Fréttablaðið - 24.02.2010, Page 35
MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 19
Fréttablaðið býður nú upp
á birtingu æviminninga á
tímamótasíðum blaðsins.
Hafið samband í síma
512 5490-512 5495 eða sendið
fyrirspurnir á netfangið
timamot@frettabladid.is
Æviminning
Gísli Eirík
ur Helgaso
n
Laugateigi 7
2, Reykjavík
Gísli Eirík
ur Helgaso
n fæddist
í
Reykjavík
1. janúar 1
931. Hann
lést á Hraf
nistu í Ha
fnarfirði 1
2.
janúar síð
astliðinn.
Foreldrar
hans
voru Guðr
ún Jónsdót
tir frá Þing
eyri
í Dýrafirði
f. 1917, d.
1988, og H
elgi
Gíslason fr
á Ísafirði,
f. 1915, d.
1970.
Gísli Eirík
ur bjó fyrs
tu æviár sí
n í
Reykjavík
en fluttist
eftir það v
estur
til Ísafjarð
ar með for
eldrum sín
um
og systkin
um.
Systkini G
ísla Eiríks
eru Jón
Hannes, f.
1933, Sigrí
ður Ása, f.
1936 og G
uðmundur
, f.
1941.
Eiginkona
Gísla Eirí
ks er Marg
rét Magnú
sdóttir hjúk
r-
unarfræði
ngur, f. 4.
apríl 1937
. Þau geng
u í hjóna-
band árið
1960. Börn
Gísla Eirí
ks og Mar
grétar eru:
1) Magnús
kennari, f
. 1.5. 1972
, kvæntur
Guðbjörgu
Björnsdótt
ur kennara
, f. 30.11. 1
971. Börn
þeirra eru
Margrét, f.
17.2. 1997
og Björn J
óhann, f. 2
0.1. 1999.
2) Helgi tæ
knifræðin
gur, f. 18.6
. 1975, í sa
mbúð með
Jórunni Dr
öfn Ólafsdó
ttur leiksk
ólakennar
a, f. 15.2.
1975. Þeir
ra dóttir e
r Þórunn Á
sta, f. 24.12
. 2001. 3)
Guðrún læ
knir, f. 14.
11. 1979, í
sambúð m
eð Þór
Halldórssy
ni stjórnm
álafræðing
i, f. 6.6. 19
80.
Gísli Eirík
ur lauk sk
yldunámi
á Ísafirði e
n hélt suð
ur
til Reykjav
íkur 17 ára
gamall til
að nema h
úsasmíði.
Húsasmíð
ar urðu æv
istarf hans
. Framan a
f starfsæv-
inni vann
hann á Tré
smíðaverk
stæðinu Fu
ru en eftir
að
hafa fengi
ð meistara
réttindi í i
ðn sinni st
ofnaði han
n
sitt eigið f
yrirtæki, G
ísli, Eiríku
r, Helgi, se
m hann át
ti
og rak þar
til fyrir fá
einum áru
m.
Stangveið
i var aðalá
hugamál G
ísla Eiríks
alla tíð
og sinnti h
ann meða
l annars tr
únaðarstö
rfum fyrir
Stangveið
ifélag Reyk
javíkur.
Útför Gísla
Eiríks fer
fram í dag
kl. 13.00 í
Fossvogskir
kju.
G
1
gason
fæddist í
. Hann
firði 12.
drar hans á Þingeyri , og Helgi5, d. 1970. ár sín í
að ve tur m sínum
dur, f.
úkr-
-
u:
u
ð
ur
ð
Gísli Eiríkur HelgasonTrésmíðameistariGísli Eiríkur Helgason fæddist í Reykjavík 1. janúar
1931. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. janúar
síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðrún Jónsdóttir frá
Þingeyri í Dýrafirði f. 1917, d. 1988, og Helgi Gíslason
frá Ísafirði, f. 1915, d. 1970. Gísli Eiríkur bjó fyrstu
æviár sín í Reykjavík en fluttist eftir það vestur til
Ísafjarðar með foreldrum sínum og systkinum.
Systkini Gísla Eiríks eru Jón Hannes, f. 1933, Sigríður
Ása, f. 1936 og Guðmundur, f. 1941.
Eiginkona Gísla Eiríks er Margrét Magnúsdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 4. apríl 1937. Þau gengu í hjóna-
band árið 1960. Börn Gísla Eiríks og Margrétar eru:
1) Magnús kennari, f. 1.5. 1972, kvæntur Guðbjörgu
Björnsdóttur kennara, f. 30.11. 1971. Börn þeirra eru
Margrét, f. 17.2. 1997 og Björn Jóhann, f. 20.1. 1999.
2) Helgi tæknifræðingur, f. 18.6. 1975, í sambúð með
Jórunni Dröfn Ólafsdóttur leikskólakennara, f. 15.2.
1975. Þeirra dóttir er Þórunn Ásta, f. 24.12. 2001. 3)
Guðrún læknir, f. 14.11. 1979, í sambúð með Þór
Halldórssyni stjórnmálafræðingi, f. 6.6. 1980.
Gísli Eiríku lauk skyldunámi á Ísafirði en hélt suður
til Reykjavíkur 17 ára gamall til að nema húsasmíði.
Húsasmíðar urðu ævistarf hans. Framan af starfsæv-
inni vann hann á Trésmíðaverkstæðinu Furu en eftir að
hafa fengið meistararéttindi í iðn sinni stofnaði hann
sitt eigið fyrirtæki, Gísli, Eiríkur, Helgi, sem hann átti
og rak þar til fyrir fáeinum árum.
Stangveiði var aðaláhugamál Gísla Eiríks alla tíð
og sinnti hann meðal annars trúnaðarstörfum fyrir
Stangveiðifélag Reykjavíkur. Útför Gísla Eiríks fer fram í dag kl. 13.00 í Fossvogskirkju.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Unnur Bjarnadóttir
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
áður húsfreyja á Ásólfsstöðum í Þjórsárdal, verður
jarðsungin frá Stóra-Núpskirkju í Gnúpverjahreppi,
laugardaginn 27. febrúar kl. 14.00.
Amalía Stefánsdóttir Leif Bryde
Páll Stefánsson Natalí Stefánsson
Guðný Stefánsdóttir
Hafsteinn Stefánsson Sigrún Óla
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Ingibjörg Sigurjónsdóttir
Skólabraut 3, Seltjarnarnesi,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Grund 16. febrúar
2010. Jarðarförin fer fram frá Grensáskirkju fimmtu-
daginn 25. febrúar kl. 13.00.
Birna Björnsdóttir Bragi Gíslason
Rannveig Björnsdóttir Þórarinn Flosi Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær frændi okkar,
Guðmundur E.
Jóhannsson
Hátúni 12, Reykjavík, áður
Kleppsvegi 90, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn
26. febrúar kl. 13.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hörður Óskarsson
Steinn Ragnarsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Rannveig Magnúsdóttir
Garðvangi, Garði, áður til heimilis að
Lyngholti 9, Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 26.
febrúar kl. 14.00.
Björgvin Halldórsson Rebekka Dagbjört Jónsdóttir
Guðmundur Halldórsson Hulda Árnadóttir
Kristín Halldórsdóttir
Þorgeir Ver Halldórsson Inga Sjöfn Kristinsdóttir
Óskar Halldórsson Hildur Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kær systir okkar,
Árnína Guðmundsdóttir
fv. yfirhjúkrunarkona Barnaspítala
Hringsins,
verður kvödd frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
25. febrúar kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Guðmundsdóttir
Aðalbjörg Guðmundsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Guðlaug
Bárðardóttir
Stífluseli 8,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
25. febrúar kl. 13.00.
Símon V. Gunnarsson Eygló Andrésdóttir
Jóna Guðrún Gunnarsdóttir Jón Sveinn Friðriksson
Matthías Gunnarsson Katrín Eiríksdóttir
Dagný D. Gunnarsdóttir Halldór D. Guðbergsson
Kristín Gunný
Gunnar Magnús
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur faðir minn og afi,
Bjarni Magnússon
til heimilis að Hrafnistu,
áður Bergstaðastræti í Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
sunnudaginn 21. febrúar. Útför hans fer fram frá
Fossvogskirkju mánudaginn 1. mars klukkan 13.00.
Guðbjörg Bjarnadóttir
Helga Birgisdóttir
Ragnar Birgisson
Sverrir Birgisson
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Ingibjörg Jónatansdóttir
Bröttugötu 2, Borgarnesi,
verður jarðsungin frá Borgarneskirkju föstudaginn 26.
febrúar kl.14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent
á krabbameinsfélögin.
Jón S. Pétursson
Jakobína S. Stefánsdóttir Sverrir Hjaltason
Pétur V. Hannesson María E. Guðmundsdóttir
Friðþjófur Th. Ruiz Birna R. Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Söngkonan Hera Ólafsdóttir heldur
útgáfutónleika í Salnum í Kópavogi 3.
mars næstkomandi til að fylgja eftir
sólóplötu sinni, Vinaljóð, sem kom
út rétt fyrir síðustu jól. Vinaljóð er
samansafn af fjórtán sænskum vísum
og þjóðlögum sem hafa verið þýdd yfir
á íslensku.
Allir textarnir nema tveir eru eftir
Heru, en hún ákvað að notast við áður
útgefinn texta Ragnheiðar Gröndal við
lagið Kristallen den fina (Gef að stjörn-
urnar skíni) og texta Hjálmars Frey-
steinssonar við perluna Vem kan segla
(Vinaljóð). Útsetningarnar eru inn-
blásnar af skandinavískum þjóðlaga-
djassi, en markmiðið var að sögn Heru
að gera tónlistina aðgengilega fyrir
alla án þess þó að draga úr fegurðinni,
treganum, söknuðinum, ástinni og ein-
faldleikanum í textunum. Útkoman ber
hlustandann með sér inn í heim náttúru
og ævintýra í nútíð og fortíð.
Hera Ólafsdóttir hefur hingað til
ekki haft tónlist sem aðalstarf en
hefur verið syngjandi frá unga aldri.
Hún ólst upp í Svíþjóð þar sem hún
tók þátt í söng- og tónlistarstarfi af
ýmsu tagi. Snemma á vormánuðum
2006, eftir margra ára nám í söng-
og leikhúsfræðum bæði á Íslandi og
á erlendri grund, fór Hera að sökkva
sér ofan í sænskar vísur og ballöður
til að reyna að gera þær aðgengileg-
ar fyrir íslenska hlustendur. Hún hófst
handa við að safna saman upptökum og
nótum og smám saman fór verkefnið að
taka á sig mynd. Hún þýddi meginpart
textanna sjálf og fékk til liðs við sig
nokkra af færustu hljóðfæraleikurum
landsins.
Haustið 2008 hóf Hera stunda-
kennslu við Kvikmyndaskóla Íslands
og ári seinna tók hún við sem deildar-
forseti leikstjórnar- og framleiðslu-
deildar skólans. Hún hélt þó áfram að
vinna að upptökum og útsetningum og
til stóð að gefa vinaljóðin út í byrjun
nóvember á síðasta ári en sökum anna
varð seinkun á því. „Því var ákveðið að
læða geislaplötunni í búðir rétt fyrir
jól og fylgja honum almennilega eftir
með tónleikum og kynningum eftir
áramót,“ segir Hera. vera@frettabladid.is
HERA ÓLAFSDÓTTIR: FYLGIR EFTIR SÓLÓPLÖTU MEÐ SÆNSKUM ÞJÓÐLÖGUM
Sænsk vinaljóð í Salnum
HEFUR STERKAR TAUGAR TIL SVÍÞJÓÐAR Hera hefur frá árinu 2006 sankað að sér sænskum vísum og ballöðum og leitast við að gera þær
aðgengilegri fyrir íslenska hlustendur. Útkomuna má heyra í salnum 3. mars. Mynd/úr einskasafni