Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 12
12 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
Upplýst var snemma í þessum mánuði að Sólon Sigurðsson, fyrrverandi
bankastjóri Búnaðarbankans, hefði í fyrstu neitað að lána Björgólfsfeðgum
fyrir kaupum í Landsbankanum þegar eftir því var leitað árið 2003. Í viðtali
við Ríkisútvarpið 9. þessa mánaðar sagðist Sólon hafa sagt að sér kæmi
umleitanin „svolítið undarlega fyrir sjónir“ því hann hefði haldið að „þeir
hefðu fengið að kaupa Landsbankann á grundvelli þess að þeir væru að
koma með svo mikið af dollurum til landsins að það hálfa væri nóg“. Sólon
kvaðst síðan hafa látið undan þrýstingi frá Halldóri J. Kristjánssyni, banka-
stjóra Landsbankans, og lánað 3,4 milljarða til kaupanna.
EFNAHAGSMÁL Í minnisblaði til rann-
sóknarnefndar Alþingis mælist
Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og
lektor við viðskiptadeild Háskólans
í Reykjavík, til þess að rannsókn-
in nái allt til einkavæðingar bank-
anna. Minnisblaðið er frá í janúar
í fyrra. Þá kallaði nefndin fyrir sig
hópa hagfræðinga til ráðgjafar.
Í erindinu segir Ólafur að kanna
þurfi hver hafi verið tildrög þess
að bankarnir voru seldir svoköll-
uðum kjölfestufjárfestum en ekki
með dreifða aðild fyrir augum eins
og boðað hafði verið. „Tilefni sýn-
ist til að kanna þá fullyrðingu í
ljósi vals á kaupendum, sem engir
höfðu getið sér orð fyrir þekkingu á
bankastarfsemi, að bankarnir hafi
verið seldir eftir svonefndri helm-
ingaskiptareglu stjórnarflokkanna
tveggja,“ segir í minnisblaðinu.
„Um leið sýnist ástæða til að skoða
sölu VÍS út úr Landsbankanum í
þessu samhengi.“
Þá segir Ólafur að kanna þurfi
fullyrðingu fyrrum bankamálaráð-
herra að Ríkisendurskoðun hafi lagt
faglega blessun yfir einkavæðingu
bankanna í ljósi alvarlegra athuga-
semda sem stofnunin hafi gert við
hana. Um leið segir hann ástæðu til
að kanna hvort forsætisráðuneyt-
ið hafi hlutast til um efni skýrslu
Ríkisendurskoðunar um einkavæð-
ingu bankana í árslok 2003.
„Benda má á að skýrslan hefði
þurft að taka til sölu Búnaðar-
bankans úr hendi þeirra sem
keyptu ráðandi hlut af ríkissjóði,
en hann var í þeirra eigu aðeins
skamma hríð þar til þeir seldu
eignarhlutinn með umtalsverðum
hagnaði.“ Þá segir hann að svo virð-
ist sem Ríkisendurskoðun hafi látið
undir höfuð leggjast að afla gagna
frá þýskum eftirlitsstofnunum um
þýska bankann Hauck & Aufhäu-
ser Privatbankiers sem við einka-
væðinguna eignaðist fjórðungshlut
í bankanum.
Ólafur tiltekur í erindi sínu til
nefndarinnar fjölda þátta sem
þyrfti að taka til athugunar við
rannsókn á aðdraganda og orsökum
á falli íslensku bankanna 2008 og
tengdum atburðum. Auk einkavæð-
ingar bankanna taldi hann að kanna
þyrfti hvernig eftirliti Seðlabank-
ans með fjármálastöðugleikanum
og með gjaldeyrisstöðu bankanna
hefði verið háttað, tilraunir Seðla-
bankans til að efla gjaldeyrisvara-
sjóðinn, samband Seðlabankans
við aðra banka og við ríkisstjórn,
eftirlit Fjármálaeftirlitsins (FME),
ákvörðunina um að þjóðnýta Glitni,
Icesave-reikninga Landsbankans,
Kastljósviðtal Davíðs Oddssonar þá
seðlabankastjóra, og fleiri þætti.
Stefnt er að því að skýrsla rann-
sóknarnefndar Alþingis komi út
fyrir mánaðamótin. Frestur sem
tólf embættismönnum var gefinn til
að skila andmælum við efni hennar
rennur út í dag. olikr@frettabladid.is
Hrunsrannsóknin nái til
einkavæðingar bankanna
Ólafur Ísleifsson mæltist til þess við rannsóknarnefnd Alþingis að athugun hennar næði til einkavæðingar
bankanna og kannað yrði hvort forsætisráðuneytið hefði hlutast til um úttekt Ríkisendurskoðunar 2003.
LYFTIR UPP BARNI Strákhnokki á Haítí
skemmtir sér hið besta þar sem hann
hangir í hendi bandarísks hermanns.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
HLUTI AF EINKAVÆÐINGARSÖGUNNI
BOÐA FREST Tryggvi Gunnarsson og Páll Hreinsson sitja fyrir svörum fjölmiðla í
janúar eftir að í ljós kom að útgáfa skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um banka-
hrunið kæmi til með að frestast. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HOLLAND, AP Þingkosningar verða
haldnar í Hollandi 9. júní, sam-
kvæmt yfirlýsingu frá ríkis-
stjórninni sem
missti meiri-
hluta sinn um
helgina.
Jan Peter
Balkenende
og ríkisstjórn
hans verða þó
áfram við völd
þangað til ný
stjórn hefur
verið mynd-
uð að loknum
kosningum. Umboð stjórnar-
innar takmarkast þó við lausn
brýnustu mála.
Það voru deilur um þátttöku
Hollendinga í stríðinu í Afgan-
istan sem urðu stjórn hægri- og
miðflokkanna að falli. - gb
Stjórnarskipti í Hollandi:
Þingkosningar
haldnar í júní
JAN PETER
BALKENENDE