Fréttablaðið - 24.02.2010, Qupperneq 37
MIÐVIKUDAGUR 24. febrúar 2010 21
menning@frettabladid.is
Brennuvargarnir (Stóra sviðið)
Mið 24/2 kl. 20:00 Aukas. U
Fim 4/3 kl. 20:00 U
Mið 17/3 kl. 20:00 Aukas. Ö
Mið 24/3 kl. 20:00 Aukas.
Fim 25/2 kl. 20:00 Aukas. U
Fös 26/2 kl. 20:00 5. K U
Lau 27/2 kl. 20:00 6. K U
Fös 5/3 kl. 20:00 7. K U
Gerpla (Stóra sviðið)
Lau 6/3 kl. 20:00 8. K Ö
Fim 11/3 kl. 20:00 U
Fös 12/3 kl. 20:00 Ö
Lau 13/3 kl. 20:00 Ö
Fim 18/3 kl. 20:00 Ö
Fös 19/3 kl. 20:00 Ö
Lau 20/3 kl. 20:00 Ö
Sun 28/2 kl. 15:00 U
Sun 28/2 kl. 19:00 Ö
Sun 7/3 kl. 15:00 U
Sun 7/3 kl. 19:00 Ö
Oliver! (Stóra sviðið)
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Sun 14/3 kl. 19:00 Ö
Sun 21/3 kl. 15:00 U
Sun 21/3 kl. 19:00 Ö
Lau 27/3 kl. 15:00 Ö
Lau 27/3 kl. 19:00 Ö
Sun 28/3 kl. 15:00 Ö
„Besta leiksýning ársins“ MBL, IÞ. Aukasýning 24. mars komin í sölu!
Fjórar stjörnur Mbl. I.Þ
Lau 13/3 kl. 15:00 Frums. U
Sun 14/3 kl. 13:00 U
Sun 14/3 kl. 15:00 U
Lau 20/3 kl. 13:00 U
Lau 20/3 kl. 15:00 U
Sun 21/3 kl. 13:00 U
Sun 21/3 kl. 15:00 U
Lau 27/3 kl. 13:00 U
Lau 27/3 kl. 15:00 U
Sun 28/3 kl. 13:00 U
Sun 28/3 kl. 15:00 U
Fíasól (Kúlan)
Mið 7/4 kl. 17:00 Ö
Lau 10/4 kl. 13:00 U
Lau 10/4 kl. 15:00 U
Sun 11/4 kl. 13:00 U
Sun 11/4 kl. 15:00 U
Mið 14/4 kl. 17:00
Lau 17/4 kl. 13:00 U
Lau 17/4 kl. 15:00 U
Sun 18/4 kl. 13:00 U
Sun 18/4 kl. 15:00 U
Fim 22/4 kl. 13:00 Aukas. U
Fim 22/4 kl. 15:00 Aukas. U
Lau 24/4 kl. 16:00 U
Sun 25/4 kl. 13:00 U
Sun 25/4 kl. 15:00 U
Sun 2/5 kl.13:00 U
Sun 2/5 kl 15:00 U
Lau 8/5 kl. 13:00
Lau 8/5 kl. 15:00
Sun 9/5 kl.13:00
Sun 9/5 kl 15:00
Sprellfjörug sýning um gleðisprengjuna ómótstæðilegu!
Oliver! MBL, GB – Sýningum lýkur í maí
Fim 25/2 kl. 20:00 Fors. U
Lau 27/2 kl. 20:00 Frums. U
Fös 5/3 kl. 20:00 U
Hænuungarnir (Kassinn)
Lau 6/3 kl. 20:00 Ö
Fim 11/3 kl. 20:00 Ö
Fös 12/3 kl. 20:00 Ö
Lau 13/3 kl. 20:00 Ö
Bráðfyndið verk eftir Braga Ólafsson, einn af okkar ástsælustu höfundum!
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Miðvikudagur 24. febrúar 2010
➜ Tónleikar
21.00 Guðrún
Gunnarsdóttir og
Aðalsteinn Ásberg
flytja úrval úr verkum
söngvaskáldsins
Cornelis Vrees-
wijk á tónleik-
um í Norræna
Húsinu við
Sturlugötu.
➜ Sýningar
Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu
hefur verið opnuð ljósmyndasýning Sig-
urgeirs Sigurjónssonar „Íslendingar”.
Ennig stendur þar yfir sýningin Póst-
kortaár sem listakonurnar Vera Sölva-
dóttir og Jarþrúður Karlsdóttir hafa sett
upp sem og sýning á verkum eftir lista-
konuna Yst. Opið alla daga kl. 11-17 og
enginn aðgangseyrir á miðvikudögum.
➜ Leiklist
20.00 Unglingadeild Leikfélags
Kópavogs sýnir nýtt íslenskt leikrit,
Blóðsystur, í Leikhúsinu við Funalind
2 í Kópavogi.
➜ Síðustu forvöð
Í Félagsmiðstöðinni að Hæðargarði
31 fer senn að ljúka myndlistarsýningu
Geirharðs Þorsteinssonar arkitekts.
Opið virka daga kl. 9-16.
Þrándur Þórarinsson sýnir verk í veit-
ingahúsinu Geysir við Aðalstræti 2. Opið
alla daga kl. 11.30-23. Sýningu lýkur á
sunnudag.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Erlingur Jóhannsson fjallar um
niðurstöður rannsóknar á lífsstíl 7-9
ára barna í erindi sem hann flytur hjá
Háskólanum á Akureyri, Sólborg við
Norðurslóð (st. 201).
> Ekki missa af …
Á síðasti ári kom út bók Unu
Margrétar Jónsdóttur, Allir í
leik: Söngvaleikir barna. Í dag
klukkan 17 flytur hún fyrirlest-
ur á vegum Félags þjóðfræð-
inga á Íslandi á aðalsafni Borg-
arbókasafnsins í Tryggvagötu.
Þar fjallar hún um íslenska
leikjasöngva á borð við „Fram
fram fylking“ og „Bimm bamm
bimm bamm“. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill.
NORRÆNA HÚSIÐ
Forsala á midi.is
Cornelis
Vreeswijk
kvöldskemmtun í tali og tónum
Guðrún Gunnars - Aðalsteinn Ásberg
Gunnar Gunnarsson - Jón Rafnsson
24/2 kl. 21:00
26/2 kl. 21:00
27/2 kl. 21:00
6/3 kl. 21:00
12/3 kl. 21:00
Takmarkaður sætafjöldi
Nýtt leikverk eftir Braga
Ólafsson, Hænuungarnir,
verður frumsýnt í Kassa
Þjóðleikhússins á laugar-
daginn. Eins og í hinu
vinsæla leikriti Belgíska
Kongó, sem Borgarleik-
húsið frumsýndi árið
2004, leikstýrir Stefán
Jónsson Hænuungunum og
Eggert Þorleifsson leikur
aðalhlutverkið.
„Á sínum tíma tók ég þátt í því verk-
efni, að búa til stutt leikrit hjá Borg-
arleikhúsinu og það áttu bara að
vera nokkrar sýningar,“ segir Bragi.
„Svo varð leikritið miklu vinsælla
en búist var við. Óhjákvæmilega
fór maður þá að hugsa um það hvort
maður ætti ekki að skrifa annað
leikrit. Mér finnst það líka fínt inn á
milli – af því maður situr alltaf einn
við skriftir – að vinna með leikur-
um og leikstjóra. Maður lærir á því,
það er sérstaklega hjálplegt upp á
persónusköpun. Stundum finnst
mér heldur ekki svo mikill munur á
leikritunum og sögunum. Sumar af
þeim skáldsögum sem ég hef gefið
út upplifi ég til dæmis frekar sem
leikrit eða smásögur. Það væri að
minnsta kosti ekki mikið mál að
gera leikrit úr þeim.“
Undirmeðvituð tenging við hrunið
Í Hænuungunum leikur Eggert
Þorleifsson djassáhugamanninn
Sigurhans, sem kallar til aukahús-
fundar þegar nokkrum kjúklingum
er stolið úr frystikistu þeirra hjóna
í sameigninni. Á einum stað í leik-
ritinu segir hann: „Þjóð sem lætur
völdin í hendurnar á þjófum og
glæpamönnum, hlýtur að gera ráð
fyrir að einhverju verði stolið frá
henni.“ Eru Hænuungarnir sem sé
svokallað „viðbragð við hruninu“?
Það koma vöflur á Braga, en svo
segir hann: „Einn þráður leikrits-
ins er þjófnaður og það má alveg
tengja við það sem hér hefur verið
að gerast. Sumt snertir ástandið
óbeint. Flatskjár kemur við sögu,
en það var ekki útgangspunkturinn
að fjalla um hrunið. Kannski er það
bara óhjákvæmilegt. Maður er með
hálfan hugann við hrunið allan
daginn. Tengingin við það ástand
er því líklega eitthvað sem kemur
úr undirmeðvitundinni. En við
látum það í hendurnar á áhorfend-
um hvort þeir tengi það þannig.“
Verður þá hægt að tengja allt
sem listamenn skrifa næstu árin
sem einhvers konar viðbrögð við
hruninu?
„Með góðum vilja er alltaf hægt
að tengja það sem hentar hverju
sinni. Eflaust eigum við eftir að
sjá fullt af bókum og leikhúsverk-
um sem taka á þessu. Ég er sjálfur
ekki hrifinn af því þegar er verið
að fjalla um þetta á yfirlýstan
hátt, þótt það geti heppnast mjög
vel, eins og til dæmis í Ufsagrýlum
eftir Sjón. Þar er fjallað beint um
hrunið en á mjög grófan og grót-
eskan hátt, sem mér finnst virka
mjög vel.“
Harmrænn farsi
Hænuungarnir er kynnt sem „bráð-
fyndið og ísmeygilegt verk“. Bragi
segir erfitt að staðsetja verkið
innan ákveðinnar leikhústegund-
ar. „Ég hef samt fengið á tilfinn-
inguna að þetta sé einhvers konar
farsi. Farsi lýtur ákveðnum lög-
málum sem ég hef ekki kynnt mér
neitt sérstaklega, en mér finnst
verkið samt vera farsi, kannski
harmrænn farsi af því það liggur
ákveðin dramatík undir.“
Verkið gerist í Hlíðunum. „Hlut-
ar leikritsins gerast í tveimur
íbúðum í einu, fyrir húsfund og á
honum,“ segir Bragi.
„Leikmyndin (eftir Börk Jóns-
son) er skemmtileg og öðruvísi.
Við sjáum inn í íbúðirnar í gegnum
brotinn vegginn. Ég skal ekki segja
um samtölin og átökin í verkinu, en
umgjörðin er mjög svo hversdags-
leg.“
Auk Eggerts Þorleifssonar leika
í Hænuungunum þau Kristbjörg
Kjeld, Friðrik Friðriksson, Pálmi
Gestsson, Ragnheiður Steindórs-
dóttir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir.
drgunni@frettabladid.is
Aftur saman í Hænuungunum
EGGERT „SIGURHANS“ ÞORLEIFSSON, STEFÁN JÓNSSON LEIKSTJÓRI OG BRAGI ÓLAFSSON LEIKSKÁLD Hænuungarnir verða frum-
sýndir á laugardaginn: Einhvers konar harmrænn farsi, segir höfundurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Út er komið nýtt hefti af Rit-
inu, tímariti Hugvísindastofn-
unar Háskóla Íslands. Þar eru
atburðirnir sem dunið hafa á
Íslendingum á síðustu miss-
erum greindir og gegnum-
lýstir.
Heftið hefur að geyma
sjö frumsamdar greinar,
eina þýðingu og myndaþátt.
Bryddað er upp á ýmsum
vinklum. Til að mynda bregð-
ur Guðmundur Jónsson ljósi
á helstu kenningar síðustu
alda um kreppur í kapítal-
ísku þjóðskipulagi og Krist-
ín Loftsdóttir beinir sjónum
að þeirri áráttu Íslendinga
að telja sjálfa sig gædda ein-
hvers konar náðargáfu sem
aðrar þjóðir geti aðeins rennt
öfundaraugum til. Hún flett-
ir í leiðinni ofan af hrokanum
sem Íslendingar virðast löng-
um hafa verið illa haldnir af.
Ein greinanna er á léttari
nótum. Í henni gera Hildi-
gunnur Ólafsdóttir og Unnur
María Bergsveinsdóttir
grein fyrir könnun sem þær
gerðu á skemmtanamenningu
Íslendinga.
Gegnumlýst hrunEgilsstaðir á laugardaginnGamanleikurinn Heilsugæslan eftir Lýð
Árnason lækni var frumsýndur í október
á síðasta ári. Hann hefur notið mikilla
vinsælda og verið sýndur yfir 30 sinnum
um land allt. Nú er röðin komin að Aust-
firðingum því verkið verður sýnt í Slátur-
húsinu á Egilsstöðum á laugardaginn
kl. 20 og 22. Verkið gefur áhorfandanum
sýn inn í völundarhús heilbrigðiskerfis-
ins og öll hlutverk eru í höndum þeirra
Elfars Loga Hannessonar og Margrétar
Sverrisdóttur.
RITIÐ Skoðar hrunið.