Fréttablaðið - 24.02.2010, Blaðsíða 36
20 24. febrúar 2010 MIÐVIKUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
En elskan, hann
var á hálfvirði!
Günther! Þú verður
líka að sýna okkur
bæði innri og ytri
styrk þinn.
Þú reyndir
allavega!KILL!
Eru íkornaveiðar
virkilega íþrótt?
Já.
En meiða
íkornarnir
sig ekki?
Alls ekki.
Þeir eru
ótrúlega
lunknir við
að sleppa.
Og stundum verð-
ur maður að veiða,
sleppa og hlaupa eins
og fætur toga.
Tr
é
fa
lla
...
...
fj
öl
l
ey
ða
st
...
...
jö
kl
ar
br
áð
na
...
...
e
n
þv
ot
ta
ka
rf
an
st
æ
kk
ar
b
ar
a
og
st
æ
kk
ar
!
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
Það hefur stundum tekið á að vera vinstrimaður á Íslandi, ekki síst í
miðjum uppgangi peningahyggjunnar.
Raunar hefur peningahyggja gegnsýrt
þjóðfélagið lengi, þó um þverbak hafi
keyrt í hlutabréfa- og myntkörfulána-
geðveiki síðustu ára fyrir hrun. Það að
vera vinstrimaður hefur nefnilega lengi
afmarkast af því að vera í vörn. Á meðan
hugmyndafræði þeirra til hægri var ljós,
voru vinstrimenn alltaf að verja eitthvað.
Það á bæði við um verkalýðshreyfingu og
stjórnmálamenn.
LÖNGUM var eins og hér á Íslandi hefði
verið búið til hið fullkomna samfélag um
og upp úr miðri síðustu öld og að með
lögum um félagslegt tryggingakerfi
hefði fullkomnun verið náð. Annað var
ekki hægt að skilja af leiðtogum vinstri-
sins. Allt snerist um að verja velferðar-
kerfið, verja kaupmáttinn, verja heil-
brigðiskerfið, verja réttindi launafólks,
verja hitt og verja þetta.
HVAR var sóknin? Hvar var eld-
móðurinn sem hefði átt að fá ungt
fólk til að fylkja sér undir merkj-
um baráttunnar fyrir betra lífi?
Betra lífi, ekki bara því að
verja það líf sem einhvern
tímann hafði náðst.
NÚ er svo komið að vinstrimenn þurfa
virkilega að vera í vörn. Hrun efnahags-
lífsins með tilheyrandi fjárlagahalla kall-
ar á niðurskurð og skattahækkanir. Og
þá tekur baráttan við um hvar á að skera
niður og hvar á að hækka skatta. Það er
virkileg barátta um að verja velferðar-
kerfið, kaupmáttinn, réttindi launafólks
og hvað það nú heitir. Nú reynir á og
ljóst að eitthvað verður undan að láta; að
öðrum kosti mun trauðla nást að stoppa í
gatið á fjárlögunum.
ÞESS vegna er það enn grátlegra að
hugsa til þess hve mörgum árum var sóað
í þessa endalausu vörn. Alveg var sama
hvort um var að ræða vinstri stjórnir
fyrri tíma, verðbólgu níunda áratugarins,
stöðugleika þjóðarsáttarinnar eða upp-
gang efnahagslífsins; alltaf snerist bar-
áttan um að verja velferðarkerfið og það
sem áunnist hafði.
LEIÐTOGAR vinstriflokkanna og verka-
lýðshreyfingarinnar síðustu áratugi bera
mikla ábyrgð. Vissulega tókst að verja
ýmislegt, en mikið hefði verið gaman ef
hægt hefði verið að sækja fram á hug-
myndum vinstristefnunnar.
BARÁTTA fyrir stöðnun er engin barátta,
heldur uppgjöf.
Vinstrið var alltaf í vörn
Sendu okkur
símamynd!
Nýtt fylgirit Fréttablaðsins
Við viljum tvífara fræga fólksins!
Er kærastan þín eins og Angelina Jolie eða er vinur þinn eins
og Jack Black? Sendu okkur mynd til sönnunar og hún gæti birst
í næsta tölublaði.
POPP er nýtt fylgirit Fréttablaðsins og kemur út mánaðarlega.
Við viljum að þið sendið okkur klikkuðustu símamyndirnar ykkar.
Bestu myndirnar birtast í næsta tölublaði og höfundur bestu
myndarinnar fær tvo kassa af Doritos í verðlaun.
Sendið myndirnar í síma: 696 POPP (696 7677)
eða á popp@frettabladid.is
Fbl.★★★★★ Elísabet Brekkan
IÐN
Ó TILBRIGÐI VIÐ STEF
Stef: Hin sterkari eftir Strindberg
Síðasta sýning: 25. feb. fi m kl. 20.00
Sími: 562 9700 kl. 11–16 og tveim tímum fyrir sýningu
www.midi.is – tilbrigdi.com
eftir Þór Rögnvaldsson
Mbl. ★★★ Ingibjörg Þórisdóttir
Klassískt verk fullt af leikgleði. Leikstjóranum Ingu Bjarnason tekst vel
upp enda enginn nýgræðingur í faginu.