Fréttablaðið - 23.02.2010, Síða 46
22 23. febrúar 2010 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
> KOMINN MEÐ NÝJA
Gítarleikarinn Ronnie Wood úr The
Rolling Stones er kominn með nýja
kærustu upp á arminn. Sú heitir
Ana Araujo og er brasilísk fegurð-
ardís sem stundar nám í arkitektúr.
Ronnie fór með dömuna í fjögurra
tíma verslunarleiðangur um helg-
ina og segja breskir fjölmiðlar að
þau hafi geislað af hamingju.
Shutter Island, nýjasta kvikmynd
Martins Scorsese, fór beint á topp-
inn yfir aðsóknarmestu myndirnar
vestanhafs um síðustu helgi. Mynd-
in náði inn fjörutíu milljónum doll-
ara, eða um fimm milljörðum króna,
sem er betri árangur en búist var
við. Þetta er jafnframt besta byrjun
nokkurrar myndar Scorsesew, sem
á að baki hinar vinsælu Taxi Dri-
ver, Raging Bull og The Departed.
Leonardo DiCaprio leikur í Shutter
Island lögreglumann sem rannsak-
ar mannshvarf á sjúkrahúsi fyrir
geðsjúka glæpamenn.
Fór beint á toppinn
SHUTTER ISLAND Leonardo DiCaprio
leikur aðalhlutverkið í spennumyndinni
Shutter Island.
Tónlistarmaðurinn Ólafur
Arnalds er á leiðinni til
Asíu í mars. Hann borgar
ekki krónu fyrir ferðina,
þar sem hann vann þúsund
hljómsveitir og listamenn í
keppni á vefsíðunni Sonic-
bids.com.
„Ástæðan fyrir því að ég var ekki
búinn að fara til Kína var vegna
þess að það er svo ógeðslega dýrt,“
segir tónlistarmaðurinn Ólafur
Arnalds.
Ólafur er á leiðinni í tónleika-
ferðalag til Kína, Taívan og Hong
Kong í boði vefsíðunnar Sonic-
bids.com og kynningarfyrirtækis-
ins Planetary Group. Fyrirtækin
útvega og greiða fyrir atvinnu-
leyfi, flug, hótel, uppihald, auglýs-
ingaherferð og starfsfólk ferða-
lagsins og Ólafur tekur fjögurra
manna hljómsveit með út. Yfir
þúsund hljómsveitir og listamenn
sóttu um pakkann á vefsíðu Sonic
Bids og Ólafur stóð einn uppi sem
sigurvegari.
Ólafur hlakkar mikið til ferða-
lagsins sem hefst í borginni Taíp-
ei í Taívan 24. mars. Þaðan held-
ur hópurinn til Hong Kong og
loks til Kína þar sem hann kemur
fram á fimm tónleikum í Sjanghæ,
Wuhan, Quingda, Peking og Tianj-
in. Spurður út í salina sem hann
kemur fram í segir hann flesta
vera stóra og flotta. „Þetta eru yfir
þúsund manna salir – aðaltónleika-
staðirnir í þessum borgum,“ segir
hann.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
Ólafur kemur til Kína. Hann komst
reyndar nálægt því árið 2008,
en þá gripu kínversk stjórnvöld
í taumana. „Þá var hátíð í Kína
sem borgaði undir okkur,“ rifjar
hann upp. „Svo sagði Björk „Free
Tibet“ og þá voru allar tónlist-
arhátíðir bannaðar í Kína og við
fengum ekki að fara. Ég er ekki
bókaður á hátíðir núna, þannig að
ég er öruggur.“ Ferðin ætti þó að
auðvelda Ólafi að heimsækja Kína
í framtíðinni, en hann vonast til
að komast í samband við fólk sem
getur greitt götu hans.
Í kjölfarið á því að tilkynnt var
um komu Ólafs til Kína ruku lög
hans upp vinsældalistann á vefsíð-
unni Douban.com, sem er ein vin-
sælasta vefsíðan í Kína með fleiri
en 10 milljónir skráða notendur.
Ólafur situr nú í efsta sæti yfir vin-
sælustu listamennina á síðunni og
fjölmargir notendur hafa tjáð sig
um ágæti tónlistarinnar og meðal
annar líkt henni við tóna Sigur
Rósar. atlifannar@frettabladid.is
Fer frítt í tónleikaferð til
Kína, Taívan og Hong Kong
„Það var kalt og samloka á hótelinu kostaði 2.600
krónur. Mér fannst það mikið sjokk,“ segir Sindri
Már Sigfússon í hljómsveitinni Seabear. Hljómsveit-
in spilaði á By:Larm hátíðinni í Osló um helgina.
„Þetta er mjög lík hátíð og Airwaves. Við spiluðum
á tvennum tónleikum, það var fullt á þeim báðum
og mjög góð stemning. Svo spiluðum við í norska
sjónvarpinu. Það er eitthvert trend hjá þeim að taka
bönd upp að spila á skrýtnum stöðum og þeir létu
okkur spila í kókosbolluverksmiðju.“
Aðrir Íslendingar á By:Larm voru Kira Kira, Haf-
dís Huld og hljómsveitin For a minor reflection.
Næst heldur Seabear í Evróputúr, sem hefst í Hann-
over á sunnudaginn. Um miðjan mars verður band-
ið svo að spila á SXSW hátíðinni í Austin í Texas.
Fimm tónleikar eru fyrirhugaðir þar, en aðeins þau
bönd sem mestar vonir eru bundnar við fá að spila
svona oft á þessari hátíð. We built a fire, nýjasta
plata sveitarinnar, verður fáanleg á Íslandi á cd og
vínyl í byrjun mars. - drg
Í kókosbolluverksmiðju
HLJÓMSVEITIN SEABEAR Mikið fram undan á næstunni
– meðal annars fimm tónleikar á SXSW.
Móðir tónlistarmógúlsins
Simons Cowell segir að hann
hafi aldrei verið eins ham-
ingjusamur og nú, eftir að
hann byrjaði á föstu með
Mezhgan Hussainy. Julie
Cowell segir að hamingj-
an hreinlega geisli af syni
sínum.
Julie er 84 ára. Hún segir
ótrúlegt að sjá þau áhrif
sem kærastan hafi haft á
son sinn eftir aðeins nokk-
urra mánaða samband. „Ég
ætlaði ekki að trúa þessu
þegar ég hitti hann. Hann
bókstaflega geislar. Ég held
að það að verða fimmtugur
hafi breytt honum og feng-
ið hann til að meta líf sitt að
nýju. Hann verður frábær
eiginmaður,“ segir mamma
gamla. Hún segir jafnframt
að Mezhgan sé fyrsta kær-
astan sem Simon bjóði að
flytja inn til sín. „Ég er viss
um að þau eiga eftir að gifta
sig og eignast börn,“ segir
mamma Simons.
Cowell aldrei hamingjusamari
GLAÐUR OG ÁSTFANGINN Simon
Cowell bókstaflega geislar af gleði
og hamingju að sögn móður hans.
NORDICPHOTOS/GETTY
Endingargóðir og vandaðir kæli- og frystiskápar
í öllum stærðum frá Liebherr á tilboði
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
30-50%
AFSLÁTTUR
af völdum tækjum
Fyrir atvinnueldhús
Hvítir kæliskápar
Stálklæddir kæliskápar
Innbyggðir kæliskápar
SIGURVEGARI Ólafur og hljómsveit fá allt greitt undir sig í ferðalaginu til Asíu, en þau
koma við í Kína, Hong Kong og Taívan. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI