Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 16
16 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR UMRÆÐAN Davíð Stefánsson skrifar um Vinstri græn Fréttablaðið hefur sýnt mál-efnum vinstri grænna mikinn áhuga á síðustu vikum. Síðast á mánudaginn birtist fréttaskýring um meintan klofning innan hreyf- ingarinnar og af honum eru dregn- ar ýmsar ályktanir, sumar ansi brattar. Lök framkvæmd? Þar er vikið sérstaklega að for- vali VG í Reykjavík sem fram fór 6. febrúar sl. og fjallað um „laka framkvæmd kosninganna“. Stað- reyndin er hins vegar sú að fram- kvæmd forvalsins var almennt til mikillar fyrirmyndar, enda ein- valalið innan hreyfingarinnar sem kom þar að málum. Kjörsókn var framar vonum og raunar meiri nú en í síðasta forvali til alþing- iskosninga. Í eftirleik forvals- ins kom í ljós að ekki voru allir frambjóðendur fyllilega sáttir og formaður kjörstjórnar var gagn- rýndur fyrir að hafa veitt misvís- andi upplýsingar um meðhöndlun póstatkvæða. Til að uppstilling á lista í kjölfar forvalsins yrði hafin yfir allan vafa tók forvalsstjórn ekki við því starfi, eins og hefð er fyrir, og því verður ný uppstilling- arnefnd skipuð. Í þessu fólst engin yfirlýsing um að framkvæmd for- valsins hefði verið „lök“, enda ríkti almenn ánægja innan stjórnar VG með forvalsstjórnina og störf hennar. Steingrímur og Ögmundur Í sömu fréttaskýringu er miklu púðri eytt í þær kenningar að Vinstri græn sé klofin og að félags- menn fylgi annað hvort Steingrími J. Sigfússyni eða Ögmundi Jónas- syni að málum. Kenningarnar ganga út á það að allt umrót innan VG megi rekja til valda- baráttu á milli þeirra tveggja. Jafnvel hvers- dagslegur mis- ski lningur á milli borgar- fulltrúans Sól- eyjar Tómasdóttur og varaborg- arfulltrúans Hermanns Valssonar hefur verið talinn til marks um spennuna sem ríki á milli fylk- inga. Í fjölmiðlum var fjallað um „skoðanakúgun“ og „átök“ þegar um var að ræða einfaldan mis- skilning. Þannig hefur verið mjög lærdómsríkt að fylgjast með því undanfarið – bæði í fjölmiðlum og á bloggsíðum – hvernig reynt er að skipa fjölmörgum félögum í VG á bása, annaðhvort með Steingrími og á móti Ögmundi – eða öfugt. Hvaðan slíkar sögur eru sprottn- ar veit ég ekki, en þegar talað er um Sóleyju Tómasdóttur og und- irritaðan sem hluta af Steingríms- arminum, jafnvel Svavars-armin- um (svo dæmi séu tekin) þá þykir mér helst til langt seilst í lestri á hinu pólitíska landslagi. Ég hef starfað mikið innan VG í rúmt ár og kynnst ótal félagsmönnum á þeim tíma. Fæstir þeirra gefa mikið út á þessa skiptingu, enda flestir almennt ánægðir með bæði Steingrím og Ögmund og áhersl- ur þeirra, þótt hvorugur sé hafinn yfir gagnrýni. Kynslóðaskipti og ný staða Fyrir mér er skoðanaágreiningur innan VG augljós og ekkert til að fara í grafgötur með. Sá ágreining- ur stafar af hins vegar af öðrum sökum en þeim að Steingrímur og Ögmundur takist á bak við tjöld- in. Fyrir það fyrsta stækkar hreyf- ingin hratt og öðlast breiðari skír- skotun á meðal landsmanna, eins og fylgisaukning síðustu ára sýnir. Það þýðir að í hreyfinguna bætast nýir einstaklingar sem vilja starfa og hafa áhrif. Þeir eru gjarnan í yngri kantinum og sumir hafa aðrar áherslur en þeir sem lengur hafa starfað. Í öðru lagi er hreyf- ingin í þeirri nýju stöðu að halda um stjórnartaumana í landinu, sem þar að auki er í skugga efna- hagshrunsins. Í þriðja lagi hefur hún þurft að fara í gegnum flókin og erfið mál sem hafa reynst henni erfið. Hér er auðvitað átt við ESB- umsóknaraðild og Icesave-arfleifð- ina frá fyrri ríkisstjórn – mál sem hafa sannarlega valdið deilum í þingflokki VG sem og meðal allra félagsmanna. Engin ástæða er til að hafa áhyggjur af því að tekist sé á innan Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, rétt eins og innan allra annarra stjórnmálaflokka. Þá fyrst væri ástæða til að hafa áhyggjur af VG ef almennir félagsmenn færu að trúa ýktum sögum um meintar fylkingar Steingríms og Ögmundar, enda hafa fæstir þeirra sem virk- ir eru í félagsstarfinu áhuga á að láta draga sig í dilka. Hér er ágætt að minna sig á að félagsmenn í VG skipta þúsundum, virkir félagar í flokksstarfinu skipta hundruðum, og samtakamáttur þeirra er miklu meiri en svo að dulítill hristing- ur í fjórtán manna þingflokki nái að breyta þúfu í hól og valda almennum klofningi. Við erum vön því að takast á, við erum vön því að vera ósammála, við erum vön því að þora að skammast í flokks- forystunni. Og við það situr. Höfundur er formaður VG í Reykjavík. Þúfan og hóllinn DAVÍÐ STEFÁNSSON UMRÆÐAN Albert Jónsson skrifar um kjaraskerðingu eldri borgara í Kópavogi Við gerð fjárhagsáætlunar Kópa-vogs fyrir árið 2010 hefur verið ákveðið að rukka eldri borgara fyrir aðgang að sundlaugum Kópa- vogs og kaffi sem hefur verið boðið upp á eftir sund. Þessi innheimta hófst 1. febrúar síðastliðinn. Það er öllum ljóst að sundið er einhver besta heilsubót fyrir eldri borgara auk þess sem kaffi eftir sund er mikilvægur félagsskapur hjá þess- um hópi. Nú er byrjað að rukka fyrir þetta í Kópavogi en þetta er ókeypis í öðrum nágrannasveitar- félögum m.a. Garðabæ. Eldri borgarar hafa orðið fyrir mikilli tekjuskerðingu á undanförn- um misserum vegna skerðingar á grunnlífeyri og hækkun á ýmsum gjöldum við að halda heimili. Þessi ákvörðun bæjarstjórnar verður að falla undir mikla hugmyndafátækt við aðhald í rekstri bæjarins. Með þessari ákvörðun áætlar Kópavogs- bær að spara 7 milljónir króna á árinu 2010. Á sama tíma hefur bæjarráð Kópavogs samþykkt að Kópavogs- bær greiði fyrir sex mánaða bóka- safnskort og sömuleiðis þriggja mánaða kort til að stunda líkams- rækt hvort heldur er í sundlaugum bæjarins eða líkamsræktarstöðv- um fyrir Kópavogsbúa sem eru á atvinnuleysisbótum. Í dag eru um þúsund Kópavogsbúar atvinnu- lausir og því má áætla kostnað á ári við þessa aðgerð í kringum 50 milljónir. Í fjárhagsáætlun Kópavogsbæj- ar fyrir árið 2010 kemur fram að skatttekjur nemi um 13,3 milljörð- um króna sem eru útsvar og fast- eignaskattar. Til fræðslumála er áætlaður um 8,1 milljarður og til íþrótta- og æskulýðsmála 1,4 millj- arðar. Áætlað er að rekstur skrif- stofu Kópavogsbæjar nemi 652 milljónum króna sem er um 5% af tekjum bæjarins. Við lauslega yfirferð yfir fjárhagsáætlun bæj- arins telur undirritaður að hægt sé að spara um 2-3 milljarða með nýrri hugsun við rekstur bæjar- ins. Engar tillögur eru um að auka tekjur nema með skattheimtu. Ekk- ert kemur fram hvernig hægt er að auka tekjur bæjarins með uppbygg- ingu í atvinnumálum með stofnun nýrra fyrirtækja og með því að laða frumkvöðla til bæjarins. Ég óska eftir því að bæjarstjóri og bæjarstjórn Kópavogs aftur- kalli þessa vanhugsuðu ákvörð- un strax, sem er ekkert annað en atlaga að eldri borgurum Kópavogs. Það er ekki hægt að höggva aftur og aftur í sama knérunn. Eins og góður maður orðaði þetta: „Svona gera menn ekki.“ Ef þetta eru þær lausnir sem menn leita við að ná niður kostnaði í rekstri bæjarins þá eru bæjarfulltrúar og starfsmenn bæjarins ekki á réttri leið. Höfundur er íbúi og skattgreið- andi í Kópavogi. Atlaga að eldri borgurum UMRÆÐAN Atli Gíslason og Bergur Sig- urðsson skrifa um skipulags- mál Skipulagsferli eiga samkvæmt ákvæðum skipulagslaga að vera opin og lýðræðisleg ákvarð- anatökuferli þar sem íbúar, sam- tök og hagsmunaaðilar geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri og réttaröryggi þeirra tryggt. Þegar framkvæmdaraðili er orðinn kost- unaraðili sveitarstjórnar og annast auk þess margvíslega vinnu fyrir hönd hennar, s.s. umfjöllun um athugasemdir, raskast jafnvægið og réttur almennings verður fyrir borð borinn. Það er staðreynd að Landsvirkj- un tók að sér samfélagsleg verk- efni á borð við vegagerð og sam- skiptaþjónustu til þess að greiða fyrir skipulagsmálum við bakka Þjórsár. Enn fremur greiddi fyrirtækið sveitarstjórnarmönnum fyrir fundarsetu og stóð straum af kostnaði við gerð aðalskipulags sem gerði ráð fyrir virkjunum í neðri hluta Þjórsár. Samkvæmt úrskurði samgönguráðherra er samkomulag Flóahrepps og Lands- virkjunar um að „Landsvirkj- un bæti sveitarfélaginu að fullu kostnað sem kann það verða fyrir við aðal- og deiliskipulagsvinnu vegna virkjunarinnar“ ólögmætt. Og vel að merkja, samgönguráð- herra byggði úrskurð sinn á áliti umboðsmanns Alþingis. Sambæri- legt ákvæði var að finna í samn- ingi Landsvirkjunar við Skeiða- og Gnúpverjahrepp. Eðli málsins samkvæmt var skipulagstillögunum því synjað staðfestingu í umhverfisráðuneyt- inu sem fer með yfirstjórn skipu- lagsmála. Þar sem að skipulagstil- lögur sveitarfélaganna reyndust hafa verið unnar með ólögmætum hætti og stendur umhverfisráð- herra með synjun sinni vörð um réttaröryggi einstaklinga og lögað- ila í samræmi við markmið skipu- lags- og byggingarlaga. Þannig hafnar hann þeim andlýðræðislegu starfsháttum að framkvæmda- aðilar geti keypt sér skipulag hjá stjórnum sveitarfélaga að íbúum þeirra forspurðum. Milli Ölfuss og Orkuveitu Reykjavíkur er í gildi samkomu- lag frá apríl 2006 sem m.a. felur í sér að bæjarstjórn Ölfuss veiti framkvæmdaleyfi og greiði fyrir skipulagsmálum eins hratt og unnt er vegna áformaðra framkvæmda OR á Hengilssvæðinu. Jafnframt felur samkomulagið í sér að OR greiði sveitarfélaginu fyrir þann kostnað sem hlýst af auknu álagi á stjórnsýslu. Sveitarfélagið metur tekjur af samkomulaginu ígildi 500 milljóna kr. Í fundar- gerð bæjarstjórnar er samkomu- lagið afgreitt með bókun þar sem sveitarstjórn lýsir því yfir, strax í apríl 2006, að svæðið verði skipu- lagt „til samræmis við þær fram- kvæmdir sem fyrirhugaðar eru“. Þegar bæjarstjórn lýsir með þess- um hætti yfir ákvörðun sinni um niðurstöðu í áformuðu opnu og lýð- ræðislegu ferli áður en skipulag- ið er auglýst og um það er fjallað blasir við að til stendur að fótum- troða rétt fólks til sanngjarnrar aðkomu að ferli sem felur í sér kynningarfundi og möguleika á að senda inn athugasemdir. Verklagið sem hefur drifið áfram stóriðjustefnu undanfar- inna áratuga hefur einkennst af virðingarleysi fyrir þeim megin- tilgangi laga og alþjóðasamninga um umhverfis- og skipulagsmál að virkja almenning til að tryggja skynsamlega og hagkvæma nýt- ingu lands og landgæða, varðveislu náttúru og menningarverðmæta og koma í veg fyrir umhverfis- spjöll og ofnýtingu. Í þessu sam- bandi má t.d. vísa til Ríó-tilskip- unarinnar og Árósarsamningsins þar sem lýðræðisleg aðkoma fólks að opnu ferli við ákvarðanatöku er hornsteinn sjálfbærrar þróun- ar. Umhverfisráðherra hefur með úrskurðum sínum farið að lögum, úrskurði samgönguráðherra, áliti umboðsmanns Alþingis og lýð- ræðislegum reglum réttarríkis. Linnulausar ómálefnalegar og ómaklegar árásir á umhverfisráð- herra og kröfur um að ráðherrann fari ekki að lögum eru fráleitar og ósæmandi. Atli Gíslason er þingmaður VG og Bergur Sigurðsson framkvæmda- stjóri þingflokks VG. Skipulagsmál í réttarríki BERGUR SIGURÐSSON ATLI GÍSLASON UMRÆÐAN Pétur Gunnarsson skrifar um ís- lenskt sjónvarp Það er eitt stig í röksemdafærslu – senni-lega lokastigið – þegar þess er freist- að að leysa vandamál með því að leggja það niður. Þannig var frægt skömmu eftir miðja nýliðna öld þegar stjórnmálaforingi lagði til að Hringbrautinni yrði lokað vegna þess hve hún væri mikill slysavaldur. Og í vikunni sem leið lagði Ágúst Þór Árnason stjórnmála- fræðingur það til að sjónvarp allra landsmanna yrði lagt niður – til að binda enda á þrautagöngu þess. Lausnin sem honum kom í hug var að leggja í stað- inn peninga í sjóð sem sjónvarpsstöðvar gætu sótt í til fyrirhugaðra verkefna. Fróðlegt væri að sjá Ágúst útfæra þessa hugmynd nánar, en óneitanlega kvikna hugrenningartengsl við Chicago-skólann alræmda og páfa hans, Milton Friedman, sem lagði til að skóla- hald á vegum hins opinbera yrði aflétt en í staðinn yrði forráðamönnum barna fengin til- tekin upphæð sem þeir síðan gætu ráðstafað eins og best þeim þætti. Satt að segja kom þessi málflutningur úr óvæntri átt, að þessu sinni. Nóg er nú auðmýk- ing okkar Íslendinga að búa við ríkjandi sjón- varpsvanhöld og bágt að sjá hvernig á þeim yrði ráðin bót með því einfaldlega að slökkva. Þvert á móti: við þurfum – og aldrei frekar en nú – miðil sem upplýsir okkur um það samfélag sem er okkar og lýsir upp hlutskipti okkar sem þjóðar. Annað mál er það að íslenskt sjónvarp er á hraðri leið út, langþreyttir áhorfendur hljóta í aukn- um mæli að tengjast því úrvali erlendra stöðva sem nútímafjarskipti bjóða. En hvernig slíkt getur talist ásættanleg lausn þjóð sem vill kalla sig sjálfstæða er vant að sjá. Nema Ágúst sé svo langt kominn inn í Evrópusambandið að honum nægi að Ísland sé veiði- stöð og álbræðsla – að botninn sé suður í Brussel? Höfundur er rithöfundur. Dagskrárlok? PÉTUR GUNNARSSON

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.