Fréttablaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 12.02.2010, Blaðsíða 50
30 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR sport@frettabladid.is Dagur Sigurðsson hefur ákveðið að halda áfram að stýra austurríska landsliðinu í handbolta í það minnsta fram yfir tvo umspilsleiki gegn Hollandi um laust sæti á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð á næsta ári. Dagur er sem kunnugt er einnig þjálfari Füchse Berlin sem leikur í efstu deild í Þýskalandi. „Þetta var í raun og veru ekki erfið ákvörðun hjá mér að halda áfram með austurríska landsliðið. Þeir komu hingað til Berlínar í gær [fyrradag] frá austurríska handknattleikssambandinu og funduðu með mér og forráðamönnum Füchse Berlin. Það voru einhvern veginn allir á sömu línunni með að hjálpa til með þetta komandi verkefni hjá austurríska landsliðinu og ég er mjög ánægður með að fá tækifæri til þess að taka það að mér. Forráðamenn Füchse Berlin hefðu náttúrlega þannig séð getað lokað á þetta en þeir eru búnir að vera mjög skilningsríkir enda væri ég ekki að þessu ef svo væri ekki,“ segir Dagur. Dagur hefur gert frábæra hluti með austurríska landsliðið síðan hann tók við stjórnartaumunum þar á bær og náði fremur óvænt að koma liðinu alla leið í milliriðil á Evrópu- mótinu í Austurríki nú í janúar en fæstir áttu von á því fyrir mót að heimamenn myndu gera miklar rósir þar. Dagur viðurkennir að skemmtilegt sé að taka þátt í uppsveiflunni hjá liðinu en að sama skapi sé spennandi að hjálpa liðinu í krefjandi leikjum gegn Hollandi. „Auðvitað er gaman þegar vel gengur en það verður líka spennandi að takast á við þessa leiki gegn Hollandi því Austurríki og Holland eru með mjög áþekk lið. Bæði lið eru ef til vill sterkari núna en þau hafa verið að sýna síðustu árin og hafa á að skipa mörgum leikmönnum sem hafa verið að gera það gott í efstu deild í Þýskalandi. Þetta verða því eflaust jafnir og spennandi leikir.“ Dagur á þó frekar von á því að hætta með austur- ríska liðið eftir umspilsleikina, hvernig sem þeir fara. „Við setjumst væntanlega niður og ræðum málin þegar þar að kemur en ég á frekar von á að þessir leikir verði endapunkturinn hjá mér. Við sjáum samt bara til hvernig þetta fer.“ DAGUR SIGURÐSSON: STÝRIR AUSTURRÍSKA LANDSLIÐINU Í UMSPILSLEIKJUNUM NÆSTA SUMAR FYRIR HM 2011 Á frekar von á að þessir leikir verði endapunkturinn FÓTBOLTI Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, kynnti ársreikning sinn fyrir árið 2009 í síðustu viku. Þar kemur fram að reksturinn gangi vel en sambandið skilaði 50 milljóna króna hagnaði á árinu þó svo það hafi greitt upp 600 millj- óna króna lán vegna stúkubygg- ingarinnar. Sambandið er nú skuldlaust og á þess utan 328 milljónir inni á banka. Formaður sambandsins, Geir Þorsteinsson, hefur því yfir litlu að kvarta. „Ég er mjög ánægður með að reksturinn sé í lagi og hann var nokkurn veginn á áætlun. Það er afar ánægjulegt miðað við hvern- ig efnahagsástandið er þessi miss- erin. Það var líka afar ánægjulegt að greiða niður þetta 600 milljóna króna lán og hafa þar með sett lokapunkt á stúku- og skrifstofu- bygginguna. Það sýnir sterka lausafjárstöðu sambandsins,“ segir Geir og bætir við að síðasta ár hafi verið stórt hjá sambandinu. Metár á öllum sviðum „Við drógum ekkert saman í rekstrinum heldur er síðasta ár mesta umfang í rekstri hjá sam- bandinu á öllum sviðum. Það hafa aldrei verið eins margir landsleik- ir, fræðslustarfið aldrei jafn mikið og svona mætti áfram telja. Þetta var metár á öllum sviðum.“ Geir segir að KSÍ sé eðlilega að græða mikið á því að sjónvarps- samningar og styrkir að utan séu í erlendri mynt. „Þeir fóru náttúrulega frá því að vera 90 upp í 180. Það er augljóst að það hefur hjálpað okkur mikið. Ég legg líka mikla áherslu á að lausafjárstaðan sé sterk því það versta sem gæti komið fyrir er að við þyrftum að taka lán til þess að reka starfsemina,“ segir Geir. Rekstur KSÍ hefur bólgnað mikið út á síðustu árum og vekur athygli að skrifstofu- og stjórnun- arkostnaður hjá sambandinu er á síðasta ári 158 milljónir króna. Er það hækkun um 10 milljónir á milli ára og 42 milljónir frá 2006. Það er 36,2 prósenta hækkun á þrem- ur árum. Launaliðurinn hefur að sama skapi hækkað, eða um 34 milljón- ir frá 2006. Það er 45,9 prósenta hækkun. Starfsmönnum á þeim tíma hefur fjölgað um fjóra. Með- altal launa hvers starfsmanns er því rúmar 700 þúsund krónur á mánuði. „Það er ekkert skrítið að þetta hækki á milli ára enda hafa bæði skattar og tryggingagjöld hækk- að. Þar eru strax komnar nokkrar milljónir, við höfum enga stjórn á því,“ sagði Geir. „Ég þarf að skoða betur hver ástæðan sé fyrir þess- um hækkunum svo ég geti svarað almennilega. Ekki hefur starfs- mönnum fjölgað né að launin hafi hækkað mikið,“ segir Geir sem hafði samband síðar og bætti við að tveir starfsmenn hefðu verið ráðnir árið 2007. Neitar að gefa upp launin Sjálfur vill Geir ekki gefa upp hvað hann taki í laun fyrir að stýra KSÍ-skútunni. „Launin eru góð fyrir knatt- spyrnuhreyfinguna og ég er mjög sáttur. Þau hafa ekki verið gefin upp frekar en önnur laun hjá okkur. Það hefur ekki verið rætt að gera þau opinber,“ segir Geir en samkvæmt tekjublaði Mannlífs var Geir með tæplega 1,2 milljón- ir króna í mánaðarlaun árið 2008. Þess má geta í samanburði að Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra er með 935 þúsund krón- ur í mánaðarlaun fyrir að stýra þjóðarskútunni. „Launin mín eru í takti við það sem þau voru er ég var fram- kvæmdastjóri sambandsins,“ segir Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ. henry@frettabladid.is Geir er með hærri laun en Jóhanna Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, vill ekki gefa upp laun sín en samkvæmt tekjublaði Mannlífs er hann með rúmlega 200 þúsund krónum meira á mánuði en forsætisráðherra þjóðarinnar. Geir segir launin vera góð fyrir knattspyrnuhreyfinguna. Launaliður KSÍ hefur hækkað um tæplega 46 prósent á þremur árum. DÝR SKRIFSTOFA Geir situr hér á skrifstofu sinni í hinum glæsilegu húsakynnum KSÍ í Laugardal. Kostnaður við endurbætur á vellinum og byggingu skrifstofuhúsnæðis KSÍ kostaði 1,6 milljarð og fór 600 milljónum fram úr áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FÓTBOLTI Topplið Chelsea og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni töpuðu ekki aðeins stigum í leikjum sínum á miðvikudagskvöldið því bæði liðin misstu lykilmenn í lang- varandi meiðsli. Ashley Cole, bakvörður Chel- sea og enska landsliðsins, verður frá keppni í þrjá mánuði eftir að hann ökklabrotnaði í tapleikn- um á móti Everton. Cole meidd- ist eftir samstuð við Everton- manninn Landon Donovan en Cole og Donovan gætu hist að nýju í fyrsta leik Englendinga og Bandaríkjamanna á HM en hann fer fram 12. júní í Suður-Afríku. Ryan Giggs, miðjumaður Manchester United, brákaðist á hendi þegar hann lenti í samstuði við Aston Villa-manninn Steve Sidwell í 1-1 jafntefli liðanna. Báðir leikmenn missa því af 16 liða úrslitum Meistaradeildarinn- ar sem hefjast í næstu viku. - óój Enska úrvalsdeildin í fótbolta: Cole og Giggs brotnuðu báðir VONT Ashley Cole meiddist illa á móti Everton. MYND/GETTYIMAGES Iceland Express karla Fjölnir-Snæfell 69-64 (39-33) Stig Fjölnis: Christopher Smith 25, Jón Sverrisson 10, Ægir Þór Steinarsson 10, Níels Dungal 7, Arn þór Freyr Guðmundsson 6, Magni Hafsteinsson 5, Tómas Heiðar Tómasson 4, Sindri Kárason 2. Stig Snæfells: Sean Burton 20, Jón Ólafur Jónsson 18, Hlynur Bæringsson 9, Sigurður Á. Þorvaldsson 7, Martins Berkis 5, Emil Þór Jóhannsson 3, Páll Fannar Helgason 2. Stjarnan-ÍR 80-71 (44-40) Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 31, Djorde Pantelic 16, Fannar Freyr Helgason 15, Jovan Zdravevski 10, Ólafur Jónas Sigurðsson 4, Kjartan Atli Kjartansson 2, Guðjón Lárusson 2. Stig ÍR: Michael Jefferson 19, Nemanja Sovic 16, Eiríkur Önundarson 9, Kristinn Jónasson 7, Ásgeir Hlöðversson 6, Davíð Þór Fritzson 5, Steinar Arason 4, Ólafur Þóriss. 3, Elvar Guðmundss. 2. Keflavík-FSu 136-96 (65-37) Stig Keflavíkur: Hörður Axel Vilhjálmsson 24, Draelon Burns 20, Sigurður Gunnar Þorsteins son 20, Gunnar Einarsson 16, Uruele Igbavboa 14, Þröstur Leó Jóhannsson 12, Gunnar Stefáns son 9, Andri Skúlason 7, Sverrir Þór Sverrisson 6, Davíð Jónsson 5, Guðmundur Gunnarsson 3. Stig FSu: Richard Williams 35, Aleksas Zimnickas 26, Cristopher Caird 17, Kjartan Kárason 8, Orri Jónsson 5, Daníel Kolbeinsson 3, Jake Wyatt 2. Hamar-Grindavík 81-104 STAÐAN Í DEILDINNI: KR 16 13 3 1495-1294 26 Keflavík 16 12 4 1499-1282 24 Stjarnan 16 12 4 1396-1305 24 Grindavík 16 11 5 1519-1308 22 Snæfell 16 11 5 1480-1284 22 Njarðvík 16 11 5 1406-1234 22 Hamar 16 6 10 1344-1397 12 ÍR 16 5 11 1317-1443 10 Tindastóll 16 5 11 1316-1449 10 Fjölnir 16 5 11 1258-1422 10 Breiðablik 16 4 12 1262-1433 8 FSu 16 1 15 1154-1595 2 ÚRSLITN Í GÆR > Lék í 58 mínútur í fjórframlengdum sigurleik Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU þurftu fjórar fram- lengingar til þess að vinna Utah í bandaríska háskóla- boltanum í fyrrinótt. TCU er nú í 24. sæti yfir bestu háskólalið Bandaríkjanna og á toppi Mountain West-deildarinnar með 8 sigra í 10 leikjum. Helena skoraði 15 af 21 stigi sínu í framlengingunum fjórum en hún spilaði í 58 mínútur í leiknum og var auk stiganna með 8 fráköst, 5 stoðsendingar og 2 stolna bolta. TCU kom leiknum í framlengingu en Utah tryggði sér síðan þrjár framlengingar í röð áður en TCU vann fjórðu og síðustu framlenginguna 15-6. KÖRFUBOLTI „Við vorum góðir í þess- um leik og náðum að mér fannst að gera mjög vel til þess að stoppa þeirra helstu leikmenn. Við erum með flott varnarlið og höfum verið að taka stig af toppliðinum og það sýnir að það er eitthvað í okkur spunnið,“ sagði Bárður Eyþórs- son, þjálfari Fjölnis, eftir 69-64 sigur liðs síns gegn Snæfelli í Ice- land Express-deild karla í körfu- bolta Dalhúsum í Grafarvogi í gær- kvöldi. Gestirnir í Snæfelli mættu reyndar afar grimmir til leiks og voru alltaf skrefinu á undan heima- mönnum í Fjölni í fyrsta leikhlut- anum. Munaði þar mestu um góða hittni hjá Hólmurum fyrir utan þriggja stiga línuna en Fjölnis- menn létu þó ekki slá sig út af lag- inu og enduðu leikhlutann af krafti og staðan var 16-18 gestunum í vil eftir fyrsta leikhluta. Fjölnismenn héldu uppteknum hætti í öðrum leikhluta og náðu með öflugum varnarleik og skyn- sömum sóknarleik að taka forystu og leiða leikinn 39-33 þegar hálf- leiksflautan gall. Hvorugt liðið náði sér almennilega á strik sóknarlega í þriðja leikhlutanum en varnar- leikurinn var þess í stað í háveg- um hafður og oft á tíðum glæsileg tilþrif þar á báða bóga. Staðan var 56-47 fyrir lokaleik- hlutann og flest sem benti til þægi- legs sigurs heimamanna miðað við gang leiksins en gestirnir tóku við sér á lokasprettinum og náðu að minnka muninn niður í þrjú stig þegar tæp mínúta var eftir af leikn- um. Hólmarar fengu svo tækifæri til þess að jafna leikinn í tvígang en þriggja stiga skot þeirra klikk- uðu í bæði skiptin. Niðurstaðan varð sem segir 69-64 sigur heima- manna, sem eru fyrsta liðið til þess að vinna Snæfell á árinu 2010. „Við vorum bara hræðilega lélegir og við vorum bara ekki til- búnir í svona baráttuleik eins og Fjölnismenn buðu upp á. Lykil- menn voru að klikka hjá okkur og þetta tap er dýrt ef við ætlum að vera í toppbaráttunni,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæ- fells, í leikslok í gær. Cristhopher Smith átti frábæran leik fyrir Fjölni og skoraði 25 stig og tók 19 fráköst en Sean Burton var stigahæstur hjá Snæfelli með 20 stig. - óþ Fjölnir lagði enn eitt toppbaráttuliðið þegar Snæfell kom í heimsókn í Grafarvoginn í gærkvöldi: Fyrsta tap Snæfellinga á árinu 2010 19-19 Í FRÁKÖSTUM Christopher Smith og Hlynur Bæringsson tóku jafnmörg fráköst í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.