Fréttablaðið - 23.02.2010, Page 20
23. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR4
Wushu, opna Norðurlandamótið
í kung-fu, fór fram í tíunda sinn
í Kalmar í Svíþjóð dagana 11. til
14. febrúar. Keppendur á vegum
Heilsudrekans frá Íslandi tóku í
fyrsta sinn þátt í mótinu og gerðu
gott betur með því að lenda í þrem-
ur efstu sætunum í unglingaflokki.
Ari Emilsson, sextán ára, var einn
fjögurra keppenda sem hélt utan
og sneri heim með bikar.
„Okkur gekk bara rosalega vel,“
segir Ari hæstánægður en hann
hefur æft kung fu í á fjórða ár og
bætir við að þetta sé í fyrsta sinn
sem hann vinni til verðlauna fyrir
frammistöðu sína í þessari íþrótt.
Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem
Ari keppir á kung fu-móti erlend-
is. Síðast tók hann þátt í Norður-
landamóti í Noregi fyrir tveimur
árum. Hann segist hafa lært ýmis-
legt þar sem hann nýtti sér í Sví-
þjóð. „Keppnin var mjög svipuð,
það hjálpaði,“ segir Ari.
Í för með hópnum var einnig
vöruhönnuðurinn Manzo Mbomyo
sem er fyrsti fullorðni þátttakand-
inn sem keppir fyrir Íslands hönd
á móti í kung fu erlendis. Manzo er
frá Sevilla á Spáni en hefur búið á
Íslandi um nokkurra ára skeið og
fór að stunda kung fu fyrir aðeins
ári í Heilsudrekanum. Þrátt fyrir
skamman feril og enga reynslu af
keppnismennsku náði Manzo samt
þeim frábæra árangi að hafna
í fjórða sæti á Wushu-mótinu í
Kalmar. Hann kveðst vera ánægð-
ur með árangurinn en segir hann
jafnframt hafa komið sér á óvart.
„Ég er mjög sáttur, sérstak-
lega þar sem ég vissi alls ekki við
hverju átti að búast,“ viðurkenn-
ir Manzo og bætir við að íslenski
hópurinn hafi að auki hlotið mikla
athygli á mótinu fyrir kunnáttu
sína í san shou, sem er bardaga-
afbrigði af kung fu. „Einn skipu-
leggjandi mótsins bað okkur að
sýna listir okkar með aðeins dags
fyrirvara þannig að við höfðum
nánast engan tíma til að undir-
búa okkur. Okkar hópur var sá
eini sem fékk þann heiður að fá
að sýna þessar æfingar á mótinu
og tókst svo vel til að skipuleggj-
endurnir voru orðlausir af hrifn-
ingu.“
Þeir Ari og Manzo stefna báðir
á frekari keppnismennsku í kung
fu. Til stendur að hópur á vegum
Heilsudrekans taki þátt í heims-
meistaramóti í kung fu í Hong
Kong í Kína í apríl á næsta ári. Ef
allt gengur að óskum verða félag-
arnir með í för þannig að ljóst er
að ekkert lát verður á æfingum
þangað til. Þeir segja það þó ekki
koma að sök og hlakka greinilega
til frekari ævintýra.
roald@frettabladid.is
Frækinn sigur í kung fu
Íslenskir keppendur gerðu það gott á Wushu, opna Norðurlandamótinu í kung-fu, í Kalmar í Svíþjóð á
dögunum. Þar náði íslenski hópurinn að landa fyrstu þremur efstu sætunum í flokki unglinga.
Manzo Mbomyo hefur lengi haft áhuga
á kung fu en fór að stunda þessa bar-
dagaíþrótt í Heilsudrekanum í Skeifunni
3j fyrir einu ári. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hér sýna þeir Haraldur Karlsson, sautján ára, Ari Emilsson, sextán ára og Bjarni Jónsson, fimmtán ára, nokkur vel valin brögð.
Ari og Bjarni lentu í efsta sæti í hópi þeirra sem sýndu kung fu með vopnum en Haraldur í öðru sæti. Haraldur var efstur í hópi
þeirra sem sýndu brögð án vopna, Ari annar og Bjarni sá þriðji. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
NÁUM ÁTTUM er heiti á morgunverðarfundi um börn
með ADHD sem haldinn verður á Grand hóteli miðvikudag-
inn 24. febrúar frá klukkan 8.15 til 10. www.naumattum.is
Það er ekki nauðsynlegt að leggja reiðhjólinu um leið og
vetur gengur í garð. Hægt er að festa kaup á nagladekkj-
um fyrir reiðhjól og eru til ýmsar gerðir af nagladekkjum
með mismörgum nöglum í. Að auki er hægt að kaupa
skóhlífar fyrir reiðhjólafólk sem gerðar eru úr vatnsheldu
efni og má smeygja yfir skófatnað fólks. Þessar skóhlíf-
ar fást í mismunandi lengdum og hlífa bæði skóm og
fatnaði hjólreiðamannsins þegar blautt er úti. Ekki má
þó gleyma ljósbúnaði þegar hjólað er að vetri til og er
nauðsynlegt að vera með ljós bæði að framan og aftan
og mælir fagfólk með því að notuð séu tvö ljós að fram-
an; annað til að lýsa leiðina og hitt blikkljós.
Hjólað yfir veturinn
ÝMSAR LEIÐIR ERU FÆRAR TIL AÐ GERA HJÓLA-
MENNSKU MÖGULEGA ÞRÁTT FYRIR ÍS OG SNJÓ.
Með réttum búnaði er hægt að nýta hjólið áfram þrátt fyrir
kulda og vetur.
Borgartún 24 – Hæðarsmára 6 – Hafnarborg s. 58 58 700 www.madurlifandi.is
Í kvöld þriðjudag
23. febrúar
kl 18:00–21:00
Matreiðslunámskeið
Í fræðslusal Maður lifandi
Borgartúni 24
Hollt og Hagkvæmt
Ertu með eitthvað
gott á prjónunum?
Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna
og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn,
sem kallast Föt sem framlag , mun hittast næst og
prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Hamraborg 11, 2. hæð,
miðvikudaginn 24.febrúar kl. 15-18.
Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist
reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að
taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn
í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könn-
unni og með því.
Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626 .
Sjálfboðamiðstöð Hamraborg 11 opið virka daga kl. 10-16 sími 554 6626
kopavogur@redcross.is redcross.is/kopavogur
Miðvikudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447