Fréttablaðið - 02.03.2010, Síða 43
ÞRIÐJUDAGUR 2. mars 2010 27
FÓTBOLTI Wayne Rooney staðfesti
það í gær að hann verði klár í slag-
inn þegar England mætir Egyptum
í vináttulandsleik á morgun.
Rooney varð fyrir smá hnjaski
á hné í úrslitum deildarbikars-
ins gegn Aston Villa á sunnudag.
Fyrstu fréttir bentu síðan til þess að
hann myndi ekki spila landsleikinn
á morgun.
„Hnéð er í lagi. Ég fór í rannsókn
og það er bara lítið mar. Ég verð
klár í að spila,“ sagði Rooney við
fréttamenn í gær.
Mikið hefur gengið á hjá enska
landsliðinu síðustu vikur. Terry
missti fyrirliðabandið vegna gjálíf-
is og Wayne Bridge neitar að spila
með landsliðinu út af John Terry.
Rooney segir að þessi hasar hafi
ekki truflað undirbúninginn.
„John er leiðtogi í þessu liði.
Hann er kannski ekki með fyrir-
liðabandið en hann er samt frábær
leikmaður og mikill leiðtogi,“ sagði
Rooney. „Það hefur ekkert verið
öðruvísi stemning í hópnum en
venjulega fyrir þennan leik. John
er frábær leikmaður sem hefur
verið valinn í heimsliðið þrjú ár í
röð. Það hefur enginn áhyggjur af
hans leikformi.“
Rooney segir slæmt að missa
Bridge. „Hann er líka frábær leik-
maður og það er sérstaklega slæmt
að missa hann þar sem Ashley Cole
er meiddur. Hann hefði líklega tekið
sætið hans í liðinu. Þetta er vissu-
lega allt mjög óheppilegt en ákvörð-
unin er hans og hana ber að virða.“
Rooney tryggði United enn einn
sigurinn um helgina er hann kom
af bekknum og skoraði sigurmarkið
gegn Aston Villa. Rooney segist
hafa vitað nokkrum dögum áður að
hann myndi ekki byrja leikinn.
„Ég var aðeins slæmur í magan-
um og stjórinn var að leita að afsök-
un til þess að taka mig úr liðinu.
Þegar hann frétti af magaverkjun-
um var hann búinn að ákveða sig.
Ég var að sjálfsögðu vonsvikinn
en þetta var samt rétt ákvörðun
hjá honum,“ sagði Rooney sem er
búinn að skora 28 mörk fyrir United
á þessari leiktíð. - hbg
Enska landsliðið fékk góð tíðindi í gær fyrir vináttulandsleikinn á miðvikudag:
Rooney verður klár í slaginn
gegn Egyptum á morgun
WAYNE ROONEY Lætur smá hnjask ekki stöðva sig. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Reyndir kennarar
Morgun- og kvöldnámskeið
3 stig, íslenska 1, 2 og 3
Miðsvæðis
Litlir hópar, hámark 12 manns
Íslenska
fyrir útlendinga
Ingólfsstræti 8, 101 Reykjavík, simi: 692 8818
islenska@multi-kulti.org www.multi-kulti.org
ÍSLENSKUNÁMSKEIÐ AÐ HEFJAST:
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR:
islenska@multi-kulti.org Sími: 692 8818
Námið er viðurkennt og styrkhæft sem starfs- og símenntun.
Verð fyrir námskeið: 24.000 kr.
Hvert námskeið er 60 kennslustundir
8. MARS:
ÍSLENSKA 1
kl. 19.00-20.30
ÍSLENSKA 2
kl. 11.30-13.30
ÍSLENSKA 3
kl. 09.00-11.00
1. APRÍL:
ÍSLENSKA 2
kl. 17.15-18.45
29. APRÍL:
ÍSLENSKA 1
kl. 09.00-11.00
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki