Fréttablaðið - 02.03.2010, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 2. mars 2010 21
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 2. mars 2010
➜ Tónleikar
20.00 Tónleikar í Listasal Mosfells-
bæjar, Kjarna við Þverholt. Fram koma:
Hulda Björk Garðarsdóttir sópran,
Sesselja Kristjánsdóttir messósópran,
Davíð Ólafsson, bassi og Chalumeaux-
tríóið. Á efnisskránni verða lög úr
Brúðkaupi Fígarós og Cosi fan tutte eftir
Wolfgang Amadeus Mozart og óperunni
La grotta di Trofonio eftir Antonio
Salieri.
20.30 Lúðrasveit Reykjavíkur flytur
latínskotna og sveiflukennda efnisskrá
á tónleikum sem verða haldnir í
Neskirkju.
➜ Sýningar
Í Hallgrímskirkju hefur verið opnuð
sýning á verkum Gunnars S. Magnús-
sonar. Opið alla daga kl. 9-17.
➜ Námskeið
20.15 Námskeiðið Náttúruperlan
Vatnajökulsþjóðgarður: Snæfell og
Eyjabakkar, hefst hjá Endurmenntun HÍ
að Dunhaga 7. Skráning og frekari upp-
lýsingar á www.endurmenntun.is.
➜ Afþreying
Rauðakrosshúsið að Borgartún 25
býður upp á fjölbreytta dagskrá með
fræðslu, ráðgjöf og frístundarnámskeið-
um. Nánari upplýsingar og dagskrá
www.raudakrosshusid.is.
➜ Kvikmyndir
20.00 Kvikmyndasafn Íslands sýnir
mynd Markku Pölönen Draumalandið,
(„Onnen Maa”) frá árinu 1999. Sýningin
fer fram í Bæjarbíói við Strandgötu í
Hafnarfirði. Enskur texti. Nánari
upplýsingar á www.kvik-
myndasafn.is.
20.00 Eysteinn Guðni
Guðnason frumsýnir heim-
ildarmynd sína, Hringurinn
II á húsvegg á móti á
Laugavegi 159 (á milli
Hlemms og Fíladelf-
íu). Allir velkomnir.
➜ Félagsstarf
20.00 Leshópur Félags eldri borgara
í Kópavogi efnir til kynningar á íslenzk-
um rímnaháttum og kvæðalögum í
félagsheimilinu Gullsmára 13. Allir vel-
komnir. Enginn aðgangseyrir.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Rachael Lorna Johnstone flytur
erindi um efnahagsleg, félagsleg og
menningarleg réttindi á krepputímum.
Fyrirlesturinn fer fram hjá Háskólanum á
Akureyri, Sólborg v. Norðurslóð (L201).
12.05 Hrefna Róbertsdóttir flytur
erindi um hvernig líta megi á landshagi
og samfélagsmál á átjándu öld með
hliðsjón af sautjándu og nítjándu öld.
Fyrirlesturinn fer fram í fyrirlestrasal
Þjóðminjasafnsins við Suðurgötu.
➜ Dagskrá
13.30 Í Þjóðmenningar-
húsinu við Hverfisgötu 15
verður dagskrá tileinkuð
skáldinu og fræðimann-
inum Jóni Helgasyni.
Umsjón dagskrárinnar
er í höndum Guðrúnar
Ásmundsdóttur. Allir
velkomnir og enginn
aðgangseyrir. Nánari
upplýsingar á www.
thjodmenning.is.
Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík er
nú óðum að skýrast, en í ár er hald-
ið upp á fertugsafmæli hátíðarinn-
ar. Í gær var byrjað að selja miða
á tónleika hins heimskunna norska
píanóleikara Leif Ove Andsnes, sem
kemur fram ásamt þýsku systkin-
unum Christian Tetzlaff fiðluleik-
ara og Tanja Tetzlaff sellóleikara.
Tónleikarnir fara fram í Háskóla-
bíói 13. maí.
Á tónleikunum hér sameinar
þetta súpertríó krafta sína í
rómantískri og tilfinningaríkri
efnisskrá, sem er tileinkuð Robert
Schumann. Í ár eru 200 ár liðin frá
fæðingu hans. Á efnisskránni eru
Fantasiestücke ópus 88 og Píanótríó
nr. 3 í g moll ópus 110 eftir Robert
Schumann, en auk verka Schum-
anns leika systkinin hvort í sínu
lagi með Andsnes, Ævintýramyndir
fyrir selló og píanó eftir tékk-
neska tónskáldið Leos Janácek og
Sónatínu fyrir fiðlu og píanó í G dúr
ópus 100 eftir Antonín Dvorák.
Leif Ove Andsnes er nú á tón-
leikaferð um Evrópu, Japan og
Kóreu en leikur þessa efnisskrá
með Tetzlaff-systkinunum í Wig-
more Hall í Lundúnum áður en þau
koma hingað. Leif Ove Andsnes
lék síðast á Íslandi árið 1993. Hann
lék þá píanókonsert Griegs á tón-
leikum með Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Þá var hann 23 ára. Næst-
komandi laugardag kl. 13.50 sýnir
Sjónvarpið heimildarmynd sem
Leif Ove Andsnes gerði með norska
sjónvarpinu NRK um Grieg.
Súpertríó leikur á Listahátíð
LEIF OVE OG TETZLAFF-SYSTKININ
Leika í Reykjavík 13. maí.
Í gær var ljósmyndasýningin
Veður í Fókus opnuð í anddyri
Norræna hússins. Hér er á ferð-
inni samsýning félaga í Fókus,
sem er félag áhugaljósmyndara.
Sýndar eru 32 ljósmyndir
stækkaðar á álplötur.
Allar myndirnar eru teknar á
Íslandi og gefa áhorfandanum inn-
sýn í þann mikla fjölbreytileika
sem íslensk veðrátta býður upp á.
Á myndunum gefur meðal annars
að líta náttúru, mannvirki, fólk
og skepnur í samspili við ýmis
blæbrigði veðráttunnar. Norræna
húsið er opið fyrir almenning alla
daga frá kl. 12 til 17 og sýningin
stendur til 15. mars.
Veður í Fókus
POWER VIKA
1.– 5. MARS
frítt
Þú kaupir eina d:struct
150g og færð eina
75g frítt með. Fæst á
næstu hársnyrtistofu
Við erum flutt á
Skútuvog 1
Dæmi um verð:
Canon Pixma.........1.390
Epson Photosmart......990
Brother 900/1000....1.190
Xerox Phaser 6180..31.900
Lexmark 640........34.900
Dell 5100 BCMY.....14.300
Dell 5110 BCMY.....24.400
HP 2612A...........10.500
HP 7553X...........14.400
HP 6000-6004.......13.200
HP 4191-4194.......18.300
Prentvörur.is
Skútuvogi 1, 104 Reykjavík, Sími 553 4000 prentvorur@prentvorur.is
Ódýr blek-
og dufthylki
í flestar gerðir
prentara