Fréttablaðið - 24.02.2010, Qupperneq 24
24. FEBRÚAR 2010 MIÐVIKUDAGUR4 ● fréttablaðið ● vetrarlíf
Kaldbaksferðir bjóða ferðir
með troðara upp fjallið Kald-
bak austan megin Eyjafjarðar.
Á toppnum geta menn notið
útiveru eða rennt sér niður
brekkurnar.
„Upphafið að Kaldbaksferðum
má í raun rekja til áhuga míns og
konu minnar á að skíða við öðru-
vísi aðstæður,“ segir Sigurbjörn
Höskuldsson eigandi Kaldbaks-
ferða sem stofnaðar voru í desem-
ber 1998.
„Við fórum þá að velta fyrir
okkur hvernig hægt væri að koma
mörgum upp á fjöll í einu með
auðveldum hætti,“ segir hann en
vegna mikils bratta er ekki hlaup-
ið að því að finna hentug farar-
tæki. „Það kom í raun ekkert
annað til greina en snjótroðari og
því fórum við út í að kaupa snjó-
troðara og smíða á hann yfirbygg-
ingu fyrir tuttugu farþega,“ segir
Sigurbjörn en ekki leið á löngu þar
til búið var að kaupa annan troð-
ara og breyta honum til að geta
flutt þrjátíu manns.
Kaldbaksferðir eru, eins og
nafnið gefur til kynna, farn-
ar upp á fjallið Kaldbak sem er
hæsta fjall austan megin Eyja-
fjarðar. „Við völdum Kaldbak því
fjallið er í þægilegri fjarlægð frá
öðrum skíðasvæðum og snýr vel
við sólu. Þá eru brekkurnar eins
og þær gerast bestar á heims-
mælikvarða, bæði brattinn og
víðáttan,“ segir Sigurbjörn. Hann
bætir við að fjölmargar leiðir séu
færar niður fjallið, bæði brattar
fyrir lengra komna og aflíðandi
fyrir byrjendur.
Ekki er þó eingöngu hægt að
renna sér niður fjallið á skíðum
og brettum heldur geta farar-
stjórar einnig útvegað þotur fyrir
þá sem vilja. „Þetta eru stórar
þotur ætlaðar fullorðnum,“ segir
Sigurbjörn og vill meina að ekki
sé síðra að renna sér á þotu en
skíðum. „Það er bara gaman að
vera ungur í anda og láta vaða,“
segir hann glaðlega.
Langflestir viðskiptavinir
Kaldbaksferða eru Íslendingar
og Sigurbjörn segist halda að að-
eins um helmingur þeirra renni
sér niður brekkuna, hinir njóti úti-
vistar á toppi fjallsins. „Þetta er
oft eina leiðin fyrir suma að kom-
ast upp á svona hátt fjall,“ segir
Sigurbjörn sem er vélvirki að að-
alstarfi. Kaldbaksferðirnar eru
aukabúgrein hjá honum og fjöl-
skyldunni enda yfirleitt farnar
um helgar en einnig er eitthvað
um sérsniðnar ferðir fyrir hópa.
Þeir sem vilja kynna sér starf-
semina nánar er bent á www.kald-
baksferdir.com en þess má geta að
fyrir fullorðna kostar ferðin með
troðaranum 4.500 krónur, 2.500
krónur fyrir börn á aldrinum sex
til tólf ára en ókeypis fyrir yngri
börn sem setið er undir. - sg
Á snjóþotum, skíðum og
brettum niður Kaldbak
Sigurbjörn Höskuldsson á góðum degi á toppi fjallsins með útsýni yfir Eyjafjörð. MYND/ÚR EINKASAFNI
Tveir snjótroðarar hafa verið útbúnir til að flytja farþega, annar getur flutt 20 manns
en hinn 30.
Skíði eru ekki skilyrði því einnig er hægt að skoða umhverfið á tveimur jafnfljótum.
Brekkurnar henta bæði lengra komnum og byrjendum.
● MATUR Á KÖLDUM
DÖGUM Stundum er talað
um sérstakan vetrarmat en
hugtakið er ekki vel útskýran-
legt þótt flestir geri sér í hugar-
lund um hvers kyns mat sé að
ræða. Nanna Rögnvaldardóttir
matgæðingur hefur skrifað um
fyrirbærið og segir misjafnt hvað
fólk setur í flokkinn en þó sé
hann fyrst og fremst „notaleg-
heitamatur“ og er þá átt við mat
sem vekur notalegar tilfinningar og jafnvel minningar. Þannig er „nota-
legheitamatur“ oft einhvers konar mömmumatur, fiskibollur eða annað
slíkt meðan aðrir telja vetrarmatinn vera heitar og matarmiklar súpur
sem ylja og notalegt er að elda og borða.
● BRETTABÍÓ Í ROSENBORG Bretta-
félag Akureyrar stendur fyrir sýningu á
brettamyndinni Nice Try í Rosenborg, menn-
ingarhúsi í Brekkuskóla, á Akureyri laugar-
daginn næstkomandi klukkan 21. Í myndinni
sést íslenski brettakappinn Eiríkur Helgason
sýna listir sínar, allt frá stökkum yfir í rennsli
niður fjöll. Nice Try er gefin út af Transworld
Snowboarding, sem er vinsælasta bretta-
blaðið um þessar mundir, en lesendur þess
völdu Eirík nýlega snjóbrettamann ársins.
Myndin er 35 mínútur að lengd og er eng-
inn aðgangseyrir á sýninguna. Veitingar
verða ekki í boði en heimilt er að mæta með
eigin hressingu. Sjá www.brettafelag.is.
Námskeiðin eru í 6 vikur
nema annað sé tekið fram
Ný námskeið hefjast 1. mars
• Mitt líf - með jákvæðu hugarfari
og hreyfi ngu
Mán, mi og fö, kl. 6.20 - 7.20
Verð: 19.900.-
60+ (60 ára og eldri)
Mán og mi, kl. 10.00.
Verð: 13.500.-
• Hraðlest (byrjendur)
Hádegistímar fyrir byrjendur í tækjasal
Mán, mi og fö, kl. 12:05-12:50
Verð: 19.900.-
Hraðlest (framhald)
Hádegistímar fyrir lengra komna
Þri og fi , kl. 12:05-12:50
Verð: 14.900.-
• Kundalini Yoga
Þri og fi , kl. 9:00-10.15
Verð: 14.900.-
• Þjálfun og líkamsvitund mæðra
Markmiðið er að hjálpa mæðrum
á öllum aldri að hefja hreyfi ngu eftir
barnsburð
Á miðvikudögum, í 8 vikur
Verð: 19.900.-
• Heilsulausnir 3
Mán, mi og fö kl. 16:30-17:30/
9:00-10:00 (12 vikur)
Hentar þeim sem glíma við offi tu, hjarta-
sjúkdóma, sykursýki eða áhættuþætti
þessara sjúkdóma. Hentar einnig þeim
sem vilja ítarlegt mat á heilsufari og
áhættuþáttum.
Erla Gerður
Sveinsdóttir,
læknir
Anna Borg, einka-
og sjúkraþjálfari
Anna Sigurðardóttir,
einkaþjálfi ri m/B.S.
í sálfræði
Haddý Anna
Hafsteinsdóttir,
íþróttafræðingur
og einkaþjálfari
● Í SPOR ÞÓRUNNAR
HYRNU Konum býðst gott
tækifæri til að njóta góðrar úti-
veru og hollrar hreyfingar með
því að skella sér í skíðagöngu í
Hlíðarfjalli á Akureyri á laugar-
daginn. Skíðagangan nefnist Í
spor Þórunnar Hyrnu og er hald-
in í þriðja sinn. Sem fyrr geta
þátttakendur valið um tvær
vegalengdir, annars vegar 3,5
kílómetra og hins vegar 7 kílómetra. Boðið verður upp á veitingar á
miðri leið og ýmislegt í boði þegar komið er í mark. Þá er skíðaleiga á
staðnum og einnig hægt að láta smyrja skíðin gegn vægu gjaldi. Lagt
verður af stað á bilinu klukkan 13 til 13.30 en upphitun hefst klukk-
an 12.50. Þátttökugjald er kr. 1500, frítt er fyrir fjórtán ára og yngri.
Skráning fer fram í gönguhúsi norðan Skíðastaða frá klukkan 12 eða á
netfanginu hannadogg@simnet.is.