leiðsögn · verslun Opið daglega kl. 11.00 – 17.00 Aðrar sýningar: Póstkortaár, Flora Islandica, Handritin. Leiðsögn án endurgjalds í boði fyrir skólahópa. Veitingar á virkum dögum. SÝNINGAR Á ÖLLUM HÆÐUM Sýningin ÍSLAND :: KVIKMYNDIR framlengd til hausts! 100 íslenskar kvikmyndir frá 1904-2009 í fullri lengd auk myndbrota úr völdum myndum á skjám, sjá thjodmenning.is ÓÞEKKTUR HÖFUNDUR. Gestir geta endurraðað íslenskri hugsun liðinna alda að eigin skapi með orðum úr hundruðum lausavísna óþekktra höfunda. Dagskrárgerð: Þorvaldur Þorsteinsson myndlistarmaður og rithöfundur. Bókasalur kl. 19-24 ÍSLENDINGAR sýning Sigurgeirs Sigurjónssonar og Unnar Jökulsdóttur á ljós- myndum úr samnefndri bók. Unnur skrafar við gesti á sýningunni milli kl. 21 og 22 og leikur með vinkonum á harmónikku. ÍSLAND :: KVIKMYNDIR 1904-2009 - 11. skjárinn. Frumsýning. 100 kvikmyndir í fullri lengd og nýr skjár með myndbrotum úr The Good Heart, Sólskinsdreng, Sveitabrúðkaupi og Brúðgumanum. VÍNBAR og von er á gestum úr kvikmyndageiranum. Í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands. Kl. 19-24. ÓLÖF ARNALDS – sólótónleikar - í Bókasal kl. 22:30-23:15. SAFNANÓTT – 12. FEBRÚAR KL. 19-24 Ókeypis á Safnanótt – Allir velkomnir! – Safnanæturleikur – Veitingasala
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.