Fréttablaðið - 24.02.2010, Síða 1

Fréttablaðið - 24.02.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAGI Í MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 — 46. tölublað — 10. árgangur Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 KUÐUNGURINN, umhverfisviðurkenning umhverfisráðuneytisins, verður afhentur 25. apríl. Umhverfisráðuneytið óskar eftir tilnefning- um um fyrirtæki eða stofnanir sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári eru þess verðug að hljóta Kuðunginn. www. umhverfisraduneyti.is „Þetta var mjög skemmtileg og ævintýraleg ferð,“ segir Sigurgeir Finnsson, bókasafns- og upplýs-ingafræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni, um tónlistarferðalag sem hann fór í til Frakklands í ágúst 2005.Tildrögin að ferðinni voru sú að Einar Melax, sem þá var tónlistar-kennari á Grundarfirði, fékk þá hugmynd að setja saman hljómsveit með það að markmiði að komast á sjómannalaga- og þjóðlagahátíðina Fête du chant de marin, sem hald-in hefur verið í bænum Paimpol í Frakklandi annað hvert ár í ára-tugi. Hljómsveitin átti að spila gömul og nýrri íslensk sjómanna-lög. „Einar hafði dvalið í Pk sveit sem trommuleikari. Við gerð-um demó, sendum út og fengum inni á hátíðinni, hugsanlega einn-ig fyrir tengsl Grundarfjarðar og Paimpol sem eru vinabæir.“ Hljómsveitin hlaut nafnið Rauð-ir fiskar og alls flugu tíu manns til Parísar í byrjun ágúst, hljóm-sveitarmeðlimir og fylgifiskar. Tveir bílaleigubílar voru fylltir af farangri og hljóðfærum og svo hélt hópurinn af stað þvert yfir Frakkland, alla leið til Paimpol, sem er lítill sjómannabær á Breta-gne-skaganum. „Bærinn er mjög fallegur og notalegur með stórri höfn. Hann hefur mikla Ísl dtengin að sjá hann, sem var algjörlega óleymanlegt,“ segir Sigurgeir.Hann segir tónleikasvæðið á hátíðinni vera einkar skemmtilegt. Öll sviðin eru við höfnina sem er U-laga, eitt sviðið er um borð í gam-alli seglskútu og standa þá áhorf-endur á bakkanum og flytjendur eru um borð í bátnum. Rauðir fisk-ar komu þrisvar sinnum fram, þar af eitt skipti í bátnum.Eftir að hátíðinni lauk dvaldi hópurinn í nokkra daga áfram í Paimpol. „Okkur var boðið í sigl-ingu á vegum Íslendingafélagsins í bænum á Spilaði um borð í bátSigurgeir Finnsson sótti sjómannalaga- og þjóðlagahátíðina Fête du chant de marin í bænum Paimpol á Bretagne-skaga og tróð þar upp ásamt hljómsveitinni Rauðum fiskum frá Grundarfirði sumarið 2005. Sigurgeir segir bæinn Paimpol á Bretagne-skaga vera lítinn og notalegan og hafa mikla tengingu við Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Slys og veikindi barna Námskeiðsgjald: 6.500 kr. á mann en 5.000 krónur ef maki eða eldra systkini tekur líka þátt. Leiðbeinandi er Sigrún Pétursdóttir, hjúkrunarfræðingur. Innifalin eru námskeiðsgögn og þátttökuskírteini. Skráning er til 14.mars Kópavogsdeild Rauða krossins heldur námskeiðið Slys og veikindi barna 8. og 10 mars kl. 18-21 í Hamraborg 11, 2 hæð. Á námskeiðinu er fjallað um varnir gegn slysum á börnum og orsakir slysa almennt, þroska barna og slys sem tengjast aldri. Leiðbeint er í skyndihjálp við barnaslysum og áverkum af ýmsu tagi, endurlífgun barna, andlegum undirbúningi við komu barna á sjúkrahús o.fl. Frekari upplýsingar fást í síma 554 6626 eða með tölvupósti á kopavogur@redcross.is. Skráning er til 4 mars Sjálfboðaliðar Kópavogsdeildar fá ókeypis á námskeiðið og félagsmenn sem greitt hafa félagsgjaldið fá 10% afslátt. Gistiheimili í Kaupmannahöfn Herbergi og studioíbúðirí miðbænum sími 0045-2848 8905 La Villa SIGURGEIR FINNSSON Spilaði með Rauðum fiskum í Frakklandi • á ferðinni • fermingar Í MIÐJU BLAÐSINS Fréttablaðið er með 212% meiri lestur en Morgunblaðið. Meðallestur á tölublað, höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára. Könnun Capacent í nóvember 2009 – janúar 2010. Allt sem þú þarft... MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 73,8% 23,7% Skilanefndasiðferði „FME getur skipað nýjan skila- nefndarmann ef einhver hættir. En bara ef einhver hættir,” skrifar Guðfríður Lilja Grétarsdóttir. UMRÆÐAN 14 VETRARLÍF Fljótandi hótel, ísborgir og ferðir með troðara Sérblaðið Vetrarlíf FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Þróunarsamvinna skilar góðum árangri Landgræðsluskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna rekinn á Íslandi. TÍMAMÓT 18 INGIBJÖRG EGILS Ný aðstoðarkona Kalla Berndsen í sjónvarpinu Ný þáttaröð að hefjast FÓLK 30 Hitti klónið Jón Ársæll Þórðarson hitti klónaða útgáfu af sjálfum sér í Pálma Gests- syni. FÓLK 22 FERÐIR „Þetta er alveg nýr mark- hópur í ferðaþjónustu á Íslandi en að skipuleggja prjónaferðir hingað til lands hefur ekki verið gert áður svo ég viti,“ segir Ragnheiður Eiríksdóttir, sem á og rekur Knitting Iceland með Hélène Magnusson prjónahönnuði. Mikill áhugi er meðal erlends prjónafólks á lúx- usferðum sem þær stöllur hafa skipulagt og snúast um að prjóna í íslensku umhverfi. „Með þessa hugmynd komumst við svo inn í verkefni sem kallast Útflutnings- aukning og hagvöxtur og er í gangi hjá Útflutningsráði og þar höfum við unnið með skipulag og mark- aðssetningu þessara ferða síðan í október.“ - jma / sjá allt í miðju blaðs Erlent prjónaáhugafólk: Flýgur til Íslands til að prjóna RAGNHEIÐUR EIRÍKSDÓTTIR ALLHVASST NV-TIL Í dag verða norðaustan 8-13 m/s en hvassara NV-til og við SA-ströndina. Víða snjókoma eða él og S- og SV-til síðdegis. Frost 2-10 stig. VEÐUR 4 -5 -6 -4 -3 -4 BJÖRGUN Þótt hestar hafi verið notaðir öldum saman hér á landi við leit og smölun á sauðfé hefur minna farið fyrir því undanfarin ár að þarfasti þjónninn sé notaður við leit og björgun á fólki. Hópur björgunarsveitarfólks í Borgarnesi hefur starfrækt Leit- arhesta í Borgarfirði í á annað ár. Halla Kjartansdóttir, forsvars- maður hópsins, segir hópinn til- búinn, nú sé beðið eftir útkalli þar sem hestarnir þyki henta. Unnið er að því að koma slíkum hópum á legg á öðrum svæð- um, til dæmis á Suðurlandi og í Skagafirði, enda góð leið til að sameina áhuga á hestamennsku, björgunarstörfum og útivist. „Hestar komast ótrúlega vel og hratt yfir torsótt land. Knap- inn sér betur yfir en fótgangandi björgunarsveitarmaður og hefur meira ráðrúm til að líta í kringum sig,“ segir Halla. Reiðmaðurinn hafi að auki annað sett af skyn- færum sem næmur knapi geti nýtt sér. „Við teljum leitarhesta góða við- bót við aðra leitarmöguleika sem nú eru í boði,“ segir Halla. „Þetta er hrein viðbót við það sem nú er í gangi. Fólk leitar á alls konar farartækjum, og sum þeirra henta ekki við allar aðstæður.“ Halla segir að framtíðarmark- miðið sé ekki bara að nota hesta við leit og björgun, heldur að þjálfa þefhesta. Þeir geti gegnt svipuðu hlutverki og leitarhund- ar, með því að finna lykt af fólki sem verið er að leita að. Hestar hafa mjög gott þefskyn, og innan leitarhópa í Bandaríkjunum er stundum hluti af hestum hópsins þjálfaður sem þefhestar, segir Halla. Ekki gengur að senda hvaða hest sem er til leitar, enda verða hestarnir að vera vel tamdir og traustir, fótvissir, sterkir og sjálf- stæðir í hugsun. Halla segir þetta til að mynda eiga við marga af þeim hestum sem notaðir séu við smölun. Þá þarf knapinn að hafa þjálfun í björgunarstörfum til að nýtast sem best, þótt einstöku sinnum hafi verið leitað til óþjálf- aðra heimamanna sem þekkja leitarsvæðið vel. Gallinn við að nota hesta frek- ar en vélknúin farartæki er að útkallstíminn getur verið lengri. Halla segir mögulegt að leitar- hópar á hestum verði frekar not- aðir við leit eftir að fyrstu við- brögð hafi verið sett í gang, til dæmis á öðrum degi leitar eða þegar leit sé efld. Notkun hesta til leitar og björg- unar er þekkt víða um heim. Halla er í forsvari fyrir undirbúnings- hópi sem vinnur að stofnun fleiri leitarhópa hér á landi. Hún segir mikilvægt að nýta sér reynslu annarra í þessum efnum. - bj Björgunarsveit vill þefhesta Miklir möguleikar eru fólgnir í notkun hesta við björgunarstörf hér á landi. Geta hentað þegar þarf að fara yfir torsótt landsvæði. Einn leitarhestahópur starfandi á landinu. Framtíðarmarkmið að þjálfa þefhesta. vetrarlífMIÐVIKUDAGUR 24. FEBRÚAR 2010 Ferðast með snjótroðaraBoðið er upp á óvenjulegar ferðir upp fjallið Kaldbak. SÍÐA 4 STJÓRNMÁL Ekki fengust formleg viðbrögð við svar- bréfi íslenskra ráðamanna við tilboði Breta og Hollendinga um lausn Icesave-málsins í gær. Óvíst er að þau fáist í dag en í stjórnkerfinu er vonast til að þau fáist fyrir vikulok. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins átti Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra samtöl við ráðherra í Bretlandi, Hollandi og Noregi í gær. Hollenski fjármálaráðherrann, Wouter Bos, lét af embætti í gær í framhaldi afsagnar ríkisstjórnar landsins, og var eitt hans síðasta embættisverk að ræða við Steingrím J. Sigfússon. Samtölin voru óformleg og í þeim fékkst ekki ádráttur um svör eða nýtt tilboð. Hluti íslensku samninganefndarinnar hélt til Lundúna í gær og er þar reiðubúinn að ganga á fund með Bretum og Hollendingum, þegar og ef til hans verður blásið. Ytra eru formaðurinn Lee C. Buchheit, Guðmundur Árnason og Lárus Blöndal. Heima sitja Einar Gunnarsson og Jóhannes Karl Sveinsson. Þó að alls óvíst sé hvenær svarbréfi Íslendinga verður svarað og jafnóvíst sé á hvaða nótum svarið verður ríkir enn sæmileg bjartsýni meðal íslenskra ráðamanna. Þeir benda jú á að engum dyrum hafi enn verið lokað. Tími til samninga sé þó naumur. - bþs, kóp Stöðug samskipti við breska og hollenska ráðamenn en óvíst hvert stefnir: Viðbragða við svarbréfi beðið Basl á Börsungum Barcelona mátti þakka fyrir jafntefli gegn Stuttgart í Meistaradeildinni í gær. ÍÞRÓTTIR 26 LÍFSINS LEIKUR Þótt kalt sé í veðri skín sólin samt og engin ástæða til að sitja heima með hendur í skauti. Þetta vita þessir efni- legu piltar sem lögðu á ísinn á Reykjavíkurtjörn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.