Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.02.2010, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 24.02.2010, Qupperneq 12
12 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR Upplýst var snemma í þessum mánuði að Sólon Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans, hefði í fyrstu neitað að lána Björgólfsfeðgum fyrir kaupum í Landsbankanum þegar eftir því var leitað árið 2003. Í viðtali við Ríkisútvarpið 9. þessa mánaðar sagðist Sólon hafa sagt að sér kæmi umleitanin „svolítið undarlega fyrir sjónir“ því hann hefði haldið að „þeir hefðu fengið að kaupa Landsbankann á grundvelli þess að þeir væru að koma með svo mikið af dollurum til landsins að það hálfa væri nóg“. Sólon kvaðst síðan hafa látið undan þrýstingi frá Halldóri J. Kristjánssyni, banka- stjóra Landsbankans, og lánað 3,4 milljarða til kaupanna. EFNAHAGSMÁL Í minnisblaði til rann- sóknarnefndar Alþingis mælist Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, til þess að rannsókn- in nái allt til einkavæðingar bank- anna. Minnisblaðið er frá í janúar í fyrra. Þá kallaði nefndin fyrir sig hópa hagfræðinga til ráðgjafar. Í erindinu segir Ólafur að kanna þurfi hver hafi verið tildrög þess að bankarnir voru seldir svoköll- uðum kjölfestufjárfestum en ekki með dreifða aðild fyrir augum eins og boðað hafði verið. „Tilefni sýn- ist til að kanna þá fullyrðingu í ljósi vals á kaupendum, sem engir höfðu getið sér orð fyrir þekkingu á bankastarfsemi, að bankarnir hafi verið seldir eftir svonefndri helm- ingaskiptareglu stjórnarflokkanna tveggja,“ segir í minnisblaðinu. „Um leið sýnist ástæða til að skoða sölu VÍS út úr Landsbankanum í þessu samhengi.“ Þá segir Ólafur að kanna þurfi fullyrðingu fyrrum bankamálaráð- herra að Ríkisendurskoðun hafi lagt faglega blessun yfir einkavæðingu bankanna í ljósi alvarlegra athuga- semda sem stofnunin hafi gert við hana. Um leið segir hann ástæðu til að kanna hvort forsætisráðuneyt- ið hafi hlutast til um efni skýrslu Ríkisendurskoðunar um einkavæð- ingu bankana í árslok 2003. „Benda má á að skýrslan hefði þurft að taka til sölu Búnaðar- bankans úr hendi þeirra sem keyptu ráðandi hlut af ríkissjóði, en hann var í þeirra eigu aðeins skamma hríð þar til þeir seldu eignarhlutinn með umtalsverðum hagnaði.“ Þá segir hann að svo virð- ist sem Ríkisendurskoðun hafi látið undir höfuð leggjast að afla gagna frá þýskum eftirlitsstofnunum um þýska bankann Hauck & Aufhäu- ser Privatbankiers sem við einka- væðinguna eignaðist fjórðungshlut í bankanum. Ólafur tiltekur í erindi sínu til nefndarinnar fjölda þátta sem þyrfti að taka til athugunar við rannsókn á aðdraganda og orsökum á falli íslensku bankanna 2008 og tengdum atburðum. Auk einkavæð- ingar bankanna taldi hann að kanna þyrfti hvernig eftirliti Seðlabank- ans með fjármálastöðugleikanum og með gjaldeyrisstöðu bankanna hefði verið háttað, tilraunir Seðla- bankans til að efla gjaldeyrisvara- sjóðinn, samband Seðlabankans við aðra banka og við ríkisstjórn, eftirlit Fjármálaeftirlitsins (FME), ákvörðunina um að þjóðnýta Glitni, Icesave-reikninga Landsbankans, Kastljósviðtal Davíðs Oddssonar þá seðlabankastjóra, og fleiri þætti. Stefnt er að því að skýrsla rann- sóknarnefndar Alþingis komi út fyrir mánaðamótin. Frestur sem tólf embættismönnum var gefinn til að skila andmælum við efni hennar rennur út í dag. olikr@frettabladid.is Hrunsrannsóknin nái til einkavæðingar bankanna Ólafur Ísleifsson mæltist til þess við rannsóknarnefnd Alþingis að athugun hennar næði til einkavæðingar bankanna og kannað yrði hvort forsætisráðuneytið hefði hlutast til um úttekt Ríkisendurskoðunar 2003. LYFTIR UPP BARNI Strákhnokki á Haítí skemmtir sér hið besta þar sem hann hangir í hendi bandarísks hermanns. FRÉTTABLAÐIÐ/AP HLUTI AF EINKAVÆÐINGARSÖGUNNI BOÐA FREST Tryggvi Gunnarsson og Páll Hreinsson sitja fyrir svörum fjölmiðla í janúar eftir að í ljós kom að útgáfa skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um banka- hrunið kæmi til með að frestast. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HOLLAND, AP Þingkosningar verða haldnar í Hollandi 9. júní, sam- kvæmt yfirlýsingu frá ríkis- stjórninni sem missti meiri- hluta sinn um helgina. Jan Peter Balkenende og ríkisstjórn hans verða þó áfram við völd þangað til ný stjórn hefur verið mynd- uð að loknum kosningum. Umboð stjórnar- innar takmarkast þó við lausn brýnustu mála. Það voru deilur um þátttöku Hollendinga í stríðinu í Afgan- istan sem urðu stjórn hægri- og miðflokkanna að falli. - gb Stjórnarskipti í Hollandi: Þingkosningar haldnar í júní JAN PETER BALKENENDE

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.